Breiðablik - 01.08.1909, Side 4

Breiðablik - 01.08.1909, Side 4
36 BREIÐABLIK hann í faðm. Hans verk vill hann vinna, að heimboði hans vill hann sitja. Þetta velur hann hiklaust. Hinu hafnar hann. En nú kemur kirkjufélagið til hans og segir: Hvað gjörir þú maður? Þú hafnar og velur í ritn- ingunni. Slíkt er óhæfa. Þar er alt jafnt frá guði. Alt orð, talað af vörum sjálfs hans. Skyldir þú, ormurinn, hafna nokkuru, sem hann hefir talað ? Það er hugar- burður einn og hégilja, að það gjöri þig sjúkan. Láttu þér verða jafn-gott af því öllu. Hverju fær hann þá öðru svarað en þessu: Reynslan er ólygnust. Eg trúi henni,en ekki þér. Og fái eg ekki að verða þér óáreittur samferða fyrir þessa sök, bið eg þig að fara þína leið, og eg fer mína. Þá breytir kirkjufélagið um róm og segir: Vertu ekki svona fljótur, heillin, þú mátt gjöra það í laumi. Við gerum það allir í laumi. En þú mátt ekki láta það komast upp, ekki segja nokkurum manni frá því, að þú sért að velja og hafna, því við viljum um fram alt vera rétt-trúað kirkjufélag. En þér er velkomið að gjöra það í laumi. Upp á þá skilmála skulum við verða samferða ! Á að ganga að þeim boðum ? Getur þú fengið þig til þess fyrir þig og barnið þitt? Það var blót- að í laumi í fyrstu kristni á íslandi og þótti ekki göfugt. Þegar þú værir að rækja helgustu þörf sálar þinnar, værir þú að blóta; þegar þú værir að velja og hafna til eilífs lífs fyrir þig og barnið þitt, skyldi sú athöfn ekki eiga meiri rétt á sér en það að bera út nýfædd börn og eta hrossaslátur átti íforn- öld ? Er hér eigi skörin komin upp í bekkinn, að því er óeinlægan kristindóm snertir? Að slíkum boðum fær enginn maður gengið með nokkura virð- ingu fyrir sjálfum sér. , Heiðvirð- ur maður álítur slíkt langt fyrir neðan sig í borgaralegum efnum. í andlegum efnum er það sálar- háski. Öllum þeim, sem hafa fyrir- dæmdu skoðanirnar og réttlausu og standa vilja við þær, er því nauðugur einn kostur: Sá að fylgja dæmi safnaðanna, sem þeg- ar eru gengnir út. Það kann að hafa einhver óþæg- indi í för með sér. En það væri þá engin dygð að standa viðsann- færingu sína, ef engin óþægindi væri samfara. Öll slík óþægindi snúast ávalt í margfaldan ávinn- ing. Þar sem hingað til hefir verið gengið út, hafa menn verið nokk- urn veginn sammála. Á einum stað tókst prestinum að kljúfa brot út úr söfnuðinum eftirað hann var genginn út, ekki vegna skoðan- anna, því það getur engum sálu- hjálparatriði verið að standa í kirkjufélaginu, heldur með því að vekja meðaumkvan og brjóstgæði

x

Breiðablik

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.