Breiðablik - 01.08.1909, Page 5

Breiðablik - 01.08.1909, Page 5
BREIÐABLIK 37 vina sinna, —hjartagóðra manna, sem ekki vildu, að presturinn þeirra færi að bera vonarvöl. Á öðrum stöðum eru menn meira tvískiftir. Sjálfsagt eru í öllum söfnuðum einhverir, er þeim skoðunum fylgja, er fyrirdæmdar voru á kirkjuþingi. Sums staðar kunna þeir að vera í minnahluta. Þar má telja víst, að einstakling- arnir allir, sem standa vilja við skoðan sína og eigi vera svo lítil- þægir að blóta í laumi, segi sig úr söfnuði, til að mótmæla eins sterklega og þeim er unt því hafti, sem lagt hefir verið á sam- vizkufrelsi þeirra. Ekki skyldi þeir taka sér nærri, þó þeir með því misti tilkall til eigna safnaðarins. Slíkir smámunir ætti hvergi að vera þrösk- uldur í vegi. Þegar svona er ástatt, þjónar sá guði bezt, sem hiklaust stendur við sannfæringu sína, þótt hann að einhverju leyti leggi út í óvissu. En koma má í veg fyrir, að söfnuðirnir klofni, svo framarlega þeir, er tylgja meirahluta á kirkju- þingi að málum meti samheldi safnaðanna og framhald kristilegr- ar starfsemi á hverjum stað meir enn kirkjufélagið og fylgi bræðr- um sínum og systrum, sem reknir hafa verið út úr kirkjufélaginu, þangað til það bætir ráð sitt. Þeir, sem reknir hafa verið,eiga ekki á neinu völ. Því um það að falla frá skoðunum sínum talar enginn. Þeim er nauðugur sá kostur að fara, eins og stendur. Hinir eiga á tvennu völ : Að vera kyrrir í kirkjufélaginu og missa svo og svo mikinn hóp úr söfnuði, sem víða myndi lama eða gjöra að engu starfsemi safnaðar- ins í framtíðinni. Eða fylgja þeim, sem reknir hafa verið út úr kirkjufélaginu og halda safnaðar- starfseminni bróðurlega áfram eins eftir sem áður og er það auðvitað réttast. Þann kost munu söfn- uðirnir taka, hvar sem þeir fá að ráða sér sjálfir. En víðar eru ráðríkir prestar, en á Frakklandi, sem náð hafa tökum og neyta þeirra óspart, en fátt um leiðtoga á móti, svo safn- aðarviljinn er læstur læðingi, er hann fær eigi af sér slitið. Þá er fríkirkjuhugmyndin illa komin í kút. Vandamál mikið er hér á ferð- um og sársauki töluverður fylgir. Hér er um veglegasta félagsskap að tefla, sem upp hefir risið með Vestur-íslendingum. Það er sárt að verða að gjöra sér í hugarlund að svo geti farið, að hann sé nú í þann veg að gliðna sundur, og fara í mola. Fari það svo, verð- urþað eðlilegafleiðingþess,hvern- ig sá félagsskapur hefir farið að ráði sínu. Hvað reið á yfirlysing þeirri, semgerðvar? Hverju góðu gat hún til leiðar komið ? Engu,— engu nema illu, eins og augljóst er orðið. Uppskeran er nú smám saman að koma í ljós. Og hún fer ávalt eftir sáningunni.

x

Breiðablik

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.