Breiðablik - 01.08.1909, Qupperneq 6

Breiðablik - 01.08.1909, Qupperneq 6
38 BREIÐABLIK Leiðtog"arnir sáu hættuna, en stýrðu beint út í hana. Þeim var svölun að þessu í bili og um þá svölun gfátu þeir ekki neitað sér. Þeir héldu þeir gæti kúgað sam- vizkur manna. En þeim brást bog"alistin. Skýr leikmaöur lét sér um munn fara : Að hugsa sér þá óhæfu, að húrra saman fáeinum fáráðlingum utan af landi, eins og mér og mínum líkum, og láta þá greiða atkvæði um, hverju almenningur manna eigi að trúa ! Sú ör hneit við hjarta. En alt þetta verður til góðs á endanum. Svo mátt- ug er höndin hans, sem stendur við stjórnvölinn og sýrir öllu vel. Það verð- ur til þess, að annað betra rís upp á rústum þess, er hrinur. Kirkjufélagið sér að sér, bætir ráð sitt, lagfærir það, sem lagfærast þarf. Annað veifið er gefið í skyn af þeim, sem vörn halda uppi fyrir hönd þess, að þetta sé alt misskilningur af hálfu minnahlutans. Engan hafi átt að meiða né styggja, því síður kúga. Alt hafi verið eintómt frjálslyndi—kærleikur. Það er ávalt hægðarleikur að leiðrétta misskilning. Og þegar það er gjört nízkulaust og af einlægum hug, má ætíð búast við, að leiðréttingunni verði vel tekið. Rósebery lávarður flutti brezkum blaðamönnum hvaðanæfa utan úr heimi nýlega ágæta ræðu. Hann talaði um hergagna og drápsvéla-æðið með þjóðun- um, bryndrekana, og spurði : Hve nær mun þeirri brjálsemi linna? Þeirri spurningu svaraði hann svo : Þegar alþýða landanna rís upp og segir : Hættið þessari fásinnu! og tekur um leið fyrir kverkar henni. Þá verða þjóð- irnar til þess neyddar að hætta að her- væðast hver gegn annarri og eyða brauði barna sinna fyrir drápsvélar. Það verða leikmenn með heilbrigða sjón og heilbrigðan sklning á lífinu og trúarbrögðunum, sem hér taka í stýris- tauma, oggjörast björgunarmenn vestur- íslenzks kirkjufélagsskapar. Þeir snúa snekkjunni í réttara horf áður hún lendir í síðasta skerjagarðin- um. Njóti þeir björgunarmenn heilir handa ! KRISTUR OG GAMLA TESTAMENTID. / — A síðastliðnu kirkjuþingi voru dá- litlar trúmála-umræður um gildi heilagr- ar ritningar. En úr þeim varð minna en skyldi, sökum þess að málshefjandi, síra Kristinn K. Ólafsson, flutti langt erindi, sem tók mikinn tíma. Aðal-efni þess erindis og aðal-sönnun- in fyrir bókstaflegum innblæstri ritning- arinnar, er vitnisburður Krists um gamla testanientið. Þar var lengi aðal-varnar- garðurinn og í áliti hitma gcmlu var hann órjúfandi. En nú er fyrir löngu svo farið, að hann kemur ekki að neinu haldi. Eigi er furða þó frelsarinn vitniígamla testamentið, þar sem þar voru gevmdar trúarhugmyndir þjóðarinnar allar. í er- indi þessu er tekið fram, að í fjallræðunni einni sé 14 vers úr g. t. beinlínis tilfærð, og um 40 vers, sem bendi þangað. Lát- um svo vera. Hins hefði höf. átt að geta um leið, að einmitt í fjallræðunni er hvað eftir annað vitnað til g. t. til að hrekja það, nema setningar þess úr gildi og setja annað fuilkomnara í staðinn. Hann nem- ur hefndarlögmálið (lextalionis) úrgildi: Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. (Mt5362M2i243M242°5M 1921). Hann sagði: Þér hafið heyrt að sagt var: Þú skalt elska náunga þinn og hata óvin þinn. En eg segi yður: Elskið óvini yðar o.s. frv. (Mt5« 44). Vitaskuld hefir því verið hreyft á móti þessu, að það standi hvergi í Móse-lögmáli,að maður skuli hata óvin

x

Breiðablik

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.