Breiðablik - 01.08.1909, Qupperneq 11

Breiðablik - 01.08.1909, Qupperneq 11
BREIÐABLIK 43 VITNISBURÐUR NÝJU GUDFRÆDINNAR UM KRIST. VÉR erum orðnir því vanir, að láta þaö klingja í eyrum, aö nýja g'uðfræðin sé ekkert annað en únítara- trú og Kristsneitan. Vér erum hætt- ir að taka oss það nærri og hugsum með sjálfum oss: Hvað sakar sá blindi dóm- ur? Vér vitum sjálfir hverju vér trúum, en þeir ekki. Þeir verða í hvert sinn lakari menn og verri fyrir ósannindin, en vér ekki. Ummæli þeirra hin illu ætti að styrkja trú vora á frelsarann en ekki veikja. Því þeir vita ekki, hvað þeir tala. Nú ber svo vel í veiðar, að einn helzti maður í hópi nýju guðfræðinganna á Þýzkalandi, og það þeirra fremstu, pró- fessor Heinrich Weinel við háskólann í Jena, birtir eina rækileguslu ritgjörð, sem eg hefi lengi lesið í tímariti, í Hibbert Journal, um trúarlíf á Þýzkalandi nú á dögum. Hann gjörir þar grein fyrir öllum stefnum og straumum í guðfræði og heimspeki og kennir þar margra grasa. En af flestum álítur hann eitt- hvað sé að læra. Margan kafla úr rit- gjörð þessari hefi eg sterka Iöngun til að þýða, en verð að neita mér um sökum rúmsins, nema þenna, sem hér fer á eftir, og gefur góða hugmynd um afstöðu nýju guðfræðinganna til frelsarans. Höfund- urinn talar fyrir skoðanabræður sína. ,,Oss hefir Jesús Kristur gefiS lífsitt, Ijómand; góðleik og kærleik langt út yfir takmarkaðar siSferðis hugmyndir mannanna ; svo fyrir oss er engtnn annar vegur fær, en að lifa fyrir þessa hug'sjón og trúa á þann guð, sem birt hefir sjálf- an sig í Jesú. Œtlunarverk vort er því það að vitna um þetta nýfundna líf eins vel og oss er unt. Vér berum nú ekki lengur fram kenningar um Krist, heldur Krist sjálfan. Sjálfan hann samt sem áður, ekki eins og trúargrein eða lóg'- mál, heldur eins og leiðtoga og lausnara, eins og hann leiðir sjálfa oss og frelsar. Vér prédik- um ekki kenningu hans í sögulegum smáatriðum, heldur instu auðlegð anda hans — hvernig hann leitar hinna útskúfuðu, glötuðu og þjáðu,—náð hans og sannleik, hreinleik hugarfars hans, sjálfsfórnar-þrá hans og löngun til að þjóna öðr- um. Og alt þetta flýtur beinlínis at þeirri guðs- trú, sem telur ekki á fingrum sér og hártogar ekki, heldur verður vör við kærleik guðs bæði í regni og sólskini einmitt vegna þess, að það fellur jafnt yfir ráðvanda og óráðvanda. Að vera fullkominn í þeirri trú, að leyndardómur lífsins birtist eins og Kærleiksríkur vilji í slíku tilsýndar óréttlætis-gerfi — það er kristindómur. Og þenna kristindóm höfum vér fram að bjóða, ekki lengur blandinn gömlum og úreltum hug- myndum um heiminn eins og í gömlu trúgreina kerfunum, heldur innilega samþýddan nýjustu heimsþekkingu, og þess vegna lausan við á- steytingarsteina, sem gömlu trúfræðikerfin brutu skip sín f spón við. Þetta segi eg, höfum vér fram að bjóða samlöndum vorum, ekki eins og með valdboði eða einustu úrræði—en vér tölum um það, sem vér höfum lært að þekkja. Hver- jum sem vill ljá oss eyra og veita þessarri æðstu hugsjón og þessarri stærstu blessan viðtöku úr vorri hendi, honum viljum vér þjóna. “ YFIRLÝSINGAR. I. Frá Vatna-söfnuöi 1. ág. 1909. Sökum þess vér getum ekki viöurkent Sameininguna, hvorki lyrr né síðar, sem óskeikult trúvarnarrit eöa dómstól í öll- um ágreiningsmálum kirkjufélagsins, né heldur fallist á árásir hennar á móöur- kirkjuna á íslandi, og Sökum þess vér fáum ekki aðhylst þröngsýni meirahluta, er fram kom á síöasta kirkjuþingi, en aðhyllumst þær rýmri trúarskoðanir, sem haldiö var fram í tillögu minnahluta, Lýsir Vatna-söfnuður yfir því, að hann segir sig úr hinu ev. lút. kirkjufélagi ís- lendinga í Vesturheimi. II. Winnipeg, 3. ág. 1909, Til forseta hins ev. lút. kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi. Þar sem eg á síðasta kirkjuþingi var sviftur rétti til að fylgja þeim skoöunum, sem eg hefi opinberlega gjört grein fyrir og flytja þær, án þess sannað hafi veriö af guðs orði, játningarritum kirkju vorrar eða grundvallarlögum kirkjufélagsins, að eg hafi í nokkuru brotið, segi eg hér með sambandi mínn viö kirkjufélagið slitið. Virðingarfylst F. J. Bergmann.

x

Breiðablik

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.