Fréttir - 26.06.1918, Blaðsíða 1
FRÉTTIR
DAGBLAÐ
58. blað.
Beybjarík, miðribndaginn 26. jání 1918.
2. árgangnr.
Peir sem g-erast áskrifendur „Frétta“ 1. júlí
fá blaðiö ókeypis frá byrjun.
Só/ar/ag.
(2i. júní 1918.)
Við Snœfellsnes sól að sœvi
sígur, í skýjahjup.
Sólgeislabelti sindrar
sveipað um Faxadjúp.
í tindrandi, blárauðum bjarma
báran er, landi nœr,
beggja megin við beltið, —
en blikar er dregur fjœr.
Um bládýpi loftsins líður
Ijósbláhvít skýja-kló;
neðar i roða rennur
röðull, í kyrran sjó.
Einn ég af ströndu stari,
stari er hnígur sól.
Daggperlur glœrar glóa
í grasinu’ á Arnarhól.
Blœvindur bjartrar nœlur
ber mig á höndum tveim;
um himinsins bláasta bláma \
ber ’hann mig norður, heim.
S. F.
^ðal/unður
■Cimskipajélagsins.
Aðalfundur Eimskipafélagsins
hófst á hádegi laugardaginn 22.
júni i Iðnaðarmannahúsinu. Setti
Halldór Daníelsson fundinn sakir
sjúkdómsforfalla formanns, Sveins
Björnssonar. — Fundarstjóri var
kosinn Eggert Briem yfirdómari og
kvaddi hann til skrifara Gisla
Sveinsson alþm.
Fundarstjóri lýsti því, að full-
trúar Vestur-íslendinga, Árni Egg-
ertsson og Jón Bíldfell væri ó-
komnir. En á síðustu stundu
sendi Árni þeim Benedikt Sveins-
syni og Magnúsi Sigurðssyni um-
boð til þess að fara með atkvæði
sin. Voru hvorum þeirra fengin
500 atkvæði til meðferðar.
Fundurinn var löglega boðaður
Og lögmætur samkv. 7. gr. lag-
anna, þar sem aðgöngumiðar höfðu
verið afhentir fyrir 595,825 kr., en
alt atkvæðisbært hlutafé talið
1676,376 kr. Ákveða lögin, að af-
henda þurfi seðla fyrir minst 33°/o
til þess að fundur sé lögmætur.
Þrjár tillögur um lagabreytingar
komu fram. Var ein þeirra sam-
þykt, þess efnis, að stjórn félagsins
hafi óbundnar hendur um það,
hve mikla ágóðaþóknun hún veitir
framkvæmdarstjóra félagsins.
Feld var tillaga stjórnarinnar
um það að afnema annað höfuð-
skilyrðið fyrir lögmæti funda (að
teknir sé aðgönguseðlar fyrir
minst þriðjung atkvæðisbærs hluta-
fjár).
Sfjórnarbosning.
Fjórir gengu úr stjórn, samkv.
hlutkesti, þeirra fimm manna, er
kjörnir voru 1916, og voru þessir
dregnir út:
Eggert Claessen, Jón Þorláksson,
Halldór Danielsson og Árni Egg-
ertsson (en eftir var Halldór For-
steinsson).
Síðan voru tilnefndir með kosn-
*ng sex menn í stað þriggja hér-
lendra, er úr gengu, og hlutu flest
atkvæði, auk þeirra þriggja er úr
8et]gu, Pétur A. Ólafsson, Olgeir
riðgeirsson og Ólafur Þ. Johnson.
Því næst var kosið um þessa sex
og í stjórnina kosnir:
Eggert Claessen með 16268 atkv.
Jón Þorláksson með 12594 atkv.
Halldór Daníelss. með 8447 atkv.
(P. A. Ó. fékk 8216, Ó. P. J.
4384 og O. F. 2214).
Engin tilnefning var komin frá
Vestur-íslendingum, en hún átti
fram að fara í Winnipeg og varð
því ekki kosið í stað Árna Egg-
ertssonar. En samþykt var tillaga
frá umboðsmönnum V.-ísl. um að
skora á stjórn félagsins að kjósa
mann úr flokki Vestur-íslendinga
í auða sætið síðar, þegar sendi-
maður þeirra kemur hingað.
Endurskoðandi var endurkosinn
Ó. G. Eyjólfsson og varaendur-
skoðandi kosinn Guðmundur Böðv-
arsson.
Frumvarp til reglugerðar
fyrir eftirlaunasjóð félagsins var
lagt fram, en alkv.gr. frestað til
væntanlegs aukafundar, sem hald-
inn verður í haust.
Skifting á ársarðt 1917
var þessi, samkv. till. stjórnarinnar:
Frá bókuðu eignar-
verði dregst . . . . kr. 521000.00
í endurnýjunar- og
varasjóð leggist . . — Stjórnendum fél. sé 77217.20
greitt í ómakslaun alls — 4500.00
Endurskoðendum
greiðist í ómaks- laun — 1500.00
Hluthöfum félagsins
greiðist í arð 7 °/o af hlutafé því, kr.
1.673.351.53, sem
rétt hefur til arðs — 117134.61
Útgerðarstj. greiðist
sem ágóða-þóknun — 2000.00
f eftirlaunasjóð fél.
leggist...........— 25000.00
Radiumsjóði íslands
séu gefnar........— 10000.00
kr. 758351.81
Aths.:
Félagsstjórnin hefur samkvæmt
22. gr. félagslaganna ákveðið, að
af hreinum arði samkvæmt árs-
reikningnum, kr. 758351.81, skuli
verja til frádráttar bókuðu eigna-
verði félagsins, sem hér segir:
a. Á e. s. »Gull-
fossi«..........kr. 40000.00
b. Á e. s. »Lagar-
fossi«..........— 470000.00
c. Á vörugeymslu-
húsum félagsins
við Hafnarstræti
og Tryggvagötu
í Reykjavík, kr.
5000 á hvoru . — 10000.00
d. Á skrifstofu-
gögnum og öðr-
um áhöldum, ca.
10%.............— 1000.00
kr. 521000.00
Enn fremur var samþykt, að
heimila stjórninni, að lála byggja
eða kaupa eitt eða tvö millilanda-
skip auk strandferðaskipanna sem
heimild var gefin á aðalfundi til
að láta byggja eða kaupa.
Hlutabréfakaup í Vesturheimi.
Stjórnendur Eimskipafélagsins,
sem búsettir eru í Vesturheimi,
urðu þess varir í vetur, að þangað
voru komnir tveir leyni-erindrekar,
sem voru mjög áfjáðir I að kaupa
hlutabréf félagsins af mönnum þar
vestra. Töldu stjórnendurnir skyldu
sína að vara menn við að selja
bréfin. Engu að síður varð leyni-
erindrekum þessum allvel ágengt
um kaupin, enda lá sterkur grunur
á, að menn úr stjórn félagsins hér
heima mundu hafa átt þátt í ráða-
gerðinni og fjárframlögum.
Aðferð þessi vakti all-mikla
gremju vestra eins og hér heima,
þegar um hana kvisaðist. — þar
sem þeir Árni Eggertsson og Bíld-
fell komust ekki sjálfir á aðal-
fundinn, þá sendu þeir fyrirspurnir
til formanns í símskeyti þess efnis
(Framhald á 3. síðu.)