Fréttir - 26.06.1918, Blaðsíða 3
F R.E T TIR
3
frá SBÍurvigstöívunum.
Austurríkismenn flýja í óreglu til baka yfir
Piava alla leið frá sjó að Montello og reka ítalir
flóttann.
Ráíhcrrafunínr i ^ðfn.
Ráðherrar Norðurlanda setjast á ráðstefnu í
Kaupmannahöfn á morgun.
Vcrkamcnn i £onðon.
Innan skamms halda verkamenn fund mikinn
með sér í London.
Fréttir.
Kosta 5 anra eintakið í lansasölu.
Fyrir fasta kaupendur 1 kr. á mánnði.
Ang'lýHingaTerð: 50 aura
hver centimeter í dálki, miöað viö
Qórdálka blaðsíður.
Aígreiðslan i Sölutnrninnm
iyrst um sinn.
Við anglýsingnm er tekið á af-
gTeiðslnnni og í prentsm. Gntenberg.
Útgefandi:
Félag í Reykjavík.
Ritstjóri til bráðabirgða:
Guðm. Guðmundsson,
Sími 448. ‘ Pósthólf 286.
Viðtalstími venjulega kl. 4—5virka
daga á Óðinsg. 8 B uppi á lofti.
(Framhald frá 1. siðu.)
hvers vegna mönnum þeim hefði
verið veittur aðgangur að bókum
félagsins, er væri að kaupa hluta-
bréfm vestra, og
hvort meiri hluti íslenzkra hlut-
hafa æskir þess, að Vestur-íslend-
ingar hætti hlutdeild sinni í fé-
laginu.
Ut af þessu spunnust all-miklar
umræður á fundinum. Eggert
Claessen lýsti yíir þvi, að stjórnin
sem slík ætti engan þátt að leyni-
kaupunum vestra og hefði engum
veitt aðgang að bókum félagsins,
enda væri öllum auðvelt að fá
vitneskju um það, hverjir eignast
hefði bréf þar í upphafi, því að
það hefði verið auglýst jafnóðum
í vestanblöðunum.
Enn fremur tóku til máls Pétur
kaupm. Ólafsson, Sigurður Jóns-
son keunari, Benedikt Sveinsson,
Magnús Sigurðsson, Sigurður Egg-
erz ráðherra, Jón Porláksson, Gísli
Sveinsson og Brynjólfur Bjarnason
kaupm.
Málstað Vestur-íslendinga studdu
þeir Sigurðarnir og Benedikt og
Magnús. Bentu þeir á, hversu for-
göngumenn málsins vestra hefðu
lagt sig í líma að safna hlutafé
og hversu landar vorir hefðu þegar
orðið drengilega við, meðan alt
var í óvissu um hag og fram-
kvæmdir félagsins. Öðrum þjóðum
þætti mikið i húfi að hafa sem
traustust bönd við landa sína í
öðrum ríkjum og álfum. T. d.
hefði verið stofnað eimskipafélag í
Svíþjóð skömmu fyrir styrjöldína,
með lágum hlutabréfum, svo að
sem flestir mættu eignast og safnað
til meðal Svía heima og í Vestur-
heimi, einmitt í því skyni að
halda uppi ferðum milli Sviþjóðar
og Norður-Ameríku og tryggja
þar með vináttubönd og samheldni
þjóðarinnar beggja megin hafsins.
— Pótti það miður drengileg að-
ferð að gera héðan menn út í
pukri til þess að sanka saman
bréfum meðal einstakra landa
vestra nú, þegar sýnt væri að fé-
lagið gæti borið sig, enda auðsjá-
anlega gert«í þeim einum tilgangi
að bola V.-ísl. út úr félaginu, því
að í sama mund var nóg af hluta-
^réfum falt hér heima.
hað gægðist upp hjá Eggert
Claessen við umræðurnar, að sumir
ur stjórn félagsins væri sjálfír sem
einstaklingar viðriðnir leyni-erindis-
reksturinn um hlutakaupin í Vest-
urheimi, þótt stjórnin »sem slík«
væri það ekki.
Að lokum var borin upp tillaga
frá Sigurði Eggerz þess efnis, að
fundurinn teldi áframhaldandi sam-
vinnu við Vestur-íslendinga œskilega.
— Var tillagan samþykt með 9733
atkv. gegn 7761.
Þá var og borin upp tillaga frá
Pétri A. Ólafssyni á þá leið, að
fundurinn teldi æskilegt, að allir
hlutir í félaginu yrði eign búsettra
manna hér í landi og skoraði
fundurinn því á stjórnina að greiða
fyrir sölu hluta, sem Vestur-ísl.
kynnu að vilja selja og bjóða þá
hér út. — Samþ. með 11666 atkv.
gegn 6076.
Þess er að gæta, að mikill hluti
atkvæðanna var í fárva manna
höndum, einmitt þeirra, sem við
undirróðurinn eru riðnir. En ef
miðað væri við tölu fundarmanna
eða hlutaeigenda í landinu mundu
að eins sárfá atkvæði hafa stutt
svo lélegan málstað.
Fundarmaður.
Ordsending.
Herra G. Eiríkss stórkaupm.l
Vér þökkum yður innvirðulega
mikilsverðar upplýsingar i grein
yðár i »Vísi« í gær um vínanda-
pöntun yðar frá útlöndum. Pér
játið sem sé það, er vér sögðum
hvergi i fréttagrein vorri, að þér
hefðuð pantað umræddar 50 tunn-
ur vínanda, (sbr. orð yðar í grein-
inni: »þegar eg1) hafði svo selt
sendingu þessa hér gerði eg eins og
eg hafði umlalað við samband
mitt í Khöfn i febrúarmán.
verksmiðjunni aðvart um að síð-
1) Leturbreytingin alstaðar vor.
Ritstj.
asta sending væri seld og bað
hana gera ráðstafanir til að senda
hingað með fyrstu ferð o. s.
frv.«) — og pantað þœr án þess
að leita fyrirfram samþykkis um-
sjónarmanns áfengiskaupa.
Fyrir þessar upplýsingar ásamt
öðru í grein yðar erum vér, og
vafalaust þá eigi síður lögreglan,
þakklát yður.
Þér lýsið yfir því og undirstrikið
það, að til yðar hafi ekki verið
sendur einn peli af vínanda. Þetta
þykir oss mjög svo merkilegt, þar
sem bæði var sending þessi merkt
yður á farmskrá og tunnurnar
sömuleiðis; enda gat lögreglan eigi
annars bendlað yður við þær.
Hitt skiftir engu máli, þótt einnig
hafi verið á vínandatunnum þess-
um einhver undirmerking til um-
sjónarmanns áfengiskaupa, og allra
síst eftir birting skýrslu yðar í gær
um pöntun yðar á þessum vínanda.
Skoðun yðar um það, hve þýð-
ingarmikið eða eigi það virðist
vera, hvort umrædd vara er pönt-
uð hjá umsjónarm. áfengiskaupa,
áður en hún fer af stað til lands-
ins eða eftir að hún er komin
hingað, skulum vér eigi deila um
við yður. En tæplega hyggjum
vér að góðir lögfræðingar og rétt-
sýnir mundu fallast á hana.
Yður til hugnunar skal oss á-
nægja að geta þess, að oss datt
ekki í hug að þér hefðuð ætlað
að flytja þessar 50 tunnur til yðar
(?: til eigin notkunar). Oss datt
ekki í hug að ætla, að þér þyrft-
uð svona mikið áfengi einn. En
eftir yðar eigin játningu í grein-
inni hafið þér áður, með milli-
göngu yðar, hjálpað öðrum um
vínanda, bæði mengaðan og ómeng-
aðan, og það höfðum vér enda
heyrt getið um fyrri.
Þér staðfestið og eins og fleira
umsögn vora um að lögreglan hafi
lagt hald á umræddar tunnur, þar
sem þér segið að hún hafi þær
»undir umsjón sem stendur«, vegna
þess að þær séu ekki pantaðar
gegnum umsjónarm. áfengiskaupa.
Það er þjóðræknislegt og fallegt
af yður að benda á, eins og þér
gerið i enda greinar yðar, að á-
reiðanlega sé um eitthvað þarfara
að Qasa en það, að ofmikið berist
hingað af vörum sem nauðsynleg-
ar eru landsmönnum, þótt oss satt
að segja, virðist hálfbroslegt að
tala um »ofmikið af nauðsynja-
vöru« í þessu sambandi. Og blað
vort mun líka óhikað taka ýmis-
legt af þessu »þarfara« til umræðu,
því að bæði fyrr og síðar hefur
margt það borið við og verið að-
hafst í landi þessu, er eigi hefði
átt að liggja í þagnargildi.
Með tilhlýðilegri virðingu.
Ritstjóri „Frétta“.
Samninganefndin íslenzka.
Ilt er það og óviðurkvæmilegt,
að nokkrir utanþingsmenn skuli
reyna að veikja traust á henni
meðal manna í umtali, þótt i
hálfkveðnum svörum sé. Slikt er
að óreyndu ástœðulaust og óhæfa
mikil. Væri hitt sæmra að borgar-
búar í höfuðstað landsins gerðust
öruggur bakbjarl hennar með því
að lýsa yfir á opinberum fundum
eindregnum vilja sínum í fána- og
fullveldismálinu, er vér efumst eigi
um, að yrði mikill styrkur góðum
árangri samninga-umleitana þeirra,
er nú heQast.
Hrað er í íréttum?
f Friðgeir Guðmundsson
skipstjóri á ísafirði andaðist í
fyrra dag eftir langa legu úr blóð-
eitrun.
Mokafli
er svo mikill í ísafjarðardjúpi
alla leið inn að Múla, að elztu
menn muna eigi dæmi til slíks.
Á Alþingi
er til umræðu i dag i efri deild
lýðskólinn í Bergstaðastræti og
skemtiskattur. í neðri deild barna-
fræðsla, kirkjugarður á Stokkseyri,
kjötþurkun, bráðabirgðalaunavið-
bót simamanna og Mentaskólinn.
Fundi
hefur nú efri deild haldið 50
og neðri deild 55.
Ms. Úifur
kom frá Ólafsvík í gærkvöldi.
Yeðrátta.
Logn um alt land, nema á Seyð-
irfirði vestan kaldi. Alskýaður hira-
inn, regn á Akureyri og Rvík.
Hitinn frá 9—17,3 st.
Skemtiskatturinn.
Allsherjarnefnd efri deildar hafa