Fréttir - 26.06.1918, Blaðsíða 4
4
FRETTIR
L
borist tilmæli úr ýmsum áttum um
að skemtiskatturinn gangi til stuðn-
ings listum og líknarstarfsemi og
er hún þeim tilmælum sinnandi.
Synódus
hefst í dag.
Fgrirlestur séra Magnúsar Jóns-
sonar dócents um Jóhannesar guð-
spjall er í dómkirkjunni í kyöld kl.
8l/»- ^ar er almenningi aðgangur
heimill.
Úr erlenðum blðtum.
Vesáríus er tekinn að gjósa og
gýs ákahega. Fólk flýr alt úr grend
\ið fjallið og flytur alt sem forðað
verður úr skemtistöðum þeim, er
reistir eru undir hlíðum þess. Sér
eldinn og reykinn langt af hafi
utan og fylgir myrkur mikið og
móða af öskufalli.
Krenréttindamálið í Ungyerja-
landi. Nefnd manna hefur fjallað
um það að veita konum kosninga-
rétt í þingi Ungverja. Lauk störf-
um hennar svo að 4. þ. m. feldi
hún það með 11 atkv. gegn 9 að
veita konum jafnrétti þeirra.
Tisza greifi, er nú er talinn verða
muni forsætisráðherra þar í landi,
greiddi atkvæði gegn jafnréttindatil-
lögunni.
einu, sönnun þess, að enn þá ríkti
andi Krists í hugum mannanna.
Organisti í 70 ár. Nýlega er
látinn í Abergavenny á Skotlandi
maður nokkur, C. C. Caird að
nafni, 86 ára gamall, er verið hefir
kirkju-organisti í 70 ár. Var hann
afburða hæfileikum gæddur og
gerðist organisti í St. Jóhannes-
kirkju í Edinborg 16 ára gamall,
en siðar var hann organisti í mörg-
um öðrum kirkjum.
Skátaruir í Póllandi. Þjóðverjar
hafa tvístrað öllum skátafélögum i
Póllandi og víðar þar sem herstjórn
þeirra hefur blandað sér í mál
manna í löndum þeim, er þeir
hafa tekið. Bera þeir við, að upp-
reistarhugur og óhlýðni hafi gert
vart við sig meðal skátanna.
Dr. Sun Yat Sen hinn alkunni
stjórnmálamaður í Kinaveldi hefur
nú sagt lausu embætti sínu sem
allsherjaryfirmaður i hinni svo-
nefndu bráðabirgðar-herstjórn í
suðvestur-hluta ríkisins. — Þykir
þetta tíðindum sæta, með þvi að
það sé sönnun þess, að Sun Yat
Sen fái þar engu tauti við komið
spillingu þá og stjórnleysi í hví-
vetna, er þar liggur í landi. En
honum höfðu menn treyst manna
bezt til að koma þar lagi á og
kyrð.
Nýr LAX
fæst nú og framvegis
í Matarverzlun Tómasar Jönssonar
Laugaveg 2.
200 áriamaðkar
og- 10 öskjur af grammofón-
nálum óskast til kaups. A.v.á.
Bann.
Hér með er öll umferð um túnið á Laugalandi stranglega bónnuð.
Gripir sem koma kunna þar í túnið verða tafarlaust teknir fastir
og afhentir lögreglunni.
Reykjavík 25. júní 1918.
Páll Ólafsson.
cTCaitar Rarlaugar og Röíó 6öð
Wilson Bandaríkjaforseti hélt
nýlega ræðu, þar sem hann ávarp-
aði sveit »rétttrúnaðarmanna«, svo
nefnda. Spáði hann því, að endur-
fæðing hugsjónarstefnunnar yrði
afleiðing heimsófriðarins. Kvað
hann það fyrirbrigði, að 20 þjóðir
berðust gegn »makt myrkranna« í
AfmæMort,
fjölbreytt úrval
á Laugavegi 43 B.
fást ásamt massage, sunnudaga ekki siður en virka
daga, á Hotel Island. Sími 394. Viðtalstími kl. 12-6.
tÆassagQÍœRnir Suémunöur <3átursson.
Friðfinnur L. Guðjónsson.
Prentsmiðjan Gutenberg
Um Hindenburg'.
Lif hans og störf.
(Frh.)
XIV.
llit útlendinga á Hindenhnrg.
Við því er að búast að mikið hafi verið
rætt um Hindenburg síðan ófriður byrjaði.
Flestir viðurkenna yfirburði hans. En merki-
legt er að líta á, hversu óvinirnir meta Hind-
enburg og þó einna merkilegast, hvaða álit
Rússar hafa á honum. Englendingar og
Frakkar hafa reynt að draga úr gildi Hind-
enburgs;
Rússnesku þjóðinni er mjög kært að geta
litið upp til mikilmenna veraldarsögunnar,
og hefur þessa alla tíð gætt. En þeir menn,
er gæta eiga mikilsverðra starfa og Jeysa
verk sitt lélega af hendi, verða fyrir háði
og gysi. í ófriðnum milli Rússa og Japana
voru þeir Kuropatkin og Rosdjestwensky flota-
foringi einna hlægilegustu mennirnir í opin-
beru lífi Rússa. Háðbros lék um varir manna,
ef minst var á þá. Aftur á móti báru þeir
mikla virðingu fyrir japanska toringjanum
Kuroki, vegna dugnaðar hans. Og sama máli
er að gegna um Hindenburg. Hvert manns-
barn á Rússlandi veit, að Hindenburg ger-
sigraði rússneska herinn, þó að stjórnin
rússneska gerði sitt til að reyna að draga
dulur á það. Engin óvild hefur verið á milli
rússnesku og þýzku þjóðarinnar, og til voru
þeir Rússar er æsktu þýzks sigurs, vegna
þess að þá myndu þeir losna undan ánauð-
aroki rússneskra valdhafa. Margir álitu hann
vera bjargvættinn, er Ieysti hlekkina af þeim.
En Rennenkampf hefur sætt sömu örlögum
o« Koropatkin meðal þjóðarinnar. Margar
sögur eru sagðar af Hindenburg í rússnesk-
um blöðum. Ein er sú, að Hindenburg sé
sterkasti maðurinn í veröldinni og að hann
taki Ágúst Saxakonungi hinum sterka fram
að kröftum. Önnur sagan er sú að hann geti
brotið gullpening í sundur milli fingranna.
Flestar eru þó frásagnirnar um feikna áhrif
þau, er hann hefur á herinn, og er honum
líkt við Wallenstein. Forustu hans sé það að
þakka, að herinn hafi óbilandi sigurvissu og
ráðist því á óvinina með fullri fyrirlitningu
dauðans. Og þessu sé eingöngu að þakka,
að herdeildir Hindenburgs sigri Rússa, þótt
þeir séu margfalt mannfleiri. Ógurleg skelf-
ing gagntók Rússa eftir fyrstu sigra Hinden-
burgs og má líkja ógn þeirri er stafaði af
nafninu Hindenburg við ótta Rómverja við
Hannibal. þeir hugðu fyrst, Rússar, að Hind-
enburg væri nafnið á hverju leyndardóms-
fullu örlagaafli. Rússar, er dvöldu í Berlín,
héldu fyrst, að Hindenburg væri nafnið á
stórri fallbyssu, áþekkri þeirri 42 cm. Fyrstu
fregnirnar í rússneskum blöðum hermdu það,
að Hindenburg væri nafnið á herópi Austur-
Prússanna líkt og húrra bjá öðrum Þjóðverj-
um. Aðrir sögðu, að Hindenburg væri nýtt
hertæki, áður alveg óþekt og bætt var við,
að Rússar væru í þann veginn að komast
að þessu leyndarmáli og þá myndi öðruvisi
fara.
Ensku blöðin »Daily Mail« og »DaiIy
Mirror« sögðu frá því, er Hindenburg var
gerður að yfirhershöfðingja, að ófarir Þjóð-
verja í PóIIandi hafi verið svo miklar og að
þýzka þjóðin hafi ekki trúað sigurfregnum
þjóðverja, og því hafi keisarinn neyðst til að
gera Hindenburg að yfirhershöfðingja. En þá
hlyti almenningsálitið í þýzkalandi að breyt-
ast, því enginn yrði gerður að yfirhershöfð-
ingja, nema sigurvegari, og því hlyti þjóð-
verjar að draga þá ályktun, að.Hindenburg
hafi sigrað í raun og veru. En annað blaðið
bætti því við, að tilnefningin hafi verið gerð
til þess að hræða Rússa. Raunar meta mörg
ensk blöð Hindenburg að verðleikum og er
hægt að lesa margar skringilegar lýsingar á
Hindenburg í þeim. »Hindenburg soppleikari«
var nafnið á sögu, er stóð í »Times«.
(Frh.)