Fréttir

Eksemplar

Fréttir - 08.07.1918, Side 4

Fréttir - 08.07.1918, Side 4
4 FRETTIR Khöfn. 7. júli, kl. 12 1S. Senðiherramorð. Sendiherra Þjóðverja í Rússlandi, Mirbach greiíi, hefur verið myrtur. frá Suínr-yifríku. Hin alvarlega uppreisn í Suður-Afríku hefur verið bæld niður. jtýr Rússakeisari. Einvaldssinnar í Rússlandi hafa tekið Irkutsk í Síberíu. Michael stórfursti er útnefndur keisari yfir Stóra-Rússlandi og heldur með her manns til Moskva. €ftinua9nr Rhonða. Vistabirgða-ráðherra Breta er orðinn þingmaður úr flokki verkamanna, Clvne að nafni. Vátryggiö eigur yðar. Tbe Britlsb Domlnlons General Insurance Company, Ltd., tekur sérstaklega að sér vátrygging á innbúnm, vörum og öðru lausafé. — Iðgjöld hvergi lægri. Aðalumboðsmaður Sími 681. Grarðar Gíwlason. Kaupirðu góðan lilut. þá mundu hvar þú fékkst hann. Nýkomið til Sigurjóns. líanilla Verk. Segldúkur. Lóðarbelgir. Síldarnelagarn. Snyrpispil. O 1 í u p i 1 s. Svuntur. S i ð k á p ur. Alt ódýrast hjá Sigur jóni Péturssyni. Sími 138. Haínarstr. 18. Rakhnífar. Miklar birgðir af rakhnífum eru komnar. Peir sem hafa pantað bnífa geri svo vel og vitji þeirra. Pantanir afgreiddar svo fljótt sem hægt er út um land. Rakarastofan, Pósthússtræti 11, Reykjavík. Eyjólíur Jónsson. Þeir sem vilja tryggja sér fóðursíld, ættu að tala sem fyrst við Viðskiftafélagið Sími 701 Kirkjustræti 12 Prentsmiðjan Gutenberg Guy Boothby: Faros egypzki. 209 mér söguna um Pthames, töframann kon- ungsins, að svo miklu leyti, sem þér þekkið til hennar. Bæði er það, að hún kemur verk- efni minu við og auk þess er það ekki nema sanngjarnt, að eg fái að heyra hana fyrst við höfum múmíuna hans hérna á skipinu hjá okkur«. Faros hvesti á mig augun eins og hann ætlaði sér að grenslast eftir því, hvort nokk- uð sérstakt mundi búa undir þessari uppá- stnngu minni, en eg held að hann hafi ekki getað séð neitt þess háttar á svip minum. »Já, það er mjög sanngjarnt«, sagði Faros eftir stundarþögn. »Meðan þér eruð að mála myndina, skal eg segja yður alt sem eg veit um þetta, og þar sem maður þessi er nú ættfaðir minn og eg hef kynt mér æviferil hans, lætur það að líkindum, að eg þekki alt það viðvíkjandi ævikjörum hans, sem á annað borð hefur verið hægt að fræðast um. Ptahmes, eða sá sem Ptah elskaði, eins og nafn hans þýðir, var sonur Netrúhóteps, en hann var prestur við. hið mikla Ammons- musteri og vildarmaður Ramsesar konungs annars. Væntu menn sér mikils af honum alt frá fæðingu hans, því að guðirnir höfðu látið hann fæðast undarlega vanskapaðan, en það er alkunnugt, að þeir menn, sem guð- irnir leggja slíkt á, hafa þá aftur annað til 210 að bera í ríkulegum mæli. Má vera, að eg hafi tekið líkamslýti mín að erfðum frá hon- um. Regar í æsku var sveinninn merkilega hneigður fyrir alls konar dulspeki, og hefur það að líkindum ráðið mestu um, að faðir hans kom honum undir handleiðslu kunn- áttumannsins Hapev, er var allra manna vitr- astur og margfróðastur, og ól hann sveininn upp, en hann var iðinn og kostgæfinn og bar ást og virðingu til helgisiðanna, og var því sízt að undra, að hann tæki öðrum fram er honum voru samtímis, enda tók hann svo skjótum og góðum framförum, að orð- rómurinn um gáfur hans og skarpleika barst að síðustu Faraó til eyrna. Var hann þá kvaddur á konungsfund og skipað að sýna listir sínar, en konungi fanst svo roikið til um þær, að hann tók hann í hirð sína og gerði hann sér handgenginn. Var honum þá borgið upp frá því. Fór vegur hans vaxandi með ári hverju, svo að hann varð að síðustu einn af helztu mönnum landsins, ráðgjafi konungs, orðlagður spámaður og fremstur allra kunnáttumanna konungs. En þá rann upp stjarna ein í landinu Midían, er verða skyldi á vegi hans, eins og skrifað stendur — og verða honum að falli, og þessi stjarna var Gyðingurinn Móses, er kom til Egyfta- lands og reis á móti Faraó jafnframt því sem 211 hann beitti töfrum þeim, er menn aldrei höfðu þekt slíka, en þessi hluti sögunnar er svo þjóðkunnur, aðóþarftvirðistaðsegja hann upp aftur. Nægir það að geta þess, að Faraó kallaði ráðgjafa sína á fund, en þeirra var Ptahmes fremstur og var þá orðinn fulltíða maður. Leitaði konungur nú ráða til hans. Ptahmes sá það í hendi sér, að Gyðingur- inn mundi gerast keppinautur sinn. Vissi hann þegar bvað verða mundi, og lagði það til að gegna kröfum þeim er Móses gerði, að leyfa ísraelsmönnum að fara burt úr landinu í friði. En þetta vildi Faraó ekki heyra nefnt og gaf vildarmanni sinum það til vitundar, að þessi tillaga hans væri sér ekki eingöngu ógeðfeld, heldur mundi hann einnig að öllum líkindum missa hylli kon- ungs, ef hann bæri hana fram aftur. Gyð- ingarnir gengu enn á ný fyrir Faraó og sýndu honum yfirburði sína. Þeir töluðu skýrt og skorinort við konunginn og hótuðu honum hefndum, ef hann yrði ekki við kröfu þeirra. En Faraó var þrálátur og vildi eng- um sönsum taka og engin heilræði heyra, en af því leiddi tjón og bölvun fyrir alt Egyftaland. Móses fékk því til leiðar komið fyrir kynjakraft töfra sinna, að fiskarnir 1 sjónum lágu dauðir, og vatnið í Níl eitraðist svo, að það varð óhæft til drykkjar, en

x

Fréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.