Fréttir

Eksemplar

Fréttir - 15.10.1918, Side 3

Fréttir - 15.10.1918, Side 3
FRETTIR 3 Fréttir. Rosta 5 anra elntakið i lausasölu. Fyrir fasta kaupendur 1 kr. á mánnði. Aufílýwiiifrnverð: 50 aura hver centimeter i dálki, miöað við fjórdálka blaðsíður. Algreiðtnla í Aiistui'- stræti VY, stmi 831. Við anglýsingrnm er tekið á af- greiðslnnni og í prentsm. ttutenberg. Útgefandi: Félag í Beykjavík. Ritstjóri: Guðm. Guðinundsson, skáld. Sími 448. Pósthólf 286. Viðtalstími venjulega kl. 4—5 virka daga á Óðinsg. 8 B uppi á lofti. (Frh. af 1. síðu.) Amerískir blaðamenn eru nú á ferð í Englandi og fengu áheyrn hjá Georg konungi í Sandringham i gærdag. Annar Bandarikjaherinn hófst handa á laugardag- inn undir forustu Robert Builard hershöfðingja. Pershing verður há-yfirhershöfðingi alls Bandaríkjahers, en við forustu fyrsta hers þeirra tekur í hansst að Hunter Legget hershöfðingi. Italir eru nú fimtán enskar mílur frá Durazzo, og bandamenn eru í suð-austurhluta Montenegro. Paye, sendiherra Bandaríkjanna í Bretlandi er ný- kominn til New-York alvarlega sjúkur. Jökulhlaup af Kötlug’osum. (Nl.) Við gosið 1660 kom um hátta- tíma 3. nóv. jökulhlaup niður að Höfðabrekku, »með ofurmáta mikl- um vatnsþunga«, féll það út í Kerlingadalsá og gekk um 90 metr- um hærra upp í það »takmark er kallast Múli, fyrir austan bæinn á Höfðabrekku«, heldur en hin næstu tvö þar á undan. Hélst vatns- renslið »með misþungum straumi« þar niður, til þess um morguninn hinn 5. nóv., en svo komu ný hlaup hinn 7. og 8. og þá hljóp á bæinn á Höfðabrekku, sem þá stóð undir fjallinu og braut kirkjuna, en degi siðar sópaðist burl kirkjan og því nær allur bærinn, svo að varla sást steinn yflr steini. Síðan var Höfðabrekkubærinn bygður uppi á Qallinu 480 fet yfir sjó. Hlaupin héldust fram yfir þ. 12. s. mán. Gengu þau eínnig yflr Álftaver og 4 jarðir eyddust þar nærri að tún- um og engjum. Þessi jökulhlaup báru fram kynstur af sandi og grjóti. Það er sagt að eftir hlaup- in hafi verið þur fjörusandur suður af Höfðabrekkuhálsi, þar sem fiski- skip sátu áður við færi á 40 metra dýpi. Þá tók af útræði við Skíp- helli og ströndin jóksf alstaðar mjög á þessu svæði. Jökulhlaupin 11.—12. maí 1721 eru ein hin mestu, er menn hafa sögur af. Hinn 11. maí tók Katla að gjósa kl. 1 e. h., en stundu síðar hljóp jökullinn yfir mest- allan Mýrdalssand; hlaupið klaufst um Hafursey, en aðal-magn þess rann milli hennar og Höfðabrekku- heiðar. Kl. 3 kom annað hlaup miklu meira og bar það svo marga jaka á sjó út, að ekki sást út fyrir isinn af hæstu fjöllum. Síðan losn- aði ísinn sundur og barst vestur með landi alt í Reykjanesröst. — Margir jakar stóðu grunn 3 vikur sjávar frá landi á 140 til 200 metra dýpi, þar til er brimið braut þá. f'egar þessi mikli jökull rann fram gekk sjór á land með allri suður- ströndu alt í Grindavík, og tók sumstaðar skip og hjalla, en jakar II. JEíerlíii 14. október. Berlin: Svar Pjóðverja til Wilsons féll bandamönnum þeirra vel í geð. London: French lávarður skýrði frá því, að af 790 manns á »Leinster« hafi 193 verið bjargað. Eftir skýrslu ílotamálastjórnarinnar vantar 335 menn af hinu vopnaða kaupfari »Otranto«, er flutti Banda- rikjaher, og menn hræddir um að þeir hafi farist. Eim- skipið »Kashmir«, er rakst á »Otranto«, er komið í skozka höfn og hersveitum þeim er á því voru skipað á land heilum á húfi. III. If*a,rís, 14. októbgr kl. 15. Fótgönguliðsorrustur á vesturvígstöðvunum. Sunnan Cateau hafa Frakkar hrakið á norðurbakka skurðsins síðustu leifar óvinanna, er enn veittu viðnám. Spánverjar leggja hald á þýzk skip í spánskum höfnum. Algeymings fögnuð vekur það í blöðunum að Frakk- ar hafa tekið Laon og liásléttuna þar, — þykir sá sigur hinn þýðingarmesti. Mikið er og af því sagt, hve fögn- uður borgarbúa hafi verið mikill, er Frakkar frelsuðu þá úr höndum Þjóðverja. Talsverðar lofttruflanir urðu af nýju í gær kl. 2, og eru því skeyti frá Berlín og París stutt og ógreinileg nokkuð, _ enda er þetta aðeins ágrip af þeim. — Nú birtast hrezk loftskeyti fyrsta sinni — frá Korsea. IY. Kerlín 14. október. í fám orðum sagt skýra skeyti Pjóðverja frá færslu þeirra á stöðvum sínum milli Oise og Aisne aftur á bak, og segja alt vel ganga, þrátt fyrir nokkur áhlaup á með- an af bandamanna hálfu. Blöð Svissa segja að nú fái að sjást, hvort Wilson sé alvara með að semja frið samkvæmt yfirlýsingum sínum, eða hann búi yfir hrekkjum og landvinninga- ætlunum. »Times« hefur það eftir Balfour, að eigi sé ólíklegt, að unt verði að lúka nú ófriðinum með sæmd. »Manchester Guardian« segir 3/i neðri málstofunnar vilja eindregið frið semja á grundvelli Wilsons. Parísar-blöðin eru eigi jafn friðsamleg sem hin brezku. íhalds-flokksbrotið í prússneska þinginu felst í einu Melodier fra alle Lande. Norges Melodier. Danmarks Melodier. Hjeramets Bog. Alnæs Harmoniumalbum. Harmoniumspiilerens Under- holdningsbog. Hver Mands Eje. Grieg Harmoninraalbnm Dnr & Moll. Fæst nú alt heilt og samstætt i ^ljéSjxrahnsinu. komust 60 melra á land upp í Vestmanneyjum af sjávarganginum. Jökulhlaupið gekk jafn-hátt Höfða- brekkufjalli óg hefur þá verið 200 —250 metra á þykt eða dýpt. Rað tók af grasbrekkur allar í fjallinu upp undir hamra og flutti roeð sér 5 stór björg úr fjalls-öxlinni fyrir ofan bæinn. Hlaupið tók af bæinn Hjörleifshöfða, sem síðar var bygð- ur uppi á höfðanum, flutti burt Drang sem þar var, nærri tvitugan á hæð og annað eins ummáls og sópaði burtu grasi-vöxnum hálsi milli Seldals og Léreftshöfuðs, sem tók yíir 5 kýrfóðursvelli. Fá íylti hlaupið Skiphelli og stíflaði Kerl- ingardalsá. Daginn eftir um morg- uninn kl. 7 kom stórt vatnshlaup með ishrafli yfir hinn háa jökul- skafl er aðal-hlaupið hafði kastað fram og gerði í hann djúpa far- vegi. Kvöldið hinn 17. október 1755 og nóttina eftir hljóp Kötlujökull ákaflega og kvísluðust hlaupin í ýmsar áttir. Aðalhlaupið fór niður milli Hafurseyjar og Höfðabrekku beint á Hjörleifshöfða og klaufst um hann og svo út á sjó. Stóðu jöklarnir á 80 metra dýpi og þar myndaðist nes út í sjóinn af jökl- um, grjóti, sandi og aur. Á einum jöklanna var klettur eins hár og wstærsta kirkjan í Mýrdal þótt hún stæði upp á endann.« Árið 1823 hinn 26. júní gaus Katla og jökullinn hljóp. Aðal- hlaupið fór venjulegan veg milli Höfðabrekku og Hafurseyjar, en önnur flóð með jakaburði flæddu yfir Mýrdalssand beggja megin við Álftaver. Mj'rdalssandur breyttist töluvert, hækkaði, og jökulkvíslar og farvegir urðu aðrir en fyr. í Álftaveri urðu allmiklar skemdir og bærinn Bólhraun lagðist í eyði. Við seinasta Kötlugos 1860 hinn 8. mai voru hlaupin í minna lagi. Fyrsta hlaupið skiftist um Hafurs- ey, rann nokkuð af því niður far- veg Múlakvíslar, en nokkuð fór austur í Skálm. Miðhluti Mýrdals- sands var auður; siðar fóru þó önnur smáhlaup yfir sandinn miðj- an. 1 hlaupum þessum jókst sand- urinn milli Kerlingardalsár og Hjörleifshöfða sumstaðar nær 800 metra út á við; hlaupin tóku gras- brekkur austan undir Höfðabrekku- fjalli og skemdu engjar og haga á nokkrum bæjum í Álftaveri.

x

Fréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.