Fréttir - 25.10.1918, Page 3
FRETTIR
3
Fréttir.
Kosta 5 anra eintakið í lausasölu.
Fyrir fasta kaupendur 1 kr. á mánnði.
AngflýsmgaTerð: 50 aura
hver centimeter i dálki, miðaö við
fjórdálka blaðsiður.
A1 greiðisla í Anstur-
stræti 17, sirni 331.
Við augrlýsingnni er tekið á af-
greiðslnnni og í prentsm. tlutenberg.
Útgefandi:
Félag i Rejlijnvtk.
Ritstjóri:
Gnðm. GuðmumlsHOii,
skAld.
Sími 448. Pósthólf 286.
Viðtalstími venjulega kl. 4—5 virka
daga á Óðinsg. 8 B uppi á lofti.
^tkvæíagreiíslan
um sambaiidsmálið.
í gær fréttist talning úr Suður-
Múlasýslu; þar sögðu
667 já og 35 nei.
41 seðill var dæmdur ógildur.
í Húnavatnssýslu sögðu
550 já og 10 nei.
6 voru dæmd ógild.
Fregnin um Vestur-ísafjarðar-
sýslu í blaðinu í gær var ekki ná-
, kvæm jáin áttu að vera 2 færri
eða 294 og nei-in voru einu atkv.
of reiknuð áttu að vera 52.
Svo segja reikningsfróðir menn,
að alls hafi nú verið talin 10267
atkvæði í landinu, þar af 9339 já,
716 nei og 212 ógildir og auðir.
€inlynði og margtynði.
Hannesar Árnasonar fyrirlestrar.
Reykjavík, 1918—’19.
I.
Hannes Árnason batt styrkinn af
sjóð sinum »til eflingar heimspeki-
legum visindum á íslandi« þvi
skilyrði meðal annara, að styrk-
þegi skyldi að lokinni utanför sinni
dvelja vetrarlangt í Reykjavík og
halda þar opinbera fyrirlestra.
Þessa fyrirlestra ætla eg nú að
byrja mánudaginn 28. okt., kl. 9
siðdegis í Bárubúð, og halda þeim
siðan áfram vikulega á sama stað
og tíma, og er það einlægur vilji
minn, að þeir mættu verða sem
samboðnastir tilgangi Hannesar
Árnasonar og Reykvíkingum til sem
mestrar andlegrar hressingar og
þrifa. Til þess hefur Hka sjóðurinn
aflað sér stærsta húsnæðis bæjar-
ins, að menn þurfi ekki frá að
hverfa fyrir rúmleysi. Og þar sem
fyrirlestrarnir eru ókeypis fyrir
hvern mann, er þess vænst, að því
fólki, sem vill leita sér mentunar
og þroska, muni ekki þykja tíma
sinum illa varið til þess að hlýða
a þá. Væntanlegum áheyrendum
úl hægðarauka hef eg líka gert
yhrlit það, sem hér fer á eftir. Eg
Kiew: Nikolaj stórfursti er enn á lífi í Dilder-höll á
Krím og hefur eigi að heiman farið.
Christiania: Hægri menn hafa unnið stór-sigur við
kosningarnar. Vinstri menn mistu sjö sæti og jafnaðar-
menn eitt. Hægri menn höfðu 50 000 atkv. meiri hluta,
en vinstri menn 20 000 færri en við síðustu kosningar.
II. Ir*arís 24. október kl. 15.
Frakkar eru komnir yfir skurðinn austan Grand-
Verly. Áköf þýzk áhlaup, og orrustur milli Oise og Serre,
einkum norðan Meslre-Court. Stórskotaorrustur á há-
sléttunni austan Vouziers.
Frá í-*eil>íii.
Serbar hafa náð víggirðingum Bukowitch, norðaustan
Aleksinatz eftir harða orriístu. Gengur þeim og Frökkum
þar sóknin mæta vel.
í september komu og fóru úr frakkneskum höfnum
eimskip samt. 5.709.000 lesta.
Cuba hefur lagt 51 miljón franka til ))frelsisláns«
Bandaríkjanna.
III. lirezkar íregfnir í nótt (útdráttur).
Bretar hafa sótt fram 20 mílur milli Seheldt og Cateau,
tekið mörg þúsund fanga og hergögn. Bruay, Bleheris og
Espain tekin. Frakkar sækja mjög á gegn ákafri skot-
hríð Pjóðverja, og Bandaríkjaher sækir gegn 30 herdeild-
um Pjóðverja milli Argonne og Meuse. — Stórskotahríð
á Metz.
ítalskir tundurspillar hafa ráðist á St. Giovanni di
Padua í Albaníu. — Bretar sækja fram í Vestur-Síberíu
til Krasnoyarsk og Japanaher er kominn til Irkutsk. —
Belgakonungur og drottningin komu til Brússel í gær í
tveim flugvélum.
Brezka þingið hefur samþykt með 274 atkv. gegn
25, að frumvarpið um kjörgengi kvenna skuli fara til
annarar umræðu í þinginu. •
Bækur.
Pessar bækur óskast keyptar:
Ernst v. d. Recke: Lyriske Digte.
Hall Caine: l>en evige Stnd.
Svava. Ljóðmseli Magn. Grímssouar,
Brynj. Oddssonar.
Páll Jónsson: Skin og skuggi.
Svedenborg: Vísdómur englanna.
Ritstjóri Jt^rétta vísar á.
FrejjiMtir og Freyjifár
eftir
Steingrím Matthíasson
er endurprentað og fæst hjá öllum bóksölum.
get ekki nógsamlega brýnt fyrir
mönnum, að þessir fyrirlestrar eru
heild, þar sem hver býr í hendur
öðrum, allir stefna að einu marki,
og ályktanir verða dregnar af öllu,
sem sagt hefur verið i síðustu fyrir-
lestrunum, svo að menn geta að
eins vænst að hafa þeirra full not,
ef þeir sækja þá alla. Yíirlitið ætti:
1) að geta sýnt mönnum fyrirfram,
hvort þeir eiga þangað nokkurt
erindi, svo að þeir komi ekki á
fyrstu fyrirlestrana út í bláinn og
sjálfum sér hvorki að gamni né
gagni, en taki þar rúm þeirra, sem
betur eiga þar heima. — 2) að
hjálpa þeim, sem fyrirlestrana
sækja, að skilja þá sem heild og
skipa hverjum hlut í rétt sam-
hengi, þó að það gefi að skilja,
hve erfitt er að semja yfirlit yfir
20 fyrirlestra í svo stuttu máli. —
3) að hjálpa þeim að rifja efnið
upp fyrir sér, sem það vilja, því
vafasamt er, að mér endist nokk-
urn tíma tóm til þess að gera bók
úr fyrirlestrunum, og þess verður
a. m. k. langt að bíða.
II.
Einlyndi og marglyndi eru fyrst
og fremst tvær andstæðar stefnur
í sálarlífi hvers manns, þar sem
öllum er eðlilegt á víxl að stefna
að því að viða nýju efni í sálar-
lífið og koma á það kerfun og
skipulagi, að vera á víxl opnir við
margskonar áhrifum og beina at-
hygli og orku að einu marki, að
vera á víxl eins og hljóðfæri í
hendi lífsins eða ráða sjálfir leikn-
um. Sumir menn hallast þó fyrir
eðlisfar eða uppeldi svo greinilega
á aðra hvora sveifina, að orðin
»einlyndur« og »marglyndur« má
nota sem skapgerðarlýsingar. En
mörgum verður örðugt að kjósa
um auð og samræmi, fjölbreytni
og orku, breidd og dýpt, við-
kvæmni og framkvæmni. Þá verða
einlyndi og marglyndi tvær sjálf-
ráðar lifsstefnur, sem gerast mönn-
um ihugunarefni og skapa vega-
mót í lifi þeirra og þroska. Eftir
að eg hef gefið fyrstu skýringu
efnisins, sný eg mér að þessum
sjálfráðu lífsstefnum, og reyni að
ræða þær í einu frá sjónarmið al-
mennrar sálarfræði og svo, að
varpað sé ljósi á sum einkenni-
legustu fyrirbrigðin í sálarlífi og
menningu nútímans. Má búast við,
að það geti haft meira hagnýtt
gildi að benda á ýmis þroskamörk
og'þroskaleiðir, er velja megi um,
en þó að beinar lifsreglur væru
lagðar. Þannig gef eg yfirlit yfir
þann auð kosta og leiða, sem blas-
ir við sálinni, og að hve miklu
leyli hún getur fært sér hann í
nyt (3. fyrirl.). Því Qölbreytnin á
við margar hömlur að etja, og
til þeirra allra svara vissar teg-
undir einlyndis. Þar er fyrst að
gæta sérhæfingar og samhæfingar
þjóðfélagsins (verkaskifting, sið-
ferði, siðvenjur o. s. frv.), sem
leggja svo mörg bönd á frumeðli
manna, en um leið gera lífið vanda-
minna, og geta því orðið kostir
kjörnir af frjálsum vilja (4. fyrirl.).