Fréttir - 25.10.1918, Side 4
4
FPETTIR
Endurtekningin getur af sér van-
ann, sem er dæmdur mjög mis-
jafnt frá einlyndu og marglyndu
sjónarmiði, en verður þó alt af
einn merkasti þátturinn í heil-
brigðri lífernislist (5. fyrirl.). t*á
stefnir sjálfs eðli sálarinnar að
kerfun og samhengi, samræmi og
framkvæmdum. 1 því sambandi
verður gerð grein fyrir byggingu
skapgerðarinnar, afstöðu ýmissa
gæfuleiða (nautn, gleði, hamingja),
viljaþreki og sjálfsvaldi o, s. frv.
(6.—7. fyrirl,). Loks er orka sálar
og líkama svo takmörkuð, að það
eitt setur fjölbreytninni þröngvar
skefjar. Og sú takmörkun ræður
þvi, hve langt verður komist í
marglyndi og í hvaða myndum öfg-
ar þess koma fram )8. fyrirl.).
Eins og framkvæmdin er meginrót
einlyndisins, má rekja flest í marg-
Iyndinu til viðkvæmninnar, því
hæfileikinn að verða fyrir áhrifum
og þörfin á því verða ekki að
skilin. Viðkvæmnin er bæði sjálf-
ráð og ósjálfráð, fjölhæf og einhæf,
frjó og ófrjó. Hún á sér dulargervi
sín og bregst í mörg líki (9.—10.
fyrirl.). Þannig getur hún komið
fram sem tilfinningaþörf eða jafn-
vel tilfinningasýki (11. fyrirl.), sem
íhugunarþörf eða íhygli, en hún
getur aftur af sér vafahyggjuna
12.—13. fyrirl.). Úr öllu þessu er
svo leikhyggjan ofin, þar sem
maðurinn situr sem áhorfandi sjálfs
sín og annara við straum lífsins,
án þess að láta hann ná tökum á
sér. En leikhyggjan (14.—15. fyrirl.)
og draumalífið, líf í listum og í-
mynduðum heimum (16. fyrirl.),
eru lífernislist marglyndisins á
hæsta stigi.
Bæði einlyndi og marglyndi geta
þurkað upp lindir sálarinnar og
endað í dáleysi, sem líka getur
lagst á æskumenn, svo auður lífs-
ins opnist aldrei fyrir þeim. Um
dáleysið og ráðin við því (kjör-
sýni, smbr. víxlyrkjuna) fjallar 17.
fyrirl. Þá verður reynt að dæma
milli listrænnar og siðrænnar lífs-
skoðunar og sýna tilverurétt vand-
ræðamannanna og hversu þeir eru
á sinn hátt nýtir í framsókn menn-
ingarinnar (18. fyrirl.). Þá eiga
síðustu 2—3 fyrirlestrarnir að
sýna, hvernig miðla má málum
milli einlyndis og marglyndis,
hvernig sitt á við á hverju aldurs-
skeiði, benda á leiðir eins og líf
í andstæðum, andlega víxlyrkju,
einnig í fjölbreytni o. fl. Þrátt fyr-
ir allar hömlur á að vera hægt
að benda á fyrirmynd þroska og
fullkomins lífs, þar sem öll per-
sónan fær að njóta sín í samræmi,
eins og allir partar trésins í vexti
fagurs viðar. Honum eru eins og
manninum takmörk sett, en hann á
sér þó bæði sterkari stofn, djúpar
rætur, sein sjúga næringu úr
skauti jarðarinnar. og víðar limar.
sem breiðast við Ijósi og lofti him-
insins, gefa ilm og skugga og bera
fullþroskaða ávexti.
Sigurðnr Nordal.
Skófatnaður
tilheyrandi þrotabúi verzlunarinnar »Von«, Laugaveg 55
hér í bænum, verður seldur þar með miklum afslætti
næstu daga. Búðin verður opnuð laugardaginn 26. þ. m.
kl. 10 árdegis.
Bæjarfógetinn í Reykjavík, 24. október 1918
Jóh. Jóhannesson.
Kristján Ó. Skag’fjörð
Rey kj avi k
Umboðssali Heildsali
Talsimi 647 Pósthólf 41 I
Hefur umboð fyrir hina stóru tóverks-verksmiðju
Hall’s Barton Ro'pery Go. Ltd., Hull
sem nú selur mest og bezt tóverk til landsins.
Kaupmenn! Munið eftir að spyrjast fyrir um verð
hjá mér á Manila, Yacht-manilla, Tjörukaðli, Sigtóverki,
Tjöruhampi o. s. frv. áður en þið festið kaup annarstaðar.
Til þessa tíma hefur verksmiðjan afgreitt allar pantanir.
í lieildsölu til kaupmanna: Eldspýtur (Rowing)
Export-kaffí, Chocolade, Konfect, Vélatvistur, Önglar, Skilvindur
(Fram og Daiia), Hall’s Distemper, Botnfarfi o. fl., o. fl.
Áður en Hljóðfærahúsið flytur
verða nótur seldar með 10% afslætti út
vikuna ef keypt er fyrir 5 kr. minst í einu.
H1 jóðfærahúi^ Reykjavíkur opið kl. 10—7.
Á Laufásvegi 3
fæst hárgreiðsla, höfuðþvottur, höfuðnudd, andlitsböð og
handfágun. Fyrir konur og karla. Opið 10 f. h. — 6 e. h.
Magnþóra Mag'núsdóttir.
Afgreiðsla „Frétta”
er í Austursítræti 17, sími 231.
Hvað er í tréttum?
Eldgosið
er nú með versta móti þessa
dagana. í gær var í Vik öskufall
mikið og dimt sem um nótt. Urðu
menn að kveikja Ijós þar þótt
annars væri skýlaus himininn og
sólskin þar sem askan ekki lagð-
ist yfir. Héðan úr bænum sást
gosmökkurinn skýrt og sveigði
hann til suðurs undan vindinum.
í morgun var austangola hér og
þá ekki að sökum að spyrja, alt
loftið þrungið fínni ösku, sem
nístist undir tönn. Má búast við
öskufalli hér í dag ef áttin breytist
ekki.
Fimtugsafmæli
á Helgi Sveinsson bankastjóri á
ísafirði í dag.
»Fréttir« flytja honum heilla-
óskir hinna mörgu vina hans fjær
og nær.
Hæstaréttardómur
er fallinn í máli því er Ben. S.
Pórarinsson höfðaði gegn land-
stjórninni fyrir að vera sviftur
vínsölu með bannlögunum. Hæsti-
réttur sýknaði landstjórnina og
dæmdi Ben. S. Þór, til að greiða
500 kr. í málskostnað.
Samskonar dómur féll í máli frú
M. Zoega.
Botnía
fór í gærkvöldi áleiðis til Kaup-
mannahafnar. Meðal farþega voru:
Jón Magnússon forsætisráðherra
og frú hans, Sigurður Sigurðsson
lyfsali, Chr. Fr. Nielsen kaupm.,
Loftur Guðmundsson kaupmaður,
Sveinn Björnsson málaflutningsm.,
H. Tang kaupm., R. P. Riis kaupm.,
Árni Riis verzlunarstj. C. L. A.
Trolle kapt., Gísli Ólafsson stöðv-
arstj. og frú, O. Forberg símstjóri,
Jón Ólafsson læknir, Þorfinnur
Kristjánsson prentari, Ingvar Olafs-
son kaupm., Kristján Torfason
kaupm., Lud. Kaaber bankastjóri,
Magnús Sigurðsson, bankastjóri,
H. Tofte bankastjóri, Þorvaldur
Pálsson læknir, ungfrúrnar Irma
Olsen, Ásta Zoega, frú Margrét
Árnason, stúdentarnir Óskar Borg,
Arngríinur Valagils, Jónas Jónas-
son, Sveinn A. Sigurðsson, Magn-
ús Konráðssón og margir útlend-
ingar.
A.ug-lýseii<iwir geri svo vel að snúa sér þangað.
Kaupendliir geri svo vel að snúa sér þangað.
Par er tekið við nýjum áskriíendum.
Nótur nýkomnar
í meira úrvali en nokkru sinni áður í Hljóðfærahúsið.
„c7rdííiru eru 6azfa auglýsingaBla&ið.
Prentsmiðjan Gutenberg.
Björgunarskipið »Geir«
fór í gær að tilhlutun lands-
stjórnarinnar með tunnur, salt og
matvörur frá landsverzluninni til
sveitanna sem útilokast hafa frá
samgöngum vegna eldgossins.
Norðanátt var og gott útlit fyrir,
ef sú átt héldist, að hægt yrði að
koma vörunum á Iand þar austur
á söndunum, sem annars eru alveg
hafnlsusir. Vona menn að Geir
takist að framkvæma þetta nauð-
synjaverk, sem gera má ráð fyrir
að geti orðið svo ervitt að ekki
væri öðrum skipum fært að fást
við það.