Fréttir - 28.11.1918, Page 4
4
FBETTIR
inga. Nærri heillar aldar hörð
stjórnmálabarátta er til lykta leidd
og sigursæl orðin þrátt fyrir and-
róður einstakra mauna, er heldur
kusu fyrra ástandið eða eggjuðu
til skilnaðar (í ímynduðu skjóli
Northcliffs blaða-eiganda!). En
allar ófriðar-hörmungarnar munu
brátt hverfa og nú, er alþjóða-
friðarráðstefna hefst, er kominn
tími til fyrír íslendinga að búa sig
undir komu friðarins, og frjálsra
viðskifta. Væri vel við eigandi, að
fulltrúi frá hinu frjálsa, fullvalda
Islandi mætlí á alþjóða-friðarráð-
stefnu. Þvi að vel má svo fara,
að þar verði rædd mál, er snerti
hagsmuni íslands og betri viður-
kenningu allra þjóða á fullveldi
laridsins, en viðtöku slíks sendi-
manns er ekki hægt að óska sér.
Dönum er annars falið að sjá um
viðurkenningu fúllveldisins, en þrátt
fyrir það er íslandi heimilt, sam-
kvæmt samningnum, að senda slík-
an fulllrúa á friðarfundinn. Þetta
mál snýr úl á við, en hcima fyrir
biða ótal störf eftir friðnum, svo
sem afnám Landsverzlunar-einok-
unarinnar, endurreisn fiskiveiða-
flotans, fjármál landsins, er komin
eru í megnustu óreiðu vegna styrj-
aldarinnar o. fl. Er þegar kominn
tími til að fara að athuga þær
breytingar, er gera verður og und-
irbúa frjáls viðskifti, svo að þjóðin
geti fagnað friðnum og orðið að-
njótandi þeirrar blessunar, er hann
mun flytja landsmönnum.
Hlutleysingi.
minst í kirkjum landsins.
Með þeim sjálfsögðum fyrirvara,
að ekki verði neitt til að hefta
framgang sambandslaganna úr
þessu, svo að þau geti gengið í
gildi næstkomandi 1. des., eins og
gjört er ráð fyrir í frumvarpinu,
hefur biskupinn með bréfi dags.
2. þ. m. lagt fyrir presta landsins,
að þeir minnist hinna mikilsvægu
tímamóta sem hin nýju sambands-
lög marka í sögu þjóðar vorrar,
á þann hált sem þeim þykir best
við eiga, í prédikunum sínum
næstkomandi 1. snd. í aðventu,
sem að þessu sinni einmitt ber
upp á 1, desember.
Hvað er í íréttum?
Skólarnir.
Kvenna- og kennara-skólinn voru
settir í gær sem í ráði var. For-
spjallsvísindanemendur háskólans
munu eiga að koma til viðtals í
dag. Jón docent Aðils hefur kenslu
(Frh. frá 1. síðu.)
Perð Wilsons.
Nú er það gert opinberlega uppskátt, að Wilson
muni leggja af stað á friðarfundinn á þriðjudaginn er
kemur eða miðvikudag, Ekki mun dvöl hans í Evrópu
verða lengri en 6 vikur. Franski og ítalski sendiherrann
munu verða í för með honum (frá Ameríku).
Flugárásir á J>1*aland.
Bretar hófu stöðugar flugárásir á Pýzkaland í októ-
ber 1917. Voru farnar á þessum 12 mánuðum, þar til
er vopnahléð varð, 709 ferðir, og kastað sprengingum á
374 stóra bæi og 209 flugstöðvar, er gerðar höfðu verið
tii varnar Rínarlöndum, og auk þess á ýms önnur her-
virki 125 að tölu.
Ferð Bretakoiiungs.
Georg konungur mun koma til Frakklands í kvöld,
vera í nótt í Montreuil-sur-mer. Á fimtudagsmorgun (í
dag) mun hann, ásamt prinzinum af Wales, fara í bif-
reið til Etaples og taka þar lest til Parísar. Pangað mun
hann koma kl. 2,30.
Meðíerðin á liei'föiigiiiii.
Hr. Erzberger hefir sagt við blaðið Norddeutsche
allgemeine Zeitung, að þýzka stjórnin hafi samkvæmt
tillögum sínum samþykt, að ef Bretastjórn gæti fært
sönnur fyrir þannig meðferð á breskum föngum, að
gagnstæð væri alþjóðalögum, þá skyldi þeim hegnt, er
þar um væru sekir.
Massag-elæknir
Guðm. Pétursson
Hótel ísland nr. 25
Viðtalstími lcl. 1—3 fyrst um sinn.
RITFANGAVBRZLUN
Theódórs Árnasonar,
Sími 231
Sími 231
17 AUSTURSTRÆTI 17
Alls konar pappír:
Póstpappír, Embættisbréfapappír, Þerripappír,
Teiknipappír, Umbúðapappír,
Umslög.
Reikningaeyðublöð, Reikningabækur, Vasabækur, Visitkort.
Ritblý.
Bréfspjalda-albúm, Smámynda-albúm, Myndabækur, Bréfspjöld.
Litarkassar.
1 heildsöiu til kaupmanna og bðksala:
----- Vasabækur margar tegundir. ---
Mnn lægra verð en hjá heildsölnm hér.
ÍÞrengir
ósRasí tií að selja
„c&rdttir" nú þegar.
á laugardaginn. Lagadeildin tekur
til starfa á mánudag. Um hina
skólana mun eigi full-ráðið. En
það mun héðan af verða á valdi
skólastjóranna, hvenær þeir taka
til starfa.
Botnía
mun fara kl. 10 á föstudags-
morguninn.
Um Sterling
mun alt óráðið enn.
Halldór Hansen
læknir hefir nú lengi verið veikur.
Er hann nú kominn á fætur og
getur að líkindum tekið til starfa
í næstu viku.
t fyrrahvöld
var talið að dáinn væri 231
maður úr pestinni hér í borginni.
Síðan hafa nokkrir menn dáið.
Skarðið er orðið æði slórt.
1 barnaskólannm
eru nú allir á svo góðum bata-
vegi, að talið er að þeir séu úr
allri hættu. Nokkrir eru farnir og
margir komnir á fætur. í barnahæl-
inu þykir skarð fyrir skildi, þar eð
farnar eru kvennaskólameyjarnar.
Jarðarför nngfrú lngileifar Zoega,
dóttur Geirs T. Zoéga rektors
mentaskólans, fór fram i gær.
Ut úr skólanum báru kistuna
nokkrir sjöttubekkingar skólans,
en inn í kirkjuna vinir rektors og
út kennarar skólans. Var viðstadd-
ur fjöldi manna.
Greftraður
var í gær Jóhann ættfræðingur
Kristjánsson. Inn í kirkjuna báru
kistuna samverkamenn hins látna
á 2. skrifstofu stjórnarráðsins, en
út stjórn Sögufélagsins.
ltanghermi
var það í »Lögréttu« í gær, að
jarðarför Guðmundar Magnússonar
rithöfundar fari fram næstk. laug-
ardag. Jarðarförin getur ekki orðið
fyr en eftir helgi, sakir veikinda
ekkjunnar. Ráðgert var eitt sinn
að jarða á laugardag, og veldur
það rangherminu.
Hjúkrunarnefndin
hefur beðið »Fréttir« að geta
þess, að hjúkrunarfólk vanti í
barnaskólann. Bregðið fljótt við til
hjálpar!
Kveikingartími
fyrir bifreiðar og reiðhjól í
Reykjavík kl. 4.
Prcntsmiðjan Gutenberg.