Frækorn - 01.01.1900, Page 8
8
FRÆKORN.
Henry Roeliefort,
hinn alræradi írakkneski stjórnleysingi
(anai kisti) var gerður útlægur og hon-
um visað til Nýju-Caledóníu. Einn
dag, er hann er úti að ferðast þar,
finnur hann þarlendan raann, sern
er að lesa biblíuna „Hvað er þetta!"
segir hann, „er þessi vitleysa líka
komin hingað?'' — Það er sannar-
lega gott fyrir þig,“ svaraði maður-
inn, „þvi að án þessarar vitleysu
myndum vér fyrir löngu hafa étið
þig.“
;^ifí og þetÍQ.
Gyðingarnir og Jesiis. Einkar-merkileg hreyfing
er nýlega byrjuð á ftúslandi. Sumir af
hinum atkvæðamestu mönnum G-yðinga hafa
komið saman til að endurskoða dóminn
yfir Jesú, og eftir nákvæma og óhlut-
dræga rannsókn eru þeir komnir að þeirri
niðurstöðu, að Jesús hafi verið ranglátlega
dæmdur og liðið dauðann saklaus. Vér
leyfum oss að tilfæra fáein orð afþví, sem
einn þessara endurskoðunarmanna ritar:
— — „Kæru bræður, leyfið mér að tala
til yðar í allri einlægni. Ver endurskoð-
endur erum eftir alvarlega rannsókn
á hinum helgu ritum komnir á þá föstu
skoðun, að Jesús af Nasaret sé hinn sanni
messías og frelsari heimsins. En vér krefj-
umst þess ekki, að þér trúið oss, fyr en
þér sjálfir með því að rannsaka málið eruð
komnir til viðurkenningar þess, hvílíkar
hræðilegar afleiðingar þetta morð hefir haft
fyrir land vort og þjóð.“
Til þess að fá þessu máli enn hetur fram-
gengt fara þessir menn fram á að kalla
saman ráðstefnu, þar sem það gæti orðið
fyllilega skýrt fyrir Gyðingum.
Ymis orð ritningarinnar koma fyrir oss
með miklum krafti við þessar einkennilegu
fréttir. Vér setjum hér þessi orð: „t’eir
(Gyðingar) skulu flýja á náðir drottins og
til lians miskunnar á hinum síðustu tímum.“
Hós. 3, 5. „Þeir skulu renua augum til
mín, til hans, sem þeir hafa gegnumstung-
ið.-‘ Sak. 23, 10.
Leó Tolstoi, hinn rúsneski greifi, sem án
efa er einn af merkustu mönnum og rit-
höfundum þessarar aldar, hefir ritað marg-
ar bækur, er allar hafa vakið mestu eftir-
tekt, og flestar hafa þær verið þýddar á
höfuðmál heimsins. Tolstoi er einhver
hinn heitasti talsmaður kærleikans og
mannúðarinnar. Kristindómurinn er trúar-
brögð kærleikans. Sagan eftir hann, sem
byrjar í þessu tbl., er merkileg af því, að
hún undur-fagurlega setur fram þessa
kristindómsskoðun.
Sjóundadags-adventistar, Sá boðskapur, sem
þessi trúarflokkur boðar heiminum, er
prentaður á 32 af helztu málum heimsins.
þeir eiga 12 stórar prentsmiðjur og bókaút-
gáfu-stofnanir (,,forlagshús“) á ýmsum stöð- ,
um í heiminum. Þeir gefa út 43 tímarit
— vikulega, mánaðarlega og hálfsmánaðar-
lega. Þeir hafa gefið út hér um bil 800
bækur. Síðan 1854 hafa þeir selt bækur
fyrir 32,750,000 kr.
í næsta tölublaði verður meðal annars mynd
af hinum heimsfræga prédikara C. H. Spur-
geon ásamt grein um hann.
„Geislar frá hinu spámannlega orði" heitir fræð-
andi ritgerð, sem byrjar að koma í næsta tbl.
rr,^L,nrn*iemur dt Þ- 1. og 16. íhverjum m'xnuði.
* * ctJrxUl 11 Kostar hér á landi 1 kr. 50 a., íVesturhcimi
60 cents. Argangurinn borgist í tvennu lagi: fyrir
1. apríl og fyrir 1. október. Afgreiðsla blaðsins er í
Aldar-prentsmiðju, Iteykjavík.
TJtg. og ábyrgðarm.: David 0stlund, Keykjavík.
Aldar-prcnt8miðja.