Frækorn - 15.03.1900, Qupperneq 1

Frækorn - 15.03.1900, Qupperneq 1
Braeður, livað sem satt er og sömasamlegt, hvað réttvíst er, hvað sklrlíft er, hvað elskuvert er eða gott afspurnar, hvað dygðugt er, hvað lofsvert er, gefið því gaum.“ — Fil. 4, 8. — 1900. REYKJAVÍK 15. MARZ. 6. BLAÐ. ^Gorgun eilífðorinnor. Lag: „Ég man þá tíð.u Sá kemur dagur, þá í dýrð ég skal hjá drottni vakna með hans leystum lýðum; og frelsaður í fögrum himins sal ég fæ hann sjá og hlýða’ hans rómi blíðum. Ó sæla gleði’ í vorum fagra stað, þá söngurinn yið hástól lambsins hljómar. Með hug og von vér höldum því á stað, er heyrir trúin, — sem þá fjarlægt ómar. Vor Jesús leiðir vini sína víst; hans vemd um nótt sem dag þá yfirskyggir. Og andans sverð, hans orð, bregst allra-sízt, í öllum þrautum það oss veginn byggir. Æ, bíð þú drottins; — undurstutt er tíð; þðtt æði stormur, ólgandi sé dröfnin, á lífsins morgni hverfur hel og stríð. Lít himins til; þar blasir friðarhöfnin. Skapti S. Halldör88on. — Hvað er líf, sem deyr? Gröfinsvarar: Horfin von! Nei, segir Kristur, líf, sem deyr, er hveitikornið í jörðu. Því verður sáð í forgengilegleika, en það rís upp í óforgengi- legleika; því verður sáð i veikleika, en það rís upp í krafti. Ég er upprisan og lífið. Hver, sem trúir á mig, hann mun lifa, þðtt hann deyi.—Hvílík orð mitt í forgengileg- leikanum! Ég ímynda mér, að fyrir þessum orðum hafi fjöllin skolfið, nóttin orðið björt, og innileg frelsisandvörp farið gegn um alla tilveruna. — Zach. Topelíus. Jíf Þans ^ncegð. J6h. 1. 16—18. Eftir Otto Witt, fyrverandi prest á Zúlúlandi. Það er orð fult náðar og sann- leika, að maður er til, sem er full- komnaður, sem vér getum komist í samfélag við — maður, sem heflr hjarta fyrir oss, af því að hann hefir þolað vor kjör og þess vegna — af því að guð hefir í honum sameinað alt það, sem náð og dýrð heitir — getum vér án hliðsjónar til nokkurrar verðskuldunar vorrar komist til hans og meðtekið í honum alt, sem hýr í guði. Alt — náð, sannleikur, kærleikur og réttlæti —- hefir hann sameinað í honum, í manninum Jesú Kristi, hann, sem sjálfur er guðs sonur, geisii hans dýrðar og ímynd hans veru, hann, sem fyrir óréttláta menn var tekinn og krossfestur, hann, sem dó fyrir vorar misgerðir, og er uppvakinn til vorrar réttlætingar, svo að vér meg- um hafa traust og von til guðs. „Af hans gnægð.“ „Enginn hefir nokkurn tíma séð guð; sá eingetni sonurinn, sem er í föðursins skauti, hann hefir sagt oss af honum,“ Og

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.