Frækorn - 15.03.1900, Page 8

Frækorn - 15.03.1900, Page 8
48 F R Æ K 0 R N. af öpum kominn í öndverðu. En hér um bil tveim árum seinna kom það alveg óyggjandi í ljós, að halar þessara villi- manna væru dýrahalar, sem þeir höfðu bundið við sig sem skraut til hátíðabrigða Það reið apakenningunni að fullu.“* Þess ber að gæta, þegar menn vilja krjúpa á kné fyrir hjáguði vorra tíma, því, sem menn nefna vísindi, að það er töluvert umbreytanlegra en hjáguðir heið- ingjanna, sem voru úr tré eða steini. Yér eigum að varast að segja skilið við hina gömlu opinberun, sem hefir staðist óhögguð í baráttunni fram á þenna dag, og taka í staðinn mannakenningar um þá hluti, sem gerst hafa fyrir þúsundnm ára. 2. Regdel, tengdafaðir Mósesar. V. lj. segir, að „í 2. Mós. 217 og 3, 1 eigi sér mót- sögli stað þar sem tengdafaðir Mósesar er á fyrra staðnum nefndar Regúel, en á síðari staðnum Jetró.“ — Ekkert er þó að segja um þessa „þversögn“ annað en það, að tengdafaðir Mósesar gat ósköp vel heitið báðum nöfnunum. Erik Nyström doktor í guðfræði segir um þetta: „Regúel. Líklega hinn sami sem Jetró. Hann er nefndur Regúel í 2. Mós. 2, 18 og í 4. Mós. 10, 29, sem að líkind- um hefir verið hið eiginlega nafn hans, meðan Jetró („hans hátign“) var tignar- titill.“** Þeasi „þversögn" er hér um bil eins alvarleg eins og það mundi vera að skrifa um konung Egyptalands, sem hét Ramses, og nefna hann Faraó, sem er það nafn, er ritningin altaf hefir á honum. (Þó er Faraó að eins titill). (Framh.) * Miiller-Eggen: „Et Blik paa vor tid.“ Kristiania 1891, bls. 290, 291. ** T)r. Erik Nyström: Biblisk Ordbok, Bls. 179. íjiift og Jiefla. „LJóslð" og Gyðlngarnlr. V. Ij. flytur i síð- asta tbl. fréttir um það, sem reyndar fyr hefir heyrst, nl. að sumir Gyðingar hafa í hyggju að hætta við að halda heilagan hinn sjöunda dag vikunnar, meðal annars af þeirri ástæðu, að þeir missa árlega fleiri miljónir króna með þvi að þeir geta ekki verzlað á þeim degi. — Það lítur út fyrir að þessi fregn gleðji ljóss-málgagnið meira en sú hreyfing, sem um tíma hefir verið uppi á Rússlandi meðal Gyðinga um að taka trú á hinn krossfesta Jesúm Krist, því að á þá hreyfing hefir blaðið enn ekki minst einu orði. — Það er ekkert fagn- aðarefni, að Gyðingar eða aðrir menn falla frá orði guðs lifanda. Og ef ritstj. Y. lj. vill trúa orði drottins í Jer. 17, 21—27, þá getur hann þar fengið vitneskju um það, að ef Gyðingar hefðu haldið hvíldar- dag drottins betur heilagan, en þeir hafa gert, þá mundu þeir enn í dag sitja sælir og öruggir í Jerúsalemsborg. Yér leyfum oss að tilfæra fáein orð af þessum spá- dómi: „Svo segir drottinn: . . . helgið hvíldardaginn eins og ég hefi boðið feðr- um yðar .... Ef þér hlýðið, segir drott- inn, svo að þér berið enga byrði í Jerú- salems hlið á hvíldardegi, vinnið enga vinnu á honum, þá skulu um þetta hlið inD ganga konungar og fyrirliðar, sem sitja í Davíðs hásæti, á vögnum og hest- um, þeir og þeirra fyrirliðar, Júðamenn og Jerúsalems innbúar;og þessi staður skal eilíflega byggður vera . . . En ef þér gegnið mér ekki að halda hvíldar- daginn og enga byrði að bera í gegn um Jerúsalems hlið á hvíldardegi, þá mun ég eld kveikja í borgarhliðinu, sem eyðileggi Jerúsalemshorg og slokkni ekki.“ Vegna óhlýðni þeirra rættust hin síðari orð þessa spádóms, en ekki hin fyrri. Útg. og ábyrgðarm.: David 0atlund, Reykjavlk Aldarprentsmiðj a,

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.