Frækorn - 01.11.1901, Blaðsíða 1
I
orn..
1901.
RJSYKJAVÍK 1. NÓVEMBER.
21. TBL.
Búa ófriðurinn.
Ur „Den kommende Konge“.
Eftir: James Edson White.
Það hefur lengi verið pólitisk sann-
færing Breta, að Engil-saxar væru
útvaldir af guði, til þess að verða
drottnarar alls heimsins; og jafnvel
þó maður verði að játa, að áfengis-
bölið og aðrir meinvættir hafl fylgzt
með ensku sigurvegurunum inn í
hin herteknu lönd, þá ber þó jafn-
framt að viðurkenna það, að alstað-
ar þar sam hinar brezku hersveitir
hafa rutt sór veg, þar hefur gleði-
boðskapurinn haft greiðari aðgang,
hvort sem vér nú skoðum það sem
beina ráðstöfun guðs, mannkyninu
til heilla, eða vér að eins þökkum
það vilja og tilhlutun Englendinga,
eins og þeir sjálfir virðast gjöra.
Stríðið i Suður-Afríku hefur tvær
hliðar.
Árið 1652 stofnaði Indó-hollenzka
fólagið nýlendu við Góðrar-vonar-höfða
á suðurodda Afríku, er vera skyldi
áfangastaður fyrir skip félagsins,
víðs vegar á ferðum þeirra milJi Hol-
lands og Indlands. 33 árum síðan
settust að í nýlendu þessari nokkrir
frakkneskir Húgenottar, er flýðu föð-
urland sitt fyrir ofsóknum Lúðvíks
XIV., sem nam úr gildi Nantes-réttar-
botina, er veitti mótrnælendum frið-
land á Frakklandi. Þannig blönduð-
ust saman hollenzkir og frakkneskir
mótmælendur í Suður-Afríku, og því
er það, að á meðal Hollendinga þar
rekur maður sig á frakknesk nöfn,
svo sem Joubert og Cronje.
Árið 1806 slógu Englendingar eign
sinni á Kap-nýlenduna, án nokkurrar
verulegrar mótstöðu, og 1814 var sá
eignarréttur viðurkenndur af Norður-
álfuríkjunum.
Nýlendubúamir í Suður-Afríku
(Hollendingar og Frakkar) áttu í sí-
felldu stríði við hina innfæddu, og
keyrðu þá undan sér norður á bóg-
inn; og brátt stofnuðu hinir hol-
lenzku Búar (bændur) nýlendu þá,
sem nú er nefnd Óraníu-lýðveldi, svo og
suður-afríkanska lýðveldið Transvaal.
Þangað flutti Páll Krúger (Krúger
ríkisforseti), þegar hann var 10 ára
gamall, og 4 árum seinna barðist
hann við hina innfæddu Zúlúa af
engu minni hreysti og harðfengi en
landar hans nú gegn Bretum, og
voru þó mótstöðumenn hans ferfalt
fleiri en liðsmenn þeir, er Wellington