Frækorn - 01.11.1901, Side 8
168
FRÆKORN
verzla með sannfæring og at-
kvæði.
10. Að kenna mönnum að meta og
sjá kosti andstæðinga sinna.
S. J. J.
Elding gefur lí(.
Elding vekur dauðadána stúlku
til lífsins.
Frá Larned, Kas, er ritað til amer-
íska blaðsins „Skandinaven" (14. á-
gúst síðastl.):
Að því er virtist dó dóttir McPreaz’s
5 ára gömul, laugardagsmorgun.
Greftrunarsiðirnir voru ákveðnir og
„líkið" var um búið á vanalegan
hátt, án þess að nokkur gat tekið
eftir neinum lífsmörkum.
Á leiðinni til kirkjugarðsins varð
mikið þrumuveður, og elding sló
niður í líkvagninn, reif kistuna sund-
ur, ljóstaði hestana í rot og gjörði
ökumanninn höggdofa.
Þegar þeir, sem fylgdu eftir, kom-
ust nær til vagnsins, sáu þeir litlu
stúlkuna sitjandi upprétta í kistunni
og heyrðu hana kalla á móður sína.
Þeir stóðu um stund eins og mátt-
vana, en þegar þeir gátu hreift sig,
fóru þeir að taka barnið og létu
aka því heim til móður sinnar.
Foreldrar barnsins trúa fastlega,
að eldingin hafi verið send frá himn-
um, og fólkið í grenndinni talar sín á
milli á líkan hátt. Læknarnir segja,
að barnið hafi legið í stjarfa (katalepsi),
og að eldingin hafi vakið hana úr
honum, en margir eru þeir, sem trúa
því fastlega, að hún fyrir undraverk
sé risin upp frá dauðum.
Barnið er að frískast og virðist
ekki að hafa haft neitt mein af því,
að hafa legið í kistunni heilan sólar-
hring.
Eldingin skemmdi aðra hlið vagns-
ins.
Sumir, sem viðstaddir voru, segja, að
undarlegt ljós hafi sézt. á himni, áður
en eldingunni sló niður, og meðan
menn voru að ræða um þetta, kom
þruma og eldingarflug, sem vakti
barn$.
Til allra lesanda „Frækorna",
Utg., sem nú er bÚBettur á Seyðisfirði,
biður alla þá, sem skrifa sér, að senda
bréf og sendingar með utanáskrift: D.
Östlund, Seyðisfirði.
Kaupendur ■ Reykjavík eru beðnir
um að snúa sér til herra Jóns E. Jóns-
sonar í Aldar-prentsmiðju, ef vanskil
skyldu verða íi^ útsendingu blaðsins.
HAUKUR HINN UNGI,
heimilisblað með myndum, flytur ein-
göngu úrvals-sögur og fróðleik, spak-
mæli, skríflur og gátur. Kaupið
hann, áður en upplagið þrýtur.
y^~Gjalddagi „Frækorna'* er I. okt.
FRÆKOEN
koma út h. 1. og 15. í hverjum mánuði,
kosta hér á landi 1 kr. 50 au., í Vest-
urheimi 60 cents. Borgist fyrir 1. okt.
Ursögn ógild nema komin sé til útg. fyrir
1. okt. og úrsegjandi sé skuldlaus fyrir
blaðið.
ÚTQ. 00 ÁBYBOBABM,: DAVID 0BTL.UND
ALDAB-PRENTSMISJA.