Frækorn - 27.03.1902, Side 3

Frækorn - 27.03.1902, Side 3
35 sé guðs orð. Hún talar sannleika. Menn- irnir eru einmitt slíkir, sem hún lvsir !>eim. Hefði biblían ekkert annað verið en manna Orð, þá hefði hún vafalaust verið allt öðruvísi, en hún er. Hefði hún. t. d. verið rituð af nokkrum lærðum mönnum, endurskoðuð af nokkr- um frægum guðfræðingum 'og út gefin af klerkafélagi, þá hefðum vér aldrei heyrt neitt um ofdrykkju Nóa, ósannsögli Abrahams, vansæmi I.óts, þrætu Páls og Barnabasar, afneitun og svardaga Péturs o s. frv. Þessir útgefendur mundu án efa hafa sagt, þegar þeir komu til frásagna um slíka viðburði: ^Það er ekki gagnlegt að segja neitt frá þessu. Það er svo löngu liðið. Það mun einungis skaða efnið« Og svo hefðum vér fengið æfisögur íullkominna manna í staðinn fyrir sögur um auma syndara, eins og vér erum. Og hvað hefði með því verið áunnið? Vér mundum hafa lesið þær og sagt: »Þessir menn voru fullkomnir. Eg óska að eg gæti lifað eins og þcir; en það er ómögulegt.« En þegar hinn alvaldi lælur skrifa æfi- sögur manna, þá verður þar að eins sann- lcikurinn skrásettur. Hjá oss mönnum er það svo vanalegt, að syndir, sem höfðingjar og mikilsháttar menn drýgja, eru ekki nefndar, meðan yfirsjónum fátæklinga er haldið á lofti í björtustu ljósi. I guðs orði er það allt á annan veg. Guð gefur oss ekki rafnið á ræningjan- um á krossinnum eða á föllnu konunni, sem þvoði fætur frelsarans, tlé heldur á konunni, sem farisearnir ákærði, henni, sem Jesús sagði við : »Eg sakfeili þig ekki, far þú héðan og syndga þú ckki framar. « En hann tekur Davíð konung niður frá hásætinu, klæðir hann í hárklæði og ösku og neyðir fram úr hjarta hans þetta ang- istaróp: »Miskunna mér, guð, eftir þinni gæzku, og afmá mínar yfirtroðslur eftir þinni miklu miskunsemi.« Þegar hann svo hefur öðlast fyrirgefn- ingu og er orðinn hreinsaður, hvítari en snjór, þá lætur guð skrásetja þénnan myrka kafla um fall hans; hann gengur inn í söguna og verður spottaður af guðsafneiturum um þrjú þúsund ára tíma- bil — en á sama tíma lesinn af réttlætis- hungrandi og þyrstandi syndurum til fullvissn um, að frelsun er möguleg fyrir þá. Niðurl. Dans. Er alls konar dans skaðlearur ok synd- samleeur? — o— Þar sem þér segið »allskonar«, þá cr það yðar meining, að dansi geti verið ým- islega háttað, og er það rétt álitið. Satt að segja hefur mér oft þótt það leitt, að kunna ekki að dansa. Því eg hef oft verið svo hrifinn af gæzku guðs og af því að mcga heita barn hans, að eg hef óskáð að geta látið gleði mína í Ijósi á þann hátt. En eg kann ekki að dansa og vcrð því að láta mér nægja með að syngja. Slíkur dans mundi ekki vera skað- legur né syndsamlegur, heldur þvert á móti meðmælingarverður. En hinn vanalegi dans. — 1 sjálfu sér getur dansinn naumast talist syndsamleg- ur. Samt sem áður getur hann auðveld- lega orðið valdur að synd og skaða, þar sem hann,eins og ástæða er til að ætla, drcgur hugann frá alvarlegri störfum, mið- artilað sljóvga mótstöðuafl æskulýðsins gegn freistingunum og loks, þegar hann fer fram um nætur í rykugum herbergjum. Sannkristinn maður hlýtur vegna samvizku sinnar að halda sér frá öllu því, sem annaðhvort stríðir beint á móti guðs orði eða er þannig háttað, að álíta vcrður, að Kristur hefði ekki viljað taka þátt í þvi með honum, ennfrcmur því, sem vekur hneyksli eða getur miðað til að trufla trú- arlíf annara eða leggja fyrir þá freisting- ar. »Lagið yður ekki eftiröld þessari,« er áminning til hins trúaða. Bíblían talar hvergi um það, að hve miklu leyti dans, rpil, sjónleikir eða því um líkt sé syndsamlegt. Ur þvf verður sómatilfinningin að skera. Annars talar guð skýrt og greinilega um það, hvað vér eigum að gjöra og láta ógjört. Og boð hans eru ekki þung. Látum öss þcsa

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.