Frækorn - 27.03.1902, Page 4

Frækorn - 27.03.1902, Page 4
36 tegna hlýða honum í ollu því, sem vér skiljum af orði hans að sé hans vilji, og þá mun andi hans leiðbeina oss í þeim efnum, sem vér erum í vafa um. Og eitt er það enn, sem er víst: T’eg- ar vér söfnumst saman á landi ljóssins og friðarins hjá vorum alsæla föður og verð- um þar að nvjum míjnnum, þá verðum vér svo mikilla gæða aðnjótandi, gleði vor svo innileg og hagur vor svo dýrðlegur, að allt, semoss áður þótti hugnæmt, skoðum vér þá sem fánvian barnaleik, sem hverf- ur oss úr huga ?n saknaðar. H. M. I- FAÐIR VOR. — o— Faðir vor, drottinn á himnanna hæðum,'* helgist og blessist þitt dýrðlega nafn ; komi þitt ríki með kærleikans gæðum, kunngjör þinn vilja um heimanna safn ; fyll vorar þarfir og fyrirgef syndir; freistinga áhlaupum styrk oss í mót; bæg frá oss illu, lát blcssunar lindir biðjendur finna, þú kærleikans íót. J ón Jónsson. Smápistlar dr. X s — o— 3. Er oss nauðsynlegt að trúa á annað líf ? Já. Allar líkur eru til þess. Eg hef áður bent á, að staðhafing dr. X’s er alveg órökstödd, þegar hann segir, að trúaðir menn beri ekki þrautir og sorgir betur en hinir vantrúuðu. Allt virðist benda til þess, að trúarþörfin sé með sköpuð eðli mannsins. Flestar þjóðir, hvort sem þær nefnast kristnar eða heiðnar, hafa einhverja trú á annað líf. En ekki er þetta, orsakalaust. Hvað snertir ki istindóminn, þá skal eg minna á nokkur orð eftir einn hinn helzta lithöfund kristninnar, Pál postula. Hann scgir: »Ef vér einungis í þessu lífi settum von vora til Krists, þá værum vér hinir vesælustu allra manna.« >I.átum oss þá eta og drekka, því á morgun deyjum vér.« i. Kor. is, 19. 33. Dr. X þekkir án efa píslarvættissögu kristninnar? Hvað var það, sem styrkti1 hina kristnu til að þola alis konar þrautir og að ganga glaðir út í hinn hörmulegasta dauða ? Svarið er vafalust þetta: Trýin á annað líf. Páll postuli talar rnáli allra eftii breytenda Krists, er hann segir: »Eg hygg, að móllætingar þessa tíma séu ekki jafnvægi þeirrar dýrðar, sem við oss mun opinber veiða.« Rómv. 8, 18. Dr. X. segist hafa þekkt mann, sem ekkert hugsaði um annað líf, en hann hafi samt veiið framúrskarandi dugandi og góður maður. Pað getur verið, að slíit dæmi séu til, én annað en utidan- tekningar frá reglunni eru þau ekki. Eg skal leyfa mér að tilfæra hér fá- einar setningar eftir heimsfræga skáldið og djúpsæja spekinginn Goethe, og býst eg við, að menn meti þær jafn mikiivægar og tilfærslu dr. X’s af orðum j iofessors Cliffords um það, hvort nauðsynlegt fé að trúa á annað líf. Goethe segir: »Eg vildi alls ekki vera án þeirrar gæfu að trúa á annað líf; já, mér liggur við að scgja, að þeir menn séu dauðir íyrir þessu lífi, sem ekki tiúa á annað líf.« »Aframhald persónulegleikans kemur alls ekki í bága við það, sem eg í mörg ár het' rannsakað viðvíkjandi eðli allra lifandi skepna; þvert á móti sanntæra þessar rannsóknir mig m.eð nýjum krafti um þetta áframhald « »T’að er algerlega ómögulegt fyrir hugsandi veru að ímynda sér ekki-tilveru, eða enda hugsunarinnar og lífsins; hver ber að því leyti sönnunina fyrir ódauð- leikanum í sjálfum sér.« »Sannfæringin um áframl ald tilverunnar finnst mér leiða af hugmynd starfseminnar; því þegar cg stai fa ótrauðlega allt til dauða mírs, þá er náttúran skyld að sýna mér aðra tilveru, þegar hin yfir- standandi getur ekki lengur borið anda minn.« (Tilfært eltir »Kringsjaa«, XVIII, 10.) 4. Dónuir prests um vantrúarmenn oir ffuöleyslnitja. Svo nefnir dr. X »Brot úr ræðu eftir sr. F. W. Robertson«, sem finnur að því, hversu margir það eru, sem í þröngsýni hrópa : »Vantrúarmaður! guðleysingi!«

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.