Frækorn - 17.02.1903, Page 2

Frækorn - 17.02.1903, Page 2
FRÆKORN. 18 Hafa aldrei verið sólskinsblettir á æfi- ferli þínum? Hefur þú ekki lifað nokkr- ar dýrmætar stundir, er hjarta þitt hef- ur bærzt af fögnuði yfir verkunum guðs anda í þér? Rekurðu þig ekki á nokkr- ar þægilegar blaðsíður, þegar þú blaðar í þeirri bók, sem h'fsreynsla þín er skráð í? Eru ekki fyrirheit guðs eins og ilm- andi blóm, er gróa allt í kringum veg þinn ? Ætlar þú ekki að láta fegurð þeirra og ilm fylla hjarta þitt gleði? Þyrnarnir og þistlarnir munu að eins valda þér sársauka og hryggðar. Fyrir- lítur þú ekki gæzku guðs við sjálfan þig og hindrar þú ekki líka aðra frá að ganga á lífsins vegi, ef þú tínir þá eina og sýnir þá öðrum ? Það er óviturlegt að fylla hugann með öllum hinum óþægilegu endurminn- ingum liðinnar æfi, syndum hennar og vonbrigðum, tala um þær og hryggjast yfir þeim, þar til er hugleysið yfirbugar oss. Huglaus sál fyllist myrkri. Hún útilok- ar ljós guðs frá sjálfri sér og varpar skugga á veg annara. Þakka þú guði fyrir þær björtu mynd- ir, er hann hefur sýnt oss. Söfnum sam- an hinum dýrmætu fullyrðingum um kær- leika hans, svo að vér getum jafnan haft þær fyrir augum. Sonur guðs fór frá hástóli föðursins og sameinaði guðdóm- inn mannlegu eðli, til þess að hann gæti frelsað mennina frá valdi satans. Hann vann sigur oss til handa, opnaði himin- inn fyrir mönnunum og opinberaði þeim dýrð guðdómsins. Hann hóf hið fallna kyn upp úr hyldýpi glötunarinnar, er syndin hafði sökkt því í. Hann kom mönnunum aftur í samband við eilífan guð, svo að þeir geta íklæðst Krists rétt- læti og orðið hafnir upp að hásæti hans, er þeir hafa staðizt reynsluna í trú á endurlausnarann. Þetta vill guð, að vér sí- fellt höfum fyrir augum. E. G. WHITE. — »Gleðjið yður ávallt í drottni; og enn aftur segi eg: gleðjið yður.« Fil. 4, 4- Boðorð guðs og trúin á Jesúm- i. »Hér reynir á þolgæði heilagra, sem varðveita boðorð guðs og trúna á Jesúm.« Opinb. 14, 12. Þetta tvennt er óaðskiljanlegt. Enginn getur varðveitt boðorð guðs á réttan hátt án trúar á Jesúm; og trú á Jesúm Krist er til einsk's nýt—er dauð—, nema hún komi fram og fullkomnist í góðum verkum, og þessi góðu verk cru einmitt innifalin í því að varðveita guðs boðorð. Kristur varðveitti boðorð guðs. »Eg hélt boðorð föður míns.« Jóh. 15, 10. Vegna hlýðni hins verða margir réttlættir. »t>ví eins og hinir mörgu urðu syndugir fyrir óhlýðni hins eina manns, eins munu líka hinir mörgu fyrir hlýðni hins eina verða réttlættir.« Róm 5, ig. En þeir verða réttlættir einungis fyrir trúna á hann, eins og skrifað stendur: »RéttIæti guðs fyrir trú á Jesúm Krist til allra og yfir alla, sem trúa.« Róm. 3, 22. Aliir hafa syndgað. Og »syndin er lagabrot.« Þar eð allir hafa syndgað, getur einginn orðiðhólpinn fyrir lögmálið. Samt sem áður er lögmálið réttlæti. Skrifaðer: »011 þin boðorð eru réttlæti.« Én yfirtroðslumaðurinn getur ekki orðið réttlættur, nema hann hætti að brjóta boðorð guðs, og af sjálfum sér getur hann aldrei orðið réttlættur; ef hann nokk- urntíma á að réttlætast, þá verður hann að fá réttlæti frá annari uppsprettu, og þessi uppspretta er Jesús Kristur. Þetta sést ljóslega í Róm 3, 19—23. vers: »En vér vitum, að það, sem lög- málið segir, það talar það til þeirra, sem undir lögmálinu eru.svoað sérhver munnur þagni, og allur heimurinn verði sakfallini við guð. Þess vegna mun af verkum lög- málsius alls ekkert hold réttlætast fyrir honum; því að af lögrnáli leiðir þekking syndar. En nú er án lögmáls réttlæti guðs opinberað, sem vitnað er um af lögmálinu og spámönnunum. Það er: rétt- læti guðs fyrir trú á Jesúm Krist til allra og yfir alla, sem trúa, því að ekki er

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.