Frækorn


Frækorn - 29.03.1906, Page 5

Frækorn - 29.03.1906, Page 5
FRÆKORN 101 erþá kominn í »svefnsýkis-ástandið« (hið letargiska). Augun eru lokuð til hálfs eða þá allokuð. Lyfti maður hönd eða fæti sjúklingsins upp, fellur það samstundis niður aftur, gjörsamlega afllaust. Menn geta stungið hann með nálum án þess að hann verði þess var, því í þessu ástandi er húðin tilfinningarlaus. Öll merki um meðvitund eru horfin. Ómögulegter að koma honum í skilning um nokkuð, hann framkvæmir ekkert af eigin vilja en liggur þannig þar til hann er vakinn, með því að blása í augu honum. Annað ástand dáleiðslunnar er dá- stjarfinn, hið kataleptiska ástand. Dáleiði maður á þann hátt, sem fyr er nefnt, nefnil. að láta sjúklinginn stara á gljáandi hlut, verður maður að nota það augnablik, þá augnaráðið verður undar- lega starandi og augað sperrist upp og hætti að depla augnalokunum. Taki mað- ur þá snögglega í burt hinn skínandi hlut, þá er sjúklingurinn í því ástandi sem nefnt er »dástjarfi«. Það kemur fram á þann hátt, að hinn dáleiddi hagar sér eins og hann skyldi vera gjörður af vaxi. Lyfti maður til dæmis hönd hans upp, svo hún stendur beint út í loftið, og sleppi henni síðan, þá sígur hún ekki niður aft- ur, en helst kyr í sömu stöðu. Gjöri maður samskonar tilraun við vakandi menn, þá líður ekki á löngu, áður en höndin sígur niður, hann verður þreyttur og orkar ekki að halda henni lengur í sömu stöðu. Hinn dástjarfaði finnur ekki til þreytu. Hönd hans heldur sér í þeim skorðum, sem hún er einusinni látin í. Hin dá- stjarfaði hefir enga tilfinningu. Menn geta barið hann eða stungið með nálum, hann líður enga þraut af því, og stendur í sömu sporum, með höndina út í loftið. í þessu ástandi getur maður þó fengið hann til að hreyfa sig. Láti maður í hönd hans t. d. fýsibelg, þá fer hann að blása með belgnum og heldur því áfram án afláts, þar til fýsibelgurinn er tekinn af honum aftur. Ef maður lokar augun- um á slíkum dástjarfa sjúkling, fellur hann í »svefnsýkis« ástand það, er fyr er getið. Blási maður aftur á móti í augu honum, vaknar hann upp af svefninum. Hið þriðja ástand er »svefngöngur«. (»Somnambulismus«). Til að koma sjúkl- ingnum í það ástand, þarf hann oftast nær að hafa gengið gegn um hvortveggja hið fyrtalda. Pessar svefngöngur eru hin þyngsta tegund dásvefnsins. Sjúklingur- inn lítur út líkt og í svefnsýkisástandinu. Hann er tilfinningarlaus, og limirnir hanga máttlausir niður, en það, sem sérstaklega einkennir svefngönguástandið er, að hann ( hlýðir þeim skipunum, sem honum eru j gefnar. Skipi maður honum að standa, þá | stendur hann. Skipi maður honum að ganga, þá gjörir hann það. Hann hlýð- ir í blindni. Skipi maður honum að fara eitthvað, og setji torfærur á leið hans, hlýtur maður að undrast þann styrk, sem kemur í Ijós hjá honum. Kraftar | hans hafa margfaldast. Vilji maðurrann- j saka sjón sjúklingsins, þarf maður ekki annað en bjóða honum að lesa skrift, i þegar búið er að gjöra myrkt í herberg- j inu. Hann getur þá lesið og aðgreint j stafina, hann hefir langt um næmari sýn í en í vökunni. I slíku ástandi er maðurinn eiginlega »svefngangari.« Svefngangarinn hefirgjör- samlega mist alt vald yfir sjálfum sér. Hann hlýtur að hlýða hverju því, sem I dáleiðarinn býður, og er algjörlega á ' hans valdi. Láti maður pappa-ræmu í hönd hon- j um, og segi honum, að það sé hnífur j og að hann skuli drepa með honum ein’ j hvern þeirra, sem viðstaddir eru, gengu } hann rólega og ákveðið til þess, er hon um var skipað að drepa, og rekurpapp ræmuna af öllum kröftum í brjóst hans I þessu svefngönguástandi getur. maður ekki gert greinarmun góðs og ills. Bara hlýðir. t’egar hann svo vaknar, hefir hann glymt öllu, sem hann tók sér fyrir hönd- ur og framkvæmdi í þessu ástandi. Retta er í raun og veru ekkert annað en það, j sem vér verðum svo oft varir við í nátt- úrlegum svefni. Bezta mann í heimi get- ur þó dreymt, að hann fremji morð, eða eitthvert andstyggilegt verk. Hann dreym- ir, að hann framkvæmir þetta, án þess að nokkur hugsun vakni hjá honum, til að aftra verkinu. Regar hann svo vaknar og man eftir draumnum, þá finst honum hræðilegt, að hann skuli hafa dreymt þannig. Þá

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.