Frækorn


Frækorn - 23.05.1906, Síða 3

Frækorn - 23.05.1906, Síða 3
FRÆKORN 163 Krossinn beið hans í Jerúsalem með allri j þeirri kvöl og háðung, sem honum fylgdi, en Jesús var óbifanlegur í að ganga til krossins hæðar, hann gjörði það með fullum vilja og vitund. Það var ekki einungis á hinni síðustu göngu hans, heldur frá því fyrsta, sem hann gekk mót krossinum, og skugga krossins lagði á braut hans hvert spor, sem hann gekk. Þegar hann kom til heimsins, var það með krossinn fyrir augum. Hann kom hingað til þess að deyja. Dauði hans var ekki auka-atriði -í lífi hans. Dauð- inn var augnamið holdtekju hans; hann varð hold og bjó með oss til þess hann gæti dáið. I’egar frá byrjun stefndi líf hans að þessu — krossinum á Golgata. Var það ekki undrunarverð lífsstefna? En hvað var orsökin? Boðorð föðurs- ins. Retta er kærleikur, þetta er að gefa sig guði — að ganga á móti dauða, líf- láti, skömm og niðurlægfngu. Af því faðirinn sagði: >Gakk til krossins þarna«, stefndi hann þangað og sagði: »Egfer.« Ó, að vér kristnir menn hefðum sama lífstakmark — að vér heyrðum guðs raust, og þegar hann benti oss á krossinn, að vér þá staðfastir stefndum mót honum. Tökum eftir hvernig hann á annan hátt sýndi kærleika sinn til föðursins. Jóh. 8, 55. ’Þér þekkið hann ekki, en eg þekki hann, og ef eg segði eg þekki hann ekki þá væri eg lygari eins og þér; en eg þekki hann og geymi hans orð.« Hann sýndi kærleika sinn til föðursins með því að geyma hans orð. »Hver er nú munurinn milli þessa«, segir þú, >og hins er vér þegar höfum talað um ?« Mjög mikill munur. Vér sýnum mesta umhyggju til að varðveita það, sem vér álítum mikilsverð- an fjársjóð. Maðurinn gætir gullsins ef það er hans dýrmætasta eign. Konan geymir vel gimsteina sína af því þeir eru fjársjóður hennar. Fjársjóður Jesú J var guðs orð. Rað var ekki einungis að hann hlýddi því. Hann geymdi það eins og það, sem liann elskaði og vildi ekki að tekið væri frá sér. Menn geta veí hlýtt guði af nokkurskonar skyldurækni eða af ótta við hegningu, ef vér sýnd- um óhlýðni. Eg þekti einusinni mann, sem var mjög varkár í framkomu sinni og forðaðist að gjöra nokkuð það, sem hann áleit órétt, og þó sagði þessi mað- nr við mig eitt kvöld: »Eg vildi óska, að eg gæti trúað að guðværitil.« Hann var mjög nákvæmur í að hlýða honum, af því hann óttaðist hegninguna fyrir ó- hlýðni. Rannig var því ekki varið með Jesú. Hann hlýddi ekki orðinu einung- is, af því hann varð að gjöra það, held- ur geymdi hann það sem hinn dýrmæt- asta fjársjóð lífs síns. Ó, hversu ólíkur hann var mörgum, sem á vorum dögum viðurkenna að þeir elski guð. Vér þekkjunt fólk, sem viður- kennir að það elski guð, og þó, þegar komið er með einhverja röksemd og þeim er sagt að hún sé heimspekileg og skynsamleg, og að þeir verði að sleppa hinum eða þessum hiuta af ritningunni, þá hlusta þeir á þetta og trúa því. En ef nokkur elskar guð, sá mun varðveita hans orð. Hann vill ekki sleppa nokkr- um hluta þess til að þóknast þeim fyrsta sem kann að koma og segja: »Hefir þú heyrt að liinir þýsku guðfræðingar sern nú eru uppi liafa slept þessum hluta af ritningunni ?« Hann mundi heldur segja: Eg hirði ekki um hverju guð- fræðingar nútímans hafa slept. Rað er guðs orð; eg elska guð og vil varðveita hans orð, hvað sem öllum þýskum guð- fræðingum Iíður. Framh.

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.