Frækorn


Frækorn - 28.06.1906, Blaðsíða 2

Frækorn - 28.06.1906, Blaðsíða 2
202 FRÆKORN lingi, fyrir hönd sonarins, að Magnús skyldi í öllu hlýðnast kirkjunni, og sem tákn upp á þessa undirgefni átti kóróna konungs við dauða hans að »fórnfærast« á altari dýrðlinganna í Niðarósi. Að þessu loforði var Magnús krýndur í Kristskirkjunni í Björgvin af Eysteini erkibiskup, en legáti frá páfanum var viðstaddur ásamt 5 biskupum. Sverri Sigurðsson, sem var andstæðingur Magnúsar og varð konungur eftir hann, var sjálfstæðari mað- ur en svo, að hann vildi lúta klerkavald- inu eins og Magnús gerði. Arið 1183 tókst honum og Birkibeinurum. hans að ná á vald sitt flota Magnúsar og öllum hinum beztu dyrgripum hans, meðal ann- ars kórónu hans og veldissprota, og öllum vígsluskrúða hans. Hann átti mörg ár í stríði við kirkjuna og var, eins og kunnugt er, jafnvel bannfærður, en náði þó að verða krýndur í Björgvin árið 1194 með kórónu Magnúsar, af 4 biskupum, og meðal þeirra af Nikulási biskupi, sem bannfærði hann áður fyrri; hann setti kórónuna á höfuð honum. Hvorki Hákon Sverrisson, Guttormur eða Ingi voru krýndir. Hákon Hákonarson var næsti krýndi Noregskonungur. Það j var árið 1247. Hafði Hákon þá verið konungur í Noregi 30 ár. Einnig á hans tíma var allmikið stríð milli kirkj- unnar og konungsvaldsins. Arið 1227 | fór Hákon þess á leit við páfann að verða viðurkendur af honum og krýnd- ur. Og loks árið 1246 gaf Innocentius j VI. leyfi til þess og fól kardinála sínum Vilhjálmi frá Sabína að krýna Hákon. F*að leyfi hefir 'verið dýrkeypt. Enskur munkur, sem þá dvaldi í Noregi, skrifaði, að Hákon hefði alls orðið að borga páf- anum 30,000 mörk silfurs eða 270,000 krónur, Tjáist þessi krýning að hafa verið hin viðhafnarmesta, sem til þess tíma hafði farið fram í Noregi. Magnús lagabœtir Hákonarson var krýndur í Björgvin 1261. Næstur honum var Eiríkur Magnússon, var hann síðastur þeirra konunga, sem krýndir voru í Björgvin. Bróðir hans Hákon V. Magnússon var krýndur í Osló 1. nóv. 1299. Um krýningu lians er ekkert Sérstakt að segja og heldur ekki um Magnúsar Eirikssonar yngra, Kristófers af Bayern og Karls Knútsonar. Þeir voru allir krýndir í Osló. Aftur á móti voru krýndir í dómkirkj- unni í Rrándheimi: Kristján I. (1450) og Hans (1483) Kristján II. var hinn síðasti Olden- borgarkonungur, er krýndur var í Noregi, í Osló 1514. Friðrik I. og Kristján III. voru aldrei krýndir í Noregi, og eftir 1537 var Noregur skoðaður sem lýðland Danmerkur, og var því engin ástæða að krýna konungana í Noregi eftir það. Svo getur ekki verið að tala um Noregs- konnngaí eiginlegum skilningi fyr en árið 1813, er Noregur sameinaðist Svíaríki, og strangt tekið ekki fyr en 1814, er það fékk viðurkendan rétt sem sambandsríki við Svíaríki. í grundvallarlögum Nor- egs frá 17. maí 1814 er slegið föstu, að Noregskonungar skuli krýndir í dóm- kirkjunni í Prándheimi, og 7. sept. 1818 var hinn fyrsti norski konungur krýndur samkv. þeim lögum. Það var Karl Jóhann XIV. Hann var, sem kunnugt er, franskur að ætt, og auðvitað lítt kunnur löndum sínum og þjóð þegar í byrjun. Hann

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.