Frækorn - 28.06.1906, Qupperneq 6
FRÆKORN
206
an, en hann talar eins og vitlaus
maður.» — Og þú mundir hafa rétt
til að tala þannig — en hve miklu
meir vitnar ekki náttúran öll um sinn
höfund, sinn skapara og meistara,
heldur en úrið um hugvitssmiðinn
sinn ! Aðeins einn lítill hluti náttúr-
unnar, auga þitt, er langtum merkara
smíði en úrið er, og samt sem áður,
sumir svo kallaðir vísindamenn segja
það, að heimur þessi hafi einu sinni
verið ósamstæðar smáagnir, sem um
afar langan tíma dönsuðu og sveifluð-
ust, þangað til úr því varð heimur.
— Slíkar kenningar kalla menn
heimsspeki. Guð er ekki tekinn með.
Alt á að hafa fengið tilveru án hans.
— Já, þetta nefnist heimsspeki, en
væri réttara nefnt heimsku-speki.
Dr. X.
Kærlciki Krists til föðursins.
Eftir dr. Torrey.
Framh.
Fyrír utan söfnuðinn.
Menn segja oft: »þetta er lítilsvert.«
En það er ekki til dítilsverður hlutur.«
Hin minsta óhlýðni er skaðleg fyrir söfn-
uðinn.
Sumir yðar minnast þess, hversu ham-
ingjusamir þér voruð. En það er nú
búið að vera. Rað var einu sinni, að
þér urðuð hrifnir af að heyra fagra sálma,
en nú er það ekki lengur.
Hvers vegna?
Af því þú ert fallinn burt frá söfnuð-
inum — frá samfélaginu við guð.
»Ef þér haldið mín boðorð, munuð
þér halda minni elsku, eins og eg hélt
boðorð föður míns og held hans elsku.«
Sá, sem gjörir guðs vilja, er í innilegu
vináttusambandi við Jesúm. Um slíka
eiga heima þessiorð: »Sjá bræður mína.
Því hver, sem gjörir guðs vilja, sá er
minn bróðir, systir og móðir.« Mark. 3,35.
Nú getur maður elskað alla menn —
og það eigum vér að gjöra, en sé það
góður maður, elskar hann sinn eigin
bróður og systur og sérstaklega móður
sína með meiri innilegleika en hann
getur elskað nokkurn annan.
Engin önnur kona í heiminum hefði
getað fylt pláss móður minnar. Það
geta hafa verið aðrar konur eins full-
komnar og hún — þó ekki margar.
Aðrar konur gátu hafa haft fegri málróm
— þó ekki fyrir mínum eyrum. Hún
var móðir mín. Hjarta mitt barðist, þeg-
ar hún nálgaðist. Alt til þessa dags hefi
eg ekki getað litið mynd hennar án þess
að verða hrærður, þótt hún hafi legið í
gröfinni síðan 1877.
En nú segir Jesús okkur, að sá, sem
er hlýðinn guði, stendur honum jafn-nær
eins og bróðir, systir og móðir. O!
hvílík einkaréttindi að hlýða guði, að
vera bróðir, systir og móðir jesú Krists.
Hjá Jóh. 15, 9. stendur: »Eins og
faðirinn hefir elskað mig eins hefi eg
elskað yður, verið staðfastir í minni elsku.«
Hér segir Jesús oss, að kærleiki hans til
þess, sem heldur hans boðorð, sé eins
og kærleiki föðursins til hans. Hefir þú
nokkurntíma hugsað um hinn eilífa kær-
leika föðursins til sonarins. Hann var
ímynd föðursins Hversu undrunarverð-
ur kærleikur var föður og sonar frá ei-
lífð, áður en stjarna sást á himninum,
áður en þessi hnöttur var skapaður, áð-
ur en til voru englar, kerúbar og ser-
affar, áður en nokkuð af því skapaða
hafði fengið tilveru sína, frá eilífð elskaði
faðirinn soninn, og Jesús segir, að ef
vér hiýðum honum og höldum hans
boð, þá vill hann elska okkur einmitt
með sama kærleika og faðirinn elskar
hann með. Það borgar sig að hlýða
honum. Framh.