Frækorn - 22.11.1906, Síða 7
FRÆKORN
383
Fréttir.
Símskeyti til Blaðskeytasam-
lagsins.
(»Reykjavík«, *Dagblaðið«,»Frækorn«.)
Eftirprentun bönnuð.
Katipmannahöfn, 15 ,8.ls — Vopnaðir ræn-
ingjaflokkar af Búum gera óskunda í Suður-
Afríku. Engan veginn verður það skoðað sem
uppreisn, og óspektirnar væntanlegá þýðingar-
litlar. Botha Búahershöfðingi hefir boðið lands-
stjórninni þjónusfu sína til að bæla niður ó-
aldarflokkana.
Berlín. — 73 almennir málfundir hafa sam-
þykt áskoranir til stjórnarinnar um að opna
landamærin fyrir tollfríum innflutningi kjöts
og krefjast almennrar tolla-lækkunar á mat-
vælum. Bæjarstjórn Berlínar hefir og sent
ríkisþingi og kanzlaranum santskonar áskoranir.
Af samskotunum til þeirra, er tjón biðu i
landskjálftanum í San Francisco, hefir 1 milli-
ón (3,750,000 kr.) verið stolið.
Kaupmannahöfn, 19. nóv., 8,10 árd. - Bulow
kanzlari hélt mikla og merkilega ræðu í ríkis-
þinginu þýzka fyrir helgina. Hélt hann þar
vörn uppi fyrir stjórnmálastefnu keisarans i
utanríkismálum. Hann kvað þvi fjarri fara, að
Þýzkaland væri einangrað í heiminum. Sam-
komulag þess víð önnur ríki væri gott. Aldrei
gæti svo illa farið, að svo stór þjóð stæði hjálp-
arlaus, ef í harðbakka slæi. Reyndi nokkur
önnur þjóð að þröngva kosti þess, mundi hún
reyna það, að þar kæmi hart á móti hörðu.
„Politiken" skýrir frá, að Krapotkin fursti
láti sér einkar ant um íslands mál, og sé nokk-
ur líkindi til að hann heimsæki ísland um leið
og konungur vor í sumar komandi.
Amundsen, er sigldi „Gjaa" vestur og norð-
ur um Ameríku, er nú heimkominn til Nor-
egs og er honum fagnað með mikilli dýrð og
dálæti.
(Krapotkin fursti er Rússi og af göfugum
ættum, fxddur 1840; varð herforingi og lagði
mjög stund á jarðfraeði og landfræði. Ferð-
aðist um Síberíu og Kína, varð ritari land-
fræðisfélagsins í Pétursborg og kammerherra
hjá keisarynjunni. Á ferðum í Svisslandi og
Belgíu kyntist hann kenningum jafnaðarmanna
og gekk í alþjóðafélag þeirra slnternationale*.
Gerði hann sitt til, er hann kom heim (1872)
að breiða þær kenningar út á Rússlandi, en dul-
búinn þó' á kvöldin, því að hann var í mikl-
um metum við hirðina. Hann var þó svikinn,
svo að alt komst upp og var honum varpað í
dýflizu. Hann var síðan dæmdur til dauða,
og var líkneski gert af honum og hengt, cr
ekki náðist í sjálfan hann. Fyrst flúði hann til
Svisslands, en Rúsastjórn gekk svo hart að
stjórninni þar, að hún þorði ekki annað en
vísa honunr úr landi (1881). Pá fór hann til
Parísar og settist þar að. Hann varð sifelt
rótnæniari í skoðunum og nálgaðist mjög skoð-
anir stjórnleysingja (anarkista), æsti hann menn
mjög upp móti Rússastjórn. 1883 lét Frakka-
stjórn höfða sakamál gegn honum fyrir það,
að hann hvetti til manndrápa. Hann var þá
dæmdnr í 5 ára dýflizu-vist, en náðaður eftir
fá ár (1886). Hélt þá til Lundúna og hefir
dvalið þar síðan,en RússastjóVn hefir þar jafn-
an spæjaralið til að hafa gætur á honum, því
að hún hefir lengi haft hann grunaðan (og
ekki ástæðulaust, að sumir æfla) um að hann
hafi verið aðalforkólfur margra morðtilrauna
af hendi níhilista. — Hann er einn aí mest
metnu fræðimönnum heimsins. Fyrir fám ár-
um gaf hann út „Æfisögu níhilista eftir sjálf-
an hann" (c: æfisögu sína)r kom hún jafn-
snemma í Ameríku, Englandi, Frakklandi og
Þýzkalandi, og hafði hann fengið Georg Brandes
til að rita formála fyrir bókiuni, sem er afar-
fróðleg og skemtileg bók. Lnndsb ókasafn vort
er svo frægt að eiga hana ekki, og eru víst
eins dæmi um jafn stórtsafn. -Dbl.)
Ýmsar fréttir.
Landlœknisembcettið
er 7. þ. m. veitt Guðm. Björnssyni fyrv.
héraðslækni Rvíkur.
Prestur verzlunarstjóri.
séra Jes A. Gíslason í Mýrdalsþingum hefir
lagt niður prestsskap eftirlaunalaust og ætlar
að gerast verzlunarstjóri í Vestmannaeyjum.
K. F. U. M,
Kristilegt félag ungra manna er nú að heita
má búið að fullgjöra nýtt fundarhús í stað
hússins við Lækjartorg, sem það seldi nýja
bankanum ásamt tilheyrandi lóð. Hió nýja
hús er bygt á grunninum þar sem Félagsbak-
ari'ið var. Húsíð er fremur myndarlegt.
Afmœli.
50 ára afmæli hélt læknir, bankagjaldkeri og
stórtemplar Þórður J. Thóroddsen 14. þ. m.
„Frækorn" óska til hamingju.