Frækorn


Frækorn - 28.04.1907, Side 3

Frækorn - 28.04.1907, Side 3
FRÆKORN’ 127 sögurusls, sem sífelt er verið að unga út á íslenzku nú í seinni tíð. Pað er unun að lesa »Vafurloga«, hvort sem liugsað er um efnið eða búninginn. Efntð er göfugt, hreint, hvetjandi til dáða og drengsskapar, til umburð- arlyndis og góðgirni, til trúar á guð og hið góða og búningurinn er þessu íyllílega samboðinn. Mál séra Friðriks er sannarlegt snildarmál Hugsunin skipuleg og auðveld, en hver setning þunguð hugsun, sem ristir djúpt í sálarlíf hvers manns, sem ekki er stein- dauður. Efnið er að miklu leyti spunn- ið úr fornsögunum íslenzku eða úr þjóðtrúnni, svo sem til dæmis hinn ágæti fyrirlestur: »A krossgötum«, eða »Gunnar á Hlíðarenda«; það forna er texti, sem höf. leggur út af með sinni sérstöku sniid á þann hátt, að það getur komið hverjum nútíðar- manni að gagni. Bókin dregur nafn sitt af sögu lítilli, sem höf. nefnir »Vafurloga<. Sú saga er trúarhvöt í tilliti til íslands og íslenzku þjóðarinn- ar og framtíðar möguleika. Pað skemm- ir ekki, að sú hugvekja er eftir Vestur- íslending. Höf. segir frá föður og syni sem eru að tala saman. Faðirinn er nokkuð bölsýnn. En sonurinn þeim mun bjartsýnni. Viðburðír, sem sag- an segir frá, snúa íöðurnum og hann segir á dánarsæng við son sinn: »Vænt þykir mér um að þú ert víð- sýnn sonur og þú ert viss um, að það, sem þú sér íramundan, eru vaíurlogar, en hrævareldar engir. En mundu eftir eigin landareign þinni, um frám alt. Sérðu eigi vafurloga þar? Sjálfur áttu með þar að grafa. Frð getur enginn bannað þér. Með skóga og akra getur farið alla vega. Ovíst, að að þú sjáir þá nokkurn tíma nema í hillingum. En auðlegð úr eigin land- areign áttu sjálfur. Og að dreifa henni örlátlega út um sveitina verður ávalt fögnuðurinn mestur Bók séra Friðriks á það fyllilega skilið að hún verði sem mest keypt og lesin hér, engu siður en i Vestur- heimi. Hann á þakkir skyldar fyrir hana og orð hennar munu bera*sinn ávöxt. Tobaksnautn og veikindi. Ettir dr. med. J. H. Kellogg. Aldrei hefir verið gjört eins mikið og á vorum tímum til þess að upp- götva orsakir til ýmsra sjúkdóma. sem þ á mannkynið. Eftir því, sem menn hafa betur lært að þekkja eðli sjúk- dómanna í raun og veru, hafa þeir einnig. séð að bezta lækningin er að útrýma orsökum veikinnar. Þess vegna hefir stöðugt verið lagt meira og meira kapp á að komast fyrir orsakirnar. Menn hafa rannsakað loftið sem vér öndum að oss, vatnið, sem vér drekk- utn matinn sem vér etum, fatnaðinn sern vér berum á oss, húsin sem vér búum í, störf vor, skemtanir, siði vora og það, sem er umhverfis oss. Við þessar rannsóknir hafa menn fundið, tóbaksnautn er óneitanlega mjög skaðleg fyrir heilsuna. Betta er ekki bygt á vitnisburði þeirra, sem eru óvinir tóbaksnautnarinnar, heldur á vitnisburði frægra vísindamanna og hinna reyndustu lækna. Áhriý tóbaksins á blóðið. Blóðið er lífsafl, sem ílytur næringu til allra líffæra líkamans. Hin ýmsu efni sem líkaminn fær gegn um mag- ann, lungun og húðina, finnast í blóð- inu. Ef eitur kemst inn í líkamann, framkvæmir það hið eyðileggjandi starf sitt gegn um blóðið. F*að, sem

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.