Frækorn


Frækorn - 05.05.1907, Blaðsíða 4

Frækorn - 05.05.1907, Blaðsíða 4
136 FRÆKORN ir og áhyggjur ailar hverfa, og hann sér allskonar dyrðarsjónir. Eftir að hann er vaknaður, finnur hann enn um nokkurn tíma til hinna þægilegu lífgandi áhrifa af ópíumsreyknum, og þá er hann líka fær til vinnu um . tíma. En sælan er dýrkeypt: meir og meir eyðileggst maðurinn af nautn þessa eiturs, verður magnlaus og raunalegur, og veikleiki og alt, sem að honum gekk, áður en hann fór að reykja, kemur nú með nýju valdi aft- ur. Linun fær hann að eins nreð því að fá sér ópíum aftur. Og svo er ástríðan mikil, að þeir sem ópíum reykja, Ijúga og stela eins og þaó væri sjálfsagt, til þess að ná í ópíum. Það er skiljanlegt, að slíkan vana er ervitt að leggja niður, enda sagði séra Biggin, að það sé að heita má ómögulegt — nema fyrir trúna á Krist. — Og mörg alvöruorð talaði þessi trúboðs-prestur um svívirðingu þá, sem það væri fyrir brezku þjóð- ina, er vildi þó kristin nefnast, bæði að hafa innleitt eitur þetta í Kína og svo um langan tíma að hafa grætt fé á þessari voða-ginningu. — Og óttalegt var að sjá, að séra Biggin auk þess að hafa með sér stór stykki af ópíum frá Kína og Indlandi, syndi ópíum, á glösum, tilbúið til reyking- ar, með verksmiðjunafni og »Edin- borg« áprentað. Ekki hafði Bretinn sett þar: »made in Oermany« (tilbúið á Pýzkalandi), eins og hann stundum gerir, heldur kannaðist hann við »sví- virðingu eyðileggjandans.« Stjórn Kínaveldis kvað nú vera á móti ópíumsnautninni, enda er ekki langt síðan fréttir komu um það, að ópíumsnautn væri bönnuð í Kína. Nú væri því réttur tími fyrir brezku þjóðina að þvo hendur sínar í þessu máli með því að hætta að flytja óp- íum til Kína. Nú ætti að hefja inn- anríkisstríð á Bretlandi gegn þessum óvini Kínverja, að taka algerlega fyr- ir kverkarnar á þessari svívirðilegu sölu. Vonaði ræðumaður, að dagar hennar væru innan skamms taldir. A sýningunni var sérstök deild helg- uð minningu Davids Livingstones, hins mikla kristniboða og menningar- frömuðs í Afríku. Dagbækur hans, ýms áhöld hans og margir minja- gripir eftir hann voru þar sýndir og skýrt t'rá verki hans. Bretar mega og vel með gleði minnast þessa göfuga sonar síns. Minning hans lýsir eins og sól mitt í hinu mikia síngirnis- myrkri enskra brennivíns- og ópíums kaupmanna og þeirra, sem — sem hafa verksmiðjur ti! að búa til skurð- goð handa heiðingjunum. Rótt ótrú- legt sé, eru slíkar verksmiðjur til á Stórbretalandi. — Kristindóminum er gefið þetta að sök, þótt rangt sé. Menn, sem aðhafast annað eins, eru auðvitað »hundheiðnir«, þótt þeir lifi í hinu »krístna Bretlandi.* Skwgoð. — Séra Biggin sagði mér eitt mikilsvert atriði viðvíkjandi skurð- goðum, sem eg þekti ekki áður. Eg hafði heyrt því haldið fram af Evrópu- mönnum, að þjóðirnar í hinum ment- uðu heiðingjalöndum, svo sem t. d. í Kína, tilbæðu ekki skurðgoðið sjálft heldur guðdóm þann, sem það tákn- aði. Eg spurði séra Biggin, hvort þetta hefði við veruleg rök að styðj- ast. — Svar hans var á þessa leið: »Almenningurinn í heiðnu löndunum gerir enga slíka skilgreining. Og eins er um Kína. Svo skal eg nefna eitt atriði (hr. Biggin tók eitt kínverskt skurðgoð og sýndi mér): Sjáið þér þetta gat í bak skurðgoðsins? Áður en nokkurt skurðgoð er tilbeðið, verð-

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.