Frækorn


Frækorn - 23.06.1907, Blaðsíða 2

Frækorn - 23.06.1907, Blaðsíða 2
190 FRÆKORN all. Mennirnir hafa í þúsundir ára rann- sakað guðs orð; þeir gætu haldið áfram með það í þúsundir ára enn, og sífelt fundið í því nýja og dulda fjársjóði. Ef þú stæðir frammi fyrir Jesú, augliti tii auglitis, og beiddir hann um eitthvað og hann lofaði að uppfylla bæn þína, eða ef þú beiddir hann um leiðbeiningu og hann segði þér hvað þú skyldir gjöra, þá mundir þú eflausttrúa. Meðan Jesús var hér á jörðunni voru margir, sem sáu hann og gátu talað við hann, en flestir aðeins augnablik. Vér erum betur sett í þcssu efni. Vér getum fylgt honum gegnum sköpunarverkið í fyrstu kapitul- um biblíunnar (Kol. 1. 15-16.) og þegar hann leiðir þjóð sína út af Egyptalandi gegnum eyðimötkina, og vér getum ver- ið með honum frá þeirri stund hann tók á sig vort hold, alt til þess hann sté upp til himna. Allan þennan tíma getum vér fylgt honum og heyrt rödd hans tala til vor, og orð hans hafa fullkomlega sama kraft og áhrif nú, ef vér aðeins trúum. Hagnýtum oss því kostgæfilega þessi dýrmætu einkaréttindi, réttinn að tileinka oss þau orð, sem hafa kraft í sér til að endurskapa oss og uppbyggja, og veita oss arfleifð meðal hinna heilögu. Fyrst guð hefur gefið oss sitt orð, þá vill hann að við tökum það eins ogþaðværi skrif að eða talað til okkar persónulega. Að svo miklu leyti, sem vér rannsökum guðs orð, geymum það í hjörtum vorum, og lifum eftir því munum vér fyllast anda, guðs anda og iífi — lífi Krists, hinu ei- lífa lífi. Að svo miklu leiti, sem vér trú- um og tileinkum oss orðið, höfum vér í því alt vald á himui og jörðu, oss og öðrum til hjálpar. Ef það er nokkuð, sem hinn vondi gjörir sérstaka tilraun til, þá er það að halda okkur frá því að rannsaka ritning- una, Og það setn vér þurfum mest af öllu, er að rannsaka ritninguna oss til leiðbein- ingar framfara og fullkomnunar. H, M. L. Nú sé eg það. Prédikari nokkur segir svo frá: Eitt kvöld, er eg sneri heimleiðis mætti eg gömlum manni, sem staul- aðist áfram á hækjum sínum. Pegar hann kom nær, sá eg að hann var hryggur í bragði, og svipur hans bar vott um þunga sorg. Eg talaði til hans nokkrum vingjarnlegum orðunt og leiddi síðan samtalið að andlegum efnum, og spurði hattn hvort hann hefði frið við guð. »Prestur minn«, sagði hann sorg- bitinn, »eg hef nú í þrjú ár stöðugt beðið um að fá frið við guð.« »Hefir guð þá bænheyrt yður?« »Nei, en eg vildi óska að hann gjörði það.« »Pað stendur hvergi í bibliunni, að vér skulum frelsast fyrir margar bænir, heldur fyrir trúna. Pér hafið víst heyrt gleðiboðskapinn um frels- ara vorn Jesúm Krist?« Já, eg hef heyrt hann.« Æegið mér þá, hvað hafið þér heyrt um liann? »Eg hefi heyrt að hann dó á kross- inum.« »Vissulega, en fyrir hvern dóhann? »Fyrir syndara náttúrlega.« »Já, lofað sé hans heilaga nafn, Pað er satt, en eg vil að þér gefið mér ákveðnara svar; fyrir hvern dó hann?« »Fyrir okkur alla,« sagði gamli maðurinn með áherslu. Já, það er rétt, en eg óska eftir enn ákveðnara svari.« Maðurinn hugsaði sig um stundar-

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.