Frækorn - 23.06.1907, Qupperneq 4
192
FRÆKORN
vera fult hundrað þar. Eru margir þeirra
án þilfars, — þykja léttari meðferð-
ar á landi.
í Bolungarvík gengu um 30 mótor-
bátar á fiskiveiðar fyrri hluta vetrar,
en nokkuð fleiri er útá leið. —
F’egar gott sjóveður er, eru sjómenn
ávalt mjögárla dags á flakki, bæði til
að setja fram skip sín, og svo að
huga að ýmsu sem viðkemur starfi
þeirra. Hrinda þeir skipum afhlunn-
um með svovasklegum handtökum og
röggsamlegum fyrirskipunum að un-
un er að sjá það og heyra. Sést
oft knálega til ára tekið þegar þeir
hafa ýtt á flot, og beitt stöfnum til
hafs. Eru skipin nú horfin á sæ út
innan stundar með skörpu skriði. Ber
það stundum við, að einn eða tveir
af mótorbátunum dragast aítur úr
— eins og latrækir klárar. Kemur
þá upp úr kafinu að eitthvað er bil-
að í vélunum.
Þykir það vaida miklum töfum, er
þannig kemur t'yrir, að ekki eru mót-
orviðgerðir fáanlegar nær en á ísafrði.
Par sem mótorbátar eru notaðir við
fiskiveiðar, þyrfti einhver að vera, er
því væri vaxinn að konia því í lag
sem bilar eða afiaga fer í þeim. Þótt
verk þetta sé mjög vandasamt og
heimti sérstaka þekkingu, hygg eg að
þeir sem á annað borð eru smiðir
af náttúrufari geti numið það.
Sjómenn þeir, er eg heimsótti, voru
kátir og gestrisnir, og naut eg skemt-
unar og ánægju í híbýlum þeirra, sjó-
búðunum. Engann mann sá eg hér
drukkinn, þótt vín væri fyrir hendi.
Eru margir af sjómönnum hér mjög
áhugamiklir bindindismenn og sækja
vel templarafundi. Er Jónas Jensson
féhirðir félagsins, hefir verið það frá
byrjun. Meðal annara áhugsamra
félagsm. má nefna: Sigurð Kristjáns-
j son, Jóhann Bjarnason, Jón Eyfirðing,
i Kristi n Þorvaldsson, Oísla Árnason,
| jens Níelsson og marga fleiri er eg
ekkí man að nefna. Verzlanir eru 4
eða 5, og íbúar um 700 að meðtöld-
um sjómönnuuum í þeim 40 sjóbúð-
um, sem þar eru.
í Hnífsdal er fólk miklu færra, en
húsagerð er þar í fratnför. Ear er
sagt mjög fiskisælt.
í Álftafirði skiftist bygðin í 3 þorp,
mjög þéttbygð. Eru þau nefnd : Súða-
vík, Tröð og Dvergasteinn. Er Tröð
einna stærst, og tilkomumest. Þar
er barnaskóli. Hefir Friðrik Guð-
jónsson stundað þar barnafræðslu um
15 ára skeið. Er það von margra og
ósk, að hann enn um lartgan tíma
geti unnið að starfi þessu. Stór furða
er hve þolinmóður hann heíir verið
við starf þetta, þegar þess er gætt hve
laun kennara eru lág hér á landi.
Hægt mun vera að sanna, að þeir er
ganga að alntennri daglauna víunu
hafi miklu hærri vinnulaun en þeir
sem barnakenslu stunda. Breyta sú
og lúi, sem barnafræðslan hefir í för
með sér, mun vera miklu meíri en
menn alment hafa hugmynd um.
Kjör barnakennara þurfa að batna.
í Álftafirði hefir, á tveim stöðum,
verið *stunduð hvalaveiði: Langeyri
og Dvergasteinseyri. Á Langeyri er
aðeins eftir íbúðarhúsið, en á Dverga-
steinseyri er nú stunduð síldveiði af
| norsku félagi, — Hvalveiðarhúsin á
Seyðisfirði er sagt að verið sé að rífa.
Er nú hvalaveiði stunduð á tveim
stöðum á vesturlandi: Tálknafirði og
í Jökulíjörðum.
f Súgandafirði er einna fjölmennast
á Suðureyri. Verzlun rekur þar Krist-
ján kaupm. Albertsson. — Ekki all-
j langt þaðan er Önundarfjörður. Er
I hann fagur mjög, — liggur þráðbeinn.