Frækorn


Frækorn - 23.06.1907, Qupperneq 7

Frækorn - 23.06.1907, Qupperneq 7
FRÆKORN 195 »F*að væri fróðlegt að vita hvað það kemur þessu máli við?« »Rað kemur þessu máli mikiðvið , sagði presturinn, og reyndi svo með vingjarnlegum orðum — aðvörun og áminningum að vekja samvizku hans, en E. reiddist af því að hafa mist pípuna sína; reiður við prestinn og jafnvel við guð, stóð hann upp í skyndi. Presturinn frétti seinna að hann hefði bygt syni sínum út fyrir það hann gat ekki borgað honum skuld. Pessi saga er þess verð, að vér veitum henn eftirtekt. »Alt silfur og gull er mitt«, segir drottinn. Vér er- um aðeins umboðsmenn hans; prett- um ekki guð, því gjörum vér það, munum vér eins og veslings E. fáað reyna stóra óblessun. Mjög er- hætt við, að það hafi ekki verið einungis eigur hans, sem hann misti, heldur að hann hafi stofnað sálu sinni í voða. Símskeyti frá Ritzaus Bureau. Kaupmhöfn 13. júní Konungshjónin dönsku fara í kvöld frá Lundúnum til Frakklands. Vínyrkju-uppþotið á Frakklandi er að breiðast út. í nánd við Gautaborg fanst bóndi, kona hans, stjúpdóttir og börn, alt myrt. Kaupmhöfn, 18. júní Ríkisþingið rússneska (dúman) rofið á sunnudaginn. Meiri hlutinn neitaði að framselja 16 jafnaðarmanna-þing- menn, en vildi vísa málinu til nefnd- ar. Alt með spekt á Rússlandi. Konungshjónunum dönsku innilega fagnað í París. Koma heim á morgun. Nefnd í stórþingi Norðmanna legg- ur til, að veittar séu 10,000 kr. til ferða Wathneserfingja milli Noregs, Færeyja og íslands. Sjö ferðir á ári. Viðstaða konungs á Færeyjum (í sumar) ákveðin 3 dagar. Friðarþingið í Haag sest að störfum. Ýmsar fréttir. Skipsbruni. 15. þ. m. brann fiskiskipið «Nyanza« til kaldra kola hér á höfninni, það var eign Th. Thorsteinsens kauipmannc. Eldurinn kom upp í skipinu kl. 6 síðd. Ekki vita menn Ijóst hvernig hann hefir kviknað Alt, sem skipinu til- heyrði brann, einnig munir skipverja, engu varð bjargað. Skipið logaðí fram yfir háttatíma um kvöldið, þá var það brunnið of- an að sjó, og flakið sökk þar við fjöruborðið. Maður varð úti 2. maí milli Snartastaða og Leir- hafnar á Sléttu. Hann héf Vilhelm Hansson. »Sterling« kom til Akureyrar með stórstúku- fulltrúana á áætluðum degi. Templ- arar á Akureyri tóku móti þeim með iagnaðarsamsæti þá um kvöldið. Guðm. Hannesson læknir á Akureyri hefir fengið áskor- amr með fjölda nafna undir, úr bæn- um og báðum sýslunum, um að vera kyr. Hann vilja þeir fyrir engan mun missa. Fegursta veður fyrir norðan þessa dagana. Fjárkláðafregnir allískyggilegar koma hvaðanæfa. í gær kom símfregn um fjárkláða á Langanesi. Er fé rekið heim af af- rétt til böðunar.

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.