Frækorn


Frækorn - 09.08.1907, Síða 3

Frækorn - 09.08.1907, Síða 3
FRÆKORN 239 »Bjarmi og aðskilnaður rikis og kirkju. »Bjarmi« þjáist enn mjög af ótia fyrir því, að aðskilnaður ríkis og kirkju hefði þær afleiðingar, að vér fengjum »kristin- dómslausa fríkirkju« hér á landi. Vér fórum nokkrum orðum um þenn- an ótta blaðins í »Fræk« 28. tbl. — út af smágrein í »Bjarma«, 13. tbl. Nú í síðasta tbl. »Bjarma« er aftur spilað á sömu strengjum, í langri grein nm »aðskilnað ríkis og, kirkju«. Auðsætt er á öllu, að blaðið er and- vígt aðskilnaði ríkis og kirkju hér hjá oss, því þótt það segi, að »vinir kirkj- unnar« »eigi ekki að vinna á móti fríkirkju, stofnaðri í kristilegjm anda, samkvæmt hugsjón kristindómsins sjálfs«, þá sýnir greinin samt nógu skýrt, að blaðið írú- ir því, að um slika fríkirkju yrði alls ekki að ræða hér hjá oss. Blaðið virðist sannfært um, að ilt eitt liggi í þeirri hreyfingu hér, er gengur út á aðskilnað ríkis og kirkju, og segir hvað eftir annað, að hvatirnar til aðskilnaðar- ins séu aðallega þær, að koma ríkis- kirkju fyrir kattarnef, »til þess að fé hennar rynni í landsjóð, og vilja svo láta fara sem verkast vill um það, hvort hér verður nokkur kristindómur í landi j eða ekki«. F*að er algerlega rangt hjá blaðinu, að segja það, að menn alment vilji það, að eignir ríkiskirkjunnar renni í iandsjóð, ef aðskiluaður ríkis og kirkju komist á. Og jafnrangt er það að álíta, að öll kristindómsfræðsla væri að sjálfsögðu úti- lokuð frá skólum þeim, sein styrktir verða af landsfé, eftir að aðskilnaðurinn væri kominn á. Sannieikurinn mun vera sá, að þeim mönnum, sem aðallega hafa barist fyrir aðskilnaði ríkis og kirkju hér, kemur ekki alveg saman um það, hvað gera skyldi j með eignir kirkjunnar, ef ríki og kirkja væri aðskilið. Forgöngumaður fríkirkju-hreyfingarinn- ar hér, séra Lárus Flalldórsson, sem margt gott og göfugt hefir ritað um málið, er að vísu meðmæltur því, að eignir kirkj- unnar rynni í landsjóð, en hver sá, sem þekkir fríkirkjuáhuga þessa manns, hlyt- ur að kannast við, að ekki hefir hann haldið þessu fram af neinum óvildaranda til kristindómsins, heldur af því, að hann áleit, að þessi aðferð með kirkjuféð væri hin eina rétta samkvæmt eðli og anda kristindómsins. Vér trúum því heldur ekki, að »Bjarmi« vilji eigna þessum for- göngumanni aðskilnaðarmálsins annað en góðar hvatir. Jón Ólafsson hefir nýlega ritað í »Reykja- víkinni« um það mál þetta. Bendir hann meðal annars á þá leið, að mynda mætti af eignum ríkiskirkjunnar sérstakan sjóð, og mætti af vöxtunum af þessum sjóði veita til hinna ýmsu kirkna í Iandinu upp- hæð að tiltölu við meðlimafjölda þeirra. Önnur uppástunga hans var að oss minn- ir sú, að helga sjóðinn alþýðumentun- inni í landinu. Aðrir hafa ekki ritað um málið nú í seinni tíð, auk kirkjumálanefndarinnar. Og hvaðan hefir svo »Bjarmi« þessa þekkingu sína um hvatir manna til þess að óska aðskilnaðar ríkis og kirkju? Ótti » Bjarma« fyrir kristindómsleysi væntanlegrar fríkirju hér á landi er ákaf- lega vanhugsaðir. Ef aðskilnaður ríkis og kirkju kæmist á, þá hlyti sú fríkirkja, sem úr því yrði hér, að verða lifandi kirkja. Ffún gæti ekki lifað í neinu svefnmóki, því það yrði vís dauði hennar. Rá yrði hún að berj- ast fyrir tilveru sinni, og allir þeir menn, sem hat'a gert sér nokkra grein fyrir af- leiðingunum af aðskilnaði þessum, hljóta að sjá, að sú hætta, sem »Bjarma« stend-

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.