Frækorn - 09.08.1907, Síða 15
FRÆKORN
251
Úr Fljótsdalshéraði
er símað í síðastl. viku: Tíð ágæt,
grasvöxtur orðinn alt að því í meðal-
lagi. Heyskapur gengur vel.
Alþing.
Pinghlé var gefið að fundum lokn-
um fyrra föstudag, vegna konungs-
komunnar, og stendur það til 10.
ágúst.
Faraldur
er kominn í blaðamennina engu
síður en í prestana, að losna úr vist-
inni. Einar Hjörleifsson lioppaði af
fleytunni á nýári og Árnórsson nafni
hans mun vera enn lausari í vistinni,
og fer aftur að leggja sig eftirlögun-
um. Launmál er það ekki, að ritstjóri
Þjóðólfs lítur hýru auga til landsbóka-
vörslunnar, og vitanlega þá án ann-
ars atvinnureksturs. Ogloks vill öld-
ungur íslenzkra blaðamanna, Jón Ölafs-
son, taka sér hvíld eftir fjörutíu ára
blaðastrit og setjast í helgan stein við
íslenzka orðabók, og sækir um styrk
til þess. Ekki enn kunnugt um fleiri,
en segja má nú sem fyrrum, að »um-
ræða sé á, að mjög leysist á brott
hinir betri menn úr sveitinni.«
Lögr.
Kvennréttindi.
Norska Stórþingið hefir samþykt
lög um að veita atkvæðisrétt ógiftum
konum, er greiddu skatt af 400 kr.
tekjum eða meiru, og eins giftum kon-
um, ef menn þeirra greiddu skatt af
jafnmiklum tekjum.
Félag gegn vesturheimsferðum
hafa Svíar nýlega stofnað. Mark og
mið þess á að vera að berjast gegn
útflutningi fólks þaðan úr landi. Fé-
lagið kallast »Nationalföreningen« mot
emigrationen,* og hefir deildir um
land alt. Tillag er að eins 1 króna
á ári, og er það gert til þess, að
allir geti verið með í þessu þarfa verki,
hvað fátækir sem þeir eru. Væri ekki
hægt að gera eitthvað líkt á íslandi?
Ben. Cröndal skáld
andaðist aðfaranótt 2. þ. m. Hann
var á 81. aldursári síðan 6. nóv.
1906.
Framhald af ferðamolum ritstjóra
kemur í næsta tbl.
Frækorn,
Heimilisblrð með myndum
kemur út í hverri vikn, kostar hér á landi
1 kr. 50 au., í Vesturheimi 60 cents.
Borgist fyrir 1. okt. Úrsögn ógild nema
komin sé til útg. fyrir fyrsta okt. og úr-
segjandi Sé skuldlaus fyrir blaðið.
Nýir kaupendur og útsölumenn gefi
sig fram. Útg. geíur betri sölulaun en
alment gjörist. D 0stlund, útg., R.vik.