Frækorn - 09.08.1907, Qupperneq 8
244
FRÆKORN
þar! að svífa upp yíir allar stjörnur |
heim til þess staðar, sem vér höfum
að eins séð með augum trúarinnar,
sem oft, þegar stríðið var harðast
niðri á þessari dimmu, köldu jörð,
veitti kraft og hugrekki til að halda
áfram baráttunni. Nú sér hið um-
myndaða auga þá björtu borgarveggi,
hin skínandi perluhlið, hin gullnu
stræti. — Hliðunum er lokið upp og
réttlátur lýður gengur inn. Es. 2ó, 2.
Pá munu hinir réttlátu skína sem sól-
in í ríki föður þeirra. Matt. 13, 43.
Ekki er furða, þó guðs börn á öll-
um tímum hafi horft fram til þessa
viðburðar með innilegri eftirvænting.
Um hann spáði Enok, sjöundi mað-
ur frá Adam (Júd. 14.). Um hann
söng hið forna skáld ísraelsmanna:
»Himnarnir gleðjist og jörðin fagni,
hafið þjóti upp, og alt það, sem í
því er; foldin gleðji sig, og alt, sem
á henni er, já, öll tré skógarins fagni ;
fyrir drottins augliti, því hann kemur,
kemur til að dæma jörðina.* Sálm.
Ö6, 11.-13.; 98, 7.-9.
Esajas spáði um þenna dag og all-
ir spámennirnir, sem þráðu að »sjá
konunginn í Ijóma sínum. Es. 33,
17.; Dan. 12, 1.-3. j
Hvernijg getum vér verið undirbún-
ir þenna dýrðlega viðburð? Les Tít.
2, 11.-13. Hebr. 11, 35.-37. Op.
22, 12.— 14. Kæri vinur, láttu guðs
frelsandi náð kenna þér að lifa þann- j
ig, að orð meistarans hljómi til vor: |
»Komið, þér ástvinir míns föður, og
eignist það ríki, sem yður var fyrir- I
búið frá upphafi veraldar.«
(Les Jer. 8, 20.; Es. 2, 21.; Op. 6,
16. sjá mismuninn á því og Es. 25,
9., Matt. 25, 34.)
L. Muderspaeh.
Sigurlaunin.
„Sá, sem sigrar, hann
skal skríðast hvítum
búningi." Op. 3, 5.
Strj'ðsmaður Krists, haltuáfram stríð-
inu! Hættu ekki, íyr en sigurinn er
unninn. Sigurlaunin eru þess verð
að stríða fyrir.
Par er juilkominn lireinleiki. í Sar-
des voru nokkurir, sem ekki höfðu
saurgað klæði sín. Fullkominn hrein-
leiki er endurgjald vorrar háu köll-
unar; látum oss ekki missa það.
Par er sigur. Pú skalt skrýðast
hvítum búningi, bera kórónu á höfði
og pálmaviðargrein í hendi, og bæði
menn og guð sjálfur mun skoða þig
sem sigurvegara.
Par er kennimannlegux skrúði. Rú
munt standa frammi fyrir guði í svip-
uðum skrúða og Arons prestar báru.
Rú skalt fórna þakklætisfórnum og í
söng og bæn stöðugt komast nær og
nær guði.
Hver skyldi ekki vilja stríða fyrir
slíkan herra, sem virðir svo mikils
hinn minsta meðai sinna trúu þjóna?
Hver skyldi ekki vera fús til, Krists
vegna, að vera álitinn heimskingi hér,
þegar hann síðar skal íklæðast dýrð-
arinnar skrúða?
C. H. S.
Mann dreymir oft um framtíðar-
hamingju, meðan hann sefur burtu
hamingju yfirstandandi tíma.
Cornova.
Sá, sem vill vera hamingjusamur,
verður að finna sjálfan sig hafinn yfir
hamingjuna.