Frækorn


Frækorn - 09.08.1907, Síða 13

Frækorn - 09.08.1907, Síða 13
FRÆKORN 240 Sú skylda, sem hvílir á mæðrunum að uppala börn sín með aga og um- vöndun drottins, verður ekki uppfylt, meðan þær klæða sig í öllu eftir tízk- unni. Þær hafa þá engan tíma til að biðja eða rannsaka ritninguna, til þess þær geti skilið sannleikann og kent börnum sínum hann. Rað er ekki einungis réttindi sérhvers nianns, held- ur skylda, að afla sér daglega meiri og meiri þekkingar á guði og lians sannleika, en óvinur sálnanna nær til- gangi sínum, ef hann getur fundið upp á einhverju til að draga huga mannins frá því að gjöra það. Or- sökin til þess, að svo margir ekki vilja vera á bænasamkomum og taka þátt í guðræknisiðkunum, er sá, að hugur þeirra snýst um aðra hluti. Þeir líkj- ast heimsins börnum í klæðaburði, og meðan þeir gjöra það, styrkja þeir, með ósæmilegri framkomu sinni, van- trúna hjá þeim, sem þeir annars hefðu mátt gagna, ef þeir hefðu látið Ijós sitt skína í framkvæmd góðra verka. Guði væri þóknanlegt, ef systur vorar vildu klæða sig snoturt, en ein- falt, og starfa með kostgæfni að drott- ins málefni. f*ær skortir ekki hæfileg- leika, og ef þær nota réttilega það, sem þær þegar hafa, mundu þær fá end- urnýjað og aukið starfsþrek. Ef þær vildu nota þann tíma, sem þær nú eyða til ónauðsynlegrar vinnu, til þess að rannsaka guðs orð og útskýra það fyrir öðrum, þá mundu hjörtu þeirra auðgast af fjársjóð sannleikans ogtil- raunir þeirra til að þekkja grundvöll trúar vorrar, mundu veita þeim styrk og kraft. Ef systur vorar væru sam- vizkusamar og bygðu trú sína á heil- agri ritningu og reyndu að nota sér- hvert tækifæri til að upplýsa aðra, þá mundum vér fyrir starf þeirra og sjálfs- afneitun, sjá fjölda sálna aðhyllast sannleikann. Systur mínar, hvernig mun yður verða við á þeim degi, þeg- ar allir eiga að standaguði reiknings- skap? Munið þér með gleði geta gjört reikningsskap fyrir ráðsmensku yðar, eða munuð þér finna, að þér hafið sótt eftir ytra skrauti en van- rækt að auðga anda yðar? Hafa systur vorar ekki nóga alvöru og djörfung til þess, skilyrðislaust að fylgja kenningu biblfunnar? Postul- inn hefir nákvæmlega sagt fyrir hvað ber að gjöra í þessu tilliti: »Sömu- leiðis vil eg að konurnar skrýði sig sómasamlegum búningi með blygð og hóflæti, ekki með hárfléttum, né gulli né perlum eða dýrindis skarti, heldur eins og þeim konum sómir, er sýna vilja guðrækni með góðum verkum«. Hér bannar guð greinilega, fyrir munn postulans að skreyta sig með gulli. Látum þá, sem þekkingu hafa, ekki afvegaleiða aðra með eftirdæmi sínu. E. G. White. Pað fylgist að. Á hraðlestarbautarstöð kom maður einn og spurði, hvort þar væri ekkert með hans utanáskrift. Eftir að afgreiðslumað- urinn hafði leitað um stund, innan um kofort og kassa, fann hann loks brenni- vínsanker sem bar nafn spyrjandans. »Er það ekki fleira? spurði maður- inn aftur. »Nei, en þarna hinu meginstendur lík- kista, hún hlýtur líka að vera til yðar, — ætli hún fylgi ekki brennivíninu?* Staðfast hugarfar er það bjarg, þar sem ást og vinátta getur óhult varp- að akkeri.

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.