Frækorn - 13.12.1907, Side 5
FRÆKORN
385
ríki? 2. Kor. 5, 10. 11. Hvað þvingar menn
til þess starfs? 14. vers.
7. Hvað mega þeir ekki gjöra með guðs orð?
2. Kor. 4, 2. Hvernig geta þeir mælt fram
með sér fyrir hvers manns samvizku?
8. Hvern eiga þeir að predika, og hvern
ekki? 2. Kor. 4, 5.
Q. Frá hverjum öðlast þeir ljós og þekkingu?
6. vers. En í hverju bera þeir þenna fjársjóð?
10. Hvað bera þeir jafnan á líkama sínum,
og hvers líf á að opinberast í honum? 10. 11.
vers.
11. Hverju á guðs þjónn að treysta full-
komlega, áður en hann talar? 13. vers. Getur
hann talað með krafti án þess?
12. Hvað veitir honum uppörfum í starfi
hans? 14. vers.
13. Fyrir hverja er öll þessi starfsemi fram-
kvæmd? 15. vers. Hverjum til dýrðar nnin
ávöxtur starfsins verða?
14. Hvernig á guðs þjónn að starfa? 16.
vers. Hvaða endurnýjun skeður daglega hjá
honum? Efes. 3, 17.
15. Hvernig lítur sannur drottius þjónn á
þrengingarnar? 2. Kor. 4, 17.
16. Hvernig er þrenging vor hér í saman-
burði við hið himneska og ósýnilega? 17. 18.
vers.
FRÉTTIR.
Oscar konungur Svía
lézt 8. þ. m. eftir langvinnan sjúkdóm.
»Frækorn« fluttu grein um hann 13. !
sept. þ. á. ásamt mynd af honum. Vís-
um vér hér til þess.
Simskeyti frá R. B.
Khöfn 5. des. kl. 3 sd.
Dœmdir morðingjar.
Morðmálinu í Monte Carlo lokið þann
veg, að Vere Goold var dæmdur í æfi-
langa hegningarhúsvist, en kona hans
til lífláts. F*au höfðu myrt frú Levin
rá Stokkhólmi af dönskum ættum.
íslenzkt-fœreyskt hlutafélag.
Stofnað hlutafélag með því nafni og
hefir það tekið að sér fiskiútgerð Laurit-
zens í Esbjerg og Balslevs í Kaupmanna-
höfn. Það ætlar að færa út kvíarnar til
fiskiveiða við ísland. Lauritzen er
formaður í stjórn félagsins. Hlutaféð hálf
millión.
Khöfn 10. des. kl. 73/4 sd.
Konungaskiftin i Svíþjóð.
Oscar konungur verður jarðsettur á
hálfs mánaðar fresti, fyrir jól.
Gustaf konungsefni tók við ríki og
nefnist Gustaf V.
Nobelsverðlaunin.
þeim var útbýtt í dag kl. 4 á privat-
fundi í hátíðasal vísindafélagsins í Stokk-
hólnii.
Eðlisfræðisverðlaunin fékk prófessor
A. Michelson í Chicago. Efnafræðis
prófessor Edvard Buchner í Berlín. Lækn-
isfræðis prófessor Laveran í París. Bók-
menta Rudyard Kipling.
Friðarverðlaunum (Nobels) útbýtt í
dag í Kristjaníu þeim Ernsto Moneta, ít-
ölskum manni, og prófessor Louis Re-
nault í París -- skift milli þeirra.
Ýmsar fréttir.
Einar Hjörleifsson
er kominn heim. Honum var vel
tekið vestan hafs.
Blaðamenskan.
Ein hin helsta nýung í henni er sú,
að blað stórstúku íslands skiftir um nafn
og breytir fyrirkomulagi frá næsta nýári:
verður alþýðlegra, skemtilegra og marg-
breyttara, kemur út vikulega í mjög stóru
upplagi. Verður samt með sama verði
og »Templar« er nú (2 kr. um árið).
Ritstjóri verður Pétur Zóphóníasson eins
og verið hefir, og er hann að góðu
kunnur sem ritstjóri. Hann er mjög vel