Frækorn - 15.07.1908, Blaðsíða 6
FRÆKORN
118
út af tekjunum. Tekjurnar eiga
aldrei að standa í vegi nauðsyn-
legrar endurbóta. Þegar eg hef
bindindissamt fólk, sem ekki eyð-
ir vinnulaunum sínum fyrir áfenga
drykki, þá mun eg eiga hægt
með að bæta í skarðið fyrir tekju-
missirinn<'.
Andrew Clark, frægur enskur
læknir:
»Af 100 sjúklingum á sjúkra-
húsi mínu eru 70 komnir þang-
að sökum áfengra drykkja«.
SKip í sjávarbáska.
(Saga eítir Moody).
[Fegar hinn frægi ameríski vakn-
ingaprédikari D. L. Moody kom
heim til sín úr hinum löngu trú-
boðsferðum sínum og heimsókti
skólana sína í Northfield, þá
þótti samborgurum hans það
jafnan merkisviðburður. En í
eitt skifti var heimkomu hans
sér í lagi fagnað, af því að menn
þóttust þá hafa heimt hann úr
helju, eftir hér um bil 14 mán-
aða dvöl bæði í Norðurálfunni
og Austurálfunni, og á þeirri ferð
hafði hann komist í mikinn lífs-
háska.
Fregnin um komu hans var
komin á undan honum, og þeg-
:ar járnbrautarlestin kom til Mt.
Hermon farstöðvarinnar hér um
bil kl. 10 um kveidið, þá söfn-
uðust um 300 ungir menn, stú-
dentar og kennarar utan um
járnbrautarlestina og buðu hann
velkominn með blysum, söng
og fagnaðarópum. Fegar hann
á næstu farstöð fór út úr vagn-
inum með konu sína, þá hitti
hann fjölda marga aðra vini, ná-
granna og stúdenta, sem höfðu
komið víðsvegar að til að fagna
honum. Fegar hann ók heim til
sín frá farstöðinni, gat hann séð,
að hinu megin við Connecticut-
fljótið voru öll kennaraskólahús-
in og mörg hús einstakra manna
dýrðlega uppljómuð honum til
heiðurs. Meðfram veginum stóðu
konur frá Northfield Training
School með blys í höndum og
heilsuðu honum umleiðoghann
ók fram hjá bæði m?ð því að
bjóða hann velkominn og með
söng og með því að veifa vasa-
klútum sínum. Rétt hjá húsinu
hans voru 300 — 400 ungar stúlk-
ur úr kennaraskólanum ásamt
kennurum sínum og vinum og
heilsuðu honum með fögru vel-
komanda minni, en vagninn stað-
næmdist á meðan. Eg tók éftir
því, að þó að það væri um mið-
nætti, þá ók Moody ekki beint
heim til sín, heldur þangað sem
móðir hans, komin fast að ní-
ræðu, átti heima. Hann ætlaði
eigi að láta hana þurfa að bíða
eftir sér einu augnabliki leng-
ur en minst varð hjá komist.
Retta var á laugardagskveldi
og á sunnudagsmorguninn pré.
dikaði Moody í kirkjunni fyrir
troðfullu húsi ogsagði frá, hvern-
ig gufuskipinu »Spree«, sem hann
var með, hlektist á á Atlants-
hafinu og hvernig því var bjarg-
að á dásamlegan hátt. Hann
kvaðst við þetta rækifæri ætla
að gjöra það, sem hann hefði
aldrei fyr gjört, að láta það vera
umtalsefni ræðu sinnar, sem hann
hefði sjálfur reynt og orðið var
við. Hann hugði, að eins og
á stóð, mundi það hafa meiri á-
hrif en nokkur ræða, og að það
mundi einnig spara honumtíma
fyrirhöfn, því að annars yrði
hann að segja þessa sögu hvað
eftir annað, þar sem marga mundi
fýsa að heyra hana.]
Síðasti dagurinn, sem eg var
í Lundúnaborg, var ánægjuleg-
ur dagur. Rað mætti nefna hann
heitdag, því að það var glaða-
sólskin eftir nokkura dimma þoku-
daga, sem eru svo tíðir í Lund-
únum.
Margir vinir mínir voru komn-
ir saman á farstöðinni til að
kveðja mig, og eg bað þá að
sYngja uppáhaldssálm minn:
»Then shall my heart keep sin-
ging« (»Mín sál, þinn söngur
hljómi«), en þeir sögðu, að þeir
væru eigi vel fyrirkallaðir að
syngja, þar sem þeir væru að
skilja við mig. Mig einan lang-
aði til að syngja; því að inst í
hjarta mínu söng eg, af þvi að
eg ætlaði heim, heim til þeirra,
sem eg elskaði.
Rér, sveitamenn, hafið að lík-
indum eigi Ijósa hugmynd um,
hverju þau líkjast, þessi gufu-
bákn, sem fara yfir Atlántshafið.
Eg fór út á »Spree«, sem var
490 fet á lengd og með 700
farþega; voru þeir frá Bretlandi
hinu mikla, Rýzkalandi, Austur-
ríki, Rússlandi, Ungverjalandi
og mörgum öðrum löndum, auk
margra Vesturheimsmanna, sem
voru að halda heimleiðis, sumir
úr viðskiftaferðalagi, sumir úr
skemtiferð. Rað voru bæði karl-
ar og konur á öllum aldri —
gamlir foreldrar, sem fóru til
Vesturheims, til að dvelja síð-
ustu stundir æfi sinnar hjá börn-
um sínum, sem voru áður farin
til »hins fyrirheitna lands«, til
að stofna heimili þar; karlar og
konur á bezta aldri, og mörg