Frækorn - 15.02.1910, Síða 7

Frækorn - 15.02.1910, Síða 7
F R Æ K O R N 23 hann í augnabliks athugaleysi hafði slept taumhaldi á sjálf- um sér. Fám dögum eftir heimkomu Rikharðs var afmælisdagur Tóm- asar; en honum var ekki eins innanbrjósts og honum var vant að vera við slík tækifæri. Þó hann væri mjög glaður yfir þvi, að Rikharð var búinn að fá isekningu, þá hafði synd hans gengið honum mjög til hjarta, og hann hafði tekið sér mjög nærri, að missa hundinn sinn, svo hann var nú orðinn fölur og grannleitur. Hann hafði fengið leyfl til að verja degin- um eins og hann vildi, og hann tók bækurnar sínar með sér og fór út á uppáhaldsblettinn sinn í skóginum. »0, hversu ólikur var afmæl- isdagurinn minn í fyrraa, hugs- aði Tómas. »Þá var Tiger ný- kominn, og eg var svo hamingju- samur, enda þótt mér þætti ekki nærri því eins vænt um hann þá eins og núna«. Tómas dró djúpt andann, og sagði siðan með sjálfum sér: »En eg vona, að sumt sé betra en í fyrra. kg vona eg sé farinn að vinna sigur yfir sjálfum mér, og með guðs hjálp vil eg aldrei gefast upp í stríðinu. Bara eg gæti nú unnið mér inn peninga til þess að kaupa Tiger aftur!« Meðan hann sat niðursokkinn í þessar hugsanir, heyrði hann h'U fotaíak, Sem hann þekti, og gleðiop, og hinn góði gamli vinur hans stökk beint í fangið á honum. »Tiger, gamli kunningi minn«! sagði Tómas og reyndi að horfa alvarlega á hann — þó liann gæti varla tára bundist —, »hvernig stendur á því, að þú hleypur burt frá húsbónda þin- um?« Tiger svaraði með því að taka upp bréf, sem hann af gleðilát- unum haíði mist, og rétti það að Tómasi. Bréfið hljóðaði þannig: »Barnið gott! Tiger þrífst ekki hér, svo eg verð að breyta um verustað handa honum. Eg vil að hann eigi góðan húsbónda, og af því eg treysti þeim bezt, sem hafa lært að stjórna sjálfum ser, þá sendi eg hann til þín. Ef þú vilt gæta hans vel, mun eg verða þér mjög þakk- látur. Vinur þinn, Majór White«. Síðan las Tómas með tárin í augunum: »Eftirskrift: Eg þekki alla söguna. Kæri ungi vinur minn, vertu aldrei þreyttur á að gera það, sem gott er«. Jarðarför að siðums. d. adventista, hin fyrsta hér á landi, fór fram 1. þ. m. Fyrsti látni meðlimur nefhds safnaðar, stúlkan Sal- gerður Gróa Guðmundsdóttir, var þá jörðuð. Húskveðja fór fyrst fram að helmili hinnar látnu, og var þar ekkert frábrugðið hérlendri venju. — Eftir húskveðju var líkið flutt í Fríkirkju — sein fríki rkj usöfnuð urinn góð fú sl ega hafði léð til afnota sökum þess, að »Betel« var brunninn. — Forstöðumaður s. d. adventista, David Östlund, hélt bæði hús- kveðjuna og líkræðuna. Aðal- munurinn milli greftrunarsiða s. d. adventista og Lútherstrúar- manna er sá, að s. d. advent- istar kasta ekki rekum á kistu. Forstöðumaðurinn flutti bæn og mælti því næst þessi orð yfir liinni opnu gröf: »Duftið hverfur til jarðarinn- ar aftur, hvar það áður var, en andinn fer til guðs, sem gaf hann«. (Préd. 12, 7.), »Menn þínii, sem dánir eru, skulu lifna, mitt andvana fólk skal upprísa . . . og jörðin skal endurfæða hina framliðnu«. (Es. 26, 19.). »Hinir dauðu munu upprísa óforgengilegir«. »Og þegar hið forgengilega hefir íklæðst óforgengileikanum og þetta hið dauðlega hefir í- klæðst ódauðleikanum, þá muni rætast orð það, sem ritað er: Dauðinn er upp svelgdur til sig- urs. Dauði, hvar er sigur þinn? Dauði, hvar er broddur þinn?« »Guði séu þakkir, sem gefur oss sigurinn fyrir drottin vorn Jesúm Krist« (1. Kor. 15. 52— 57). Að því búnu var mokað í gröfina og sungið: »Alt eins og blómstrið eina«. (Orsökin til þess, að s. d. adventistar ekki »kasta rekum« á kistu, er sú, að sá siður er heiðinn að uppruna, var við hafður hjá Grikkjum og Róm- verjum og héldu menn þá, að moldarrekurnar yrðu til þess að »festa sálina í jörðu«, svo að hún ekki gengi aftur. A Norð- urlöndum heitir þessi siður »að jarðfesta«. — Fyrir þá, sem trúa guðs orði, að sálin eða »andinn fer til guðs«, fellur slíkur siður úr gildi, enda er auðvitað hvergi sýnilegt í guðs orði, að hánn hafi verið notað- ur af neinum trúuðum manni). Jarðarför þessi var mjög vel

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.