Ingólfur


Ingólfur - 18.08.1907, Qupperneq 3

Ingólfur - 18.08.1907, Qupperneq 3
INGÓLFUR 131 \AsGNA fjærveru og ýinsra starfa hef ég fengið Bjarna Jónsson frá Vogi til að annast rit9tjórn Ingólfa fyrir mína hönd nin næstu 6 mánuði. Ari. Jónsson. í gær. Söngfélag kaupffaðarins, ,.Bragi“, syngur. (B’réttaskeytin frá Akureyri og Seyðig- íirði eru tekin eftir ,,Hugni“.) Óhæfilegur fjáraustur. Höfuðeinkenni fiármálastjórnar núver- andi ráðherra cr annarsvegar fjölgun embættismauca og opiuberra starfs- manna, margra litt þarflegra, og hækk- um launa þeirra, en hins vegar auknir skattar og álögur á alþýðu. Á þessari fjármálastefnu bryddi þegar í stað. er H. H. kom til valda, en hvergi hefir hún komið eins fram í almætti sínu, sem í fjárlagafrumvarpi stjirnarinnar, er lagt var fyrir alþingi í sumar. Geta allir gengið úr skugga um það, er vilja kynna sér það frumvarp og bera það saman við eldri fjárlög. Hér skal að cins minst á vegamálin. Þau heyra undir landsstjórnina, sem kunnugt er, og hcfir hún verkfiæðing landsins sér til aðstoðar og ráðuneyt's. Til vegamála hafa að undanförnu verið veittar um 2U0000 krónur á hverju fjárhag>tímabili, meira eða minna eftir atvikum og ástæðum landssjóðs. Á fjárlögum fyrir 1904—1905 vóru veitt- ar 271 þúsund til vegabóta og geagu 10 þúsund kr. af því fé til þess að launa verkfræðing landsins og til að- stoðarmanna. Á núgildandi fjárlögum var miklu minna veitt til vegabóta, því að hvern skilding, sem hægt var að ná til þurfti að reita til ritsímans. Fjárlag ifrumvarp stjórnarinnar fyrir 1908-9 ætlar 275 þúsundir til vega- bóta, en hefir jafnframt hœlchað ilt- gjöldin við stjórn vegamála um lielm- ing frá þvi sem verið hefir að undan- förnu, eða úr 10 þúsund kr. upp í tuttugu þúsundir. Fyrir þeim 10 þús. krónum, sem við er bætt, á að sjá þannig, að verkfræðingur lacdsins fái aðstoðarmann, er hafi 2700 krónur í árslaun og skrifstofukostnað er nemur 1300 krónum að meðaltali hvort árið. Þá eru ætlaðar 1500 kr. á ári til vega- mælinga og þarf því verkfræðingurinn væntanlega ekki eftirleiðis að vera hestadrengur mælingarmannanna eins og í fyrra sumar. Auðvitað telur ráðherra þessi útgjöld alveg óhjákvæmileg, enda eru þau í sam- ræmi við alla hans fjármálastefnu, — að eyða sem mestu til embætta og bitlinga, en hugsa minna um framkvæmdir. En á það mætti þó minna, að á seinasta þingi var bœtt við landsstjórnina nýj um verkfrœðingi (Þorvaldi Krabbe) með 3000 kr. launum, svo að nú hefir hún tvo verkfræðinga til þess að inna það af höndura, sem einu vann áður. Núverandi vegfræðingur landsins, Jón Þoiláksson, er ungur maður lítt reynd ur og hefir ekki að því er oss er kunn- ugt sýnt neinn sérstakan dugnað — að ógleymdum byggingarrannsóknum hans. Laun hans, 3000 kr., verða því að teljast fullsómasamleg, móts við laun annara opinberra starfsmanna á þessu landi og því réttmætt að hann leggi fram alla sína starfskrafta eftir því sem þörf krefur. Hinsvegar er það fullkunnugt, að nefndur verkfræð ingur hikar sér ekki við að taka að sér allumsvifamikil aukastörf, ef met- orð eða peningar eru í boði. Hann er t. d. í bæjarstjórn Reykjavíkur og eyddi að nrnsta kosti — að hann sjálfur scg- ir — miklurn tíma í rafmagnsmálið. Þá er hann skólastjóri Iðnskólaas og fær fyrir það 500 krónur á ári, svo að allmikið starf hlýtur það að vera. Auk þess er hann kennari við sama skóla, auðvitað fyrir sérstaka borgun. í vet- ur sem leið tók hann að sér mikið starf fyrii Reykjavíkurbæ — að mæla fyrir vatnsleiðslunni og undirbúa það mál. Fyrir það hefir hann geypikaup og í ofanálag á það hefir bæjarstjórnin heitið honum mjög álitlegum skildingi fyrir það starf eftir á. Auk alls þessa hefir hann ýms fleiri störf á hendi og sýuir jiað b.zt, hvort starf hans fyrir landið er svo umsvifamikið, að þörf sé á nýjum meðhjálparmanni með föstum launum og með miklum skrifstofukostn- aði — þegar hann getur nú gegnt fjölda- mörgum öðrum störfum fyrir hina og þessa sem krefjast mikils tíma og fyr- irhafnar. Fjárlaga frumvarpið er nú leiðinni í gegnum greipar alþingismanna og vænt- um vér fastlega að þeir hugsi sig tvisvar um áður en þeir samþykkja framangreinla fjárlagastofnun stjómar- innar. Nóg mun tómahljóðið í lands- sjóðsskúffunni samt, þegar öll kurl koma til grafar. Og í sliku árferði sem nú er, þegar hallæri er til lands og sjáfar ætti þingið að leika sér að öðru en- því, að stofna til óþarfra em- bætta og bitlinga. Vegfarandi. Benedikt dröndal. Kveðja frá stúdeutafélaginu. (Sungin við gröfina.) Hér hefir særður svanur kropið að sæluskauti móðurlands, því nú var höfuð niður dropið og nú var lokuð tjörnin hans, en lengi þíddi’ hann þröngva vök og þreytti hin fornu vængjatök. Og sumrin öll við sönginn mæran við sátum glaðir úti þar og höfum allir hugumkæran hvern himin, sem þá vængi bar; svo vítt fór Gröndals vegsemd þá sem vorir gleðihlátrar ná. Og þegar allir svanir sungu á sumarkvöldin þjóðin fann, hver ljómi vafði vora tungu og vilti fjallasvaninn þann. Húu fann hvað yrði’ á heiðura hljótt, er hann bauð síðast g ða nótt. Og , að skal okkar móðir muna, þótt margra söngur reynist tál, að hans var ólmur, oft úr funa, en aldrei nema hjartans mál, og það sem refum eign er í var ekki til í brjósti því. Við krjúpum ekki’ að leiði lágu, því listin á sér paradis; nú streyma Gröndals bljómar háu af hafi því sem aldrei frýs. Hvern snilling þangað baninn ber, sem Bjarni’ og Jónas kominn er. Þ. E. Hciinsókii Þjóðvcrja. Á sunnudaginn var kom hingað þýzkt herskip með 530 manns og dvald- ist hér nokkra daga. Á mánudags- kveldið kom mannflutningaskipið .Oceana, ojhélt kyrru fyrir á þriðjudaginnj Var því mart um Þjóðverja í bænum þá dagana, þ'tt mest væri þeir auðvitað látnir snúast innan um „Magasínið“ mikla og kringum það. „Oceana" fór héðan norður um land, ætlaði að koma við á Akureyri. Sinjörsý ingi í við Þjórsárbní Verðlaunaveitingar vóru þessar: 1. verðlaun (20 kr.): Hofsá, Guð- björg Jónsdóttir. 2. verðlaun (15 kr.): Hjalli, Þorbjörg Sveinsdótti'-, og Birtingaholt, Guðrún Jónsdóttir. 3. vcrðlaun (10 kr.): Kálfá, Lilja Gísladóttir, Hróarslækur, Herborg Þór- arinsdóttir, og Rangá, Ingunn Stefáns- dóttir. Hrósað var einnig smjöri frá Rtuða- læk, Fossvallalæk, Baugsstöðum og Framnesi. Fyrir iuánaðargainalt smjör fengu verðlaun: 1. verðlaun (20 kr): Arnarb eli, Mar- grét Sigurðardóttir. 2. verðlauu (15 kr.): Yxualæku'-, Anna Kr. Sigurðardóttir, ogRtuðálæk- lækur, Elísabet Guðmundsdóttir. 3. vorðlaun (10 kr.): Hofsá, Guðbjörg Jónsdóttir; Fossvallalækur, Guðrún Gísladittir, og Hróarslækur, Herborg Þórarinsdóttir. Hrósað var einnig smjöri frá Btugs- stöðum, Birtingarholti og Torfastöðum. Ennfremur voru smjörbúinu í í’ljóts- hlíð dæmd 2. verðlaun fyrir nýtt smjör, en þeim ekki útbýtt, aflþví að smjörið kom of seint. Dómaiar við verðlaunaveitingarnar vóru: H. Grönfeldt (form.), Sig. Sig- urðsson og Herborg Þórarinsdóttir. H. O. (,,Lögr“). Ráðgjafi fór vestur og norður um land með konungi og fylgir honum til Seyðisfjarðar. Guðlaugur sýslum. fór til Akureyrar til þess að vera \ið við- tökurnar þar og Jóhannes Jóhannesson bæjarfógeti fór austur á Seyðisfjörð í sömu erindum. Kom skip að austan til að sækja hann. Mikið af „Dinne- brog“ fánum og öðru sliku skrúði var sent héðan í hina kaupstaðina þegar þess þurfti ekki lengur við hér. Jarðarför líencdikts Gröndals fór fram á miðvikudaginn var. Fylgdu honum til grafar flestallir skólagengnir menn og alþingismenn og ýmsir aðrir. Haraldur Níelsson flutti húskveðju, en í dómkirkjunni talaði séraJóhann dóm- kirkjuprestur, mest um sjálfan sig í iunra trúboðs anda. Kvæði var sungið við gröfina eftir Þorstein Erlingsson og er það prentað hér í blaðinu. Misiiiigar í Reykjavík. Hingað kom stúlka f: á Stykkishólmi 30. f. m. Hafði verið einangruð þar í 14 daga áður, en ekki með ineiri varkárni en svo, að stúlkan lagðist í mislingum hér. Stúlkan hafðist við í húsinu nr. 3 á Bröttugötu. Þar er margt barna og er húsið einangrað sem rækilegast. Vóru og flutt þangað fjögur börn er víst var uui að stúlkan hafði umgeng- ist áður en kunnugt varð um veiluna. Stúlka þessi hafði verið á gangi um götur bæjarins 8. og 9. þ. m. og má því .vera fleiri hafi sýkst af henni, þótt það sé ekki enn komið í ljós. Náðun. Konungur náðaði Jónu Ágústu Jónsdóttur, úr Barðastranda- sýslu sem dæmd var í fangelsi fyrir að bera út barn sitt siðastliðinn vetur. Gaf kouungur henni um ieið 100 kr. Strokkur tckinn að gjósa. Strokkur í Haukadal hefir ekki gosið um mörg ár til þessa. Haföi runnið í hann kaldur lækur úr „Ble3a“ í gogn- um „Fötu“. En á dögunum meðan stóð á skálasmíðinni við Geysi lét Bjarni Jónsson snikkari veita læknum úr „Biesa“ út í mýri. Fám dögum síðar tók að vella og sjóða í „ffötu“ og reykur magnaðist upp úr Strokki. Og á sunnudagskvcldið 5. þ. m. gaus hann miklu gosi, viðlíka sem Geysir og engu minna, enda var hann jafnoki Geysis fyrrum langa hríð. í gosinu komu upp úr honum trébútar og umbúningur, er settur hafði verið yfir hann hér á ár- unurn en féll þá niður í hann og hatði ekki sést neitt af síðau fyrr en nú. Fijálslyndur blaðamaöur, Eigi allfáar ræður, sem haldnar Iiafa verið í veizluuum eða annarstaðar þessa konungsfagnaðar-daga, hafa þegar birst í blöðuuum. Lögrétta flytur jafuvel í einu 3 ræður eítir sama þingmanninn. Margt af þvi, er talað hefir verið við þetta tækifæri, er vitanlega ekki þess vert, að það komi fyrir almennings sjónir í blöðunum. Eina ræðu heyrði ég þó, sem vel var þess verð. Og, hana hélt danskur maður. Eg heíi ekki séð heunar getið enn i blöðuuutn,, og bið yður því fyrir þessar lÍDur, herra ritstjóri. Það var við skilnaðar-mjr^unverðinn. Jóu Ólatsson hafði mælt fyrir miuni danskra blaðamanna — að því er menn héldu; því að ekkert heyrðist hvað hann sagði. Sanusögli rómurinu varð svo lágvær frammi fyrir hátigninni. Eu er hann hafði Jokið máli sínu, stóð upp dauski blaðamaðurinn K. Dalil og hélt mjög snjalla ræðu. Kvaðst hann ekki geta svarað iæðu Jóns, því að at' henni hefði hanu ekki heyrt svo mikið sem eiua málsgrein til enda. En annars er þetta mergarinn úr ræðu hr. Dah's: Það er alment sagt, að ísland sé fá- tækt laud. Móttökuruar, sem vérgest- irnir höfum orðið fyrir, bera vott um alt annað. Ég vil spyrja yður, herrar rníuir, hafið þér nokkurn tima verið í ríkmannlegri dansleik en dansloiknum hér í gærkveldi? Aðrar eins nægtir af mat og drykk hefi ég aldrei séð á nokkurt borð borið. Eða þá búningar kvennanna! Hvað þessir búningar hljóta að kosta! Eu þegar maður í gærkveldi sneri sér að eiuhverri kon- unni og spurði hana, t. d. hvað þetta ljómandi fagra belti liennar hefði kost- að, þá setti hún upp stór augu: Hvað það hefði kostað ! Það hefði húu vissu- lega aldrei vitað. Slíkan kjörgrip kæmi henni als ekki til hugar að meta til peniuga. Hauu hefði um laugan aldur gengið að erfðurn í ættinni, og yrði als ekki metinn til fjár. Slíkan kjörgrip eiga allir íslendingar, herrar mínir. 0g þessi kjörgrijiur er frelsi þeirra, frelsi Islands. Þessi kjörgripur þeirra hefir gengið að erfðum ineðal þeirra frá kyni til kyns og haun er svo dýrmætur í uug-

x

Ingólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.