Alþýðublaðið - 12.05.1963, Qupperneq 10

Alþýðublaðið - 12.05.1963, Qupperneq 10
Erlendar íþróttafréttir í stuttu máli: Ingo ætlar aé hætta keppni EDWIN Ahlqvist fyrrverandi fram kvæmdastjóri Ingemars Johanson skrifar í sænska íþróttablaðið, að Ingo muni sennilega ekki keppa meir. Ingo sjálfur hefur staðfest, að eftir að hafa hugsað málið hafi hann komizt að þeirri niðurstöðu, að scnmiepa sé rétt að hætta nú. „Ég hef næga peninga og þarf ekki að boxa þeirra vegna”, segir Ingo og svo segist hann vera orð- inn hálfþreyttur á því að vera frægur. v Benefica sigraði Feijecord 3—1 í Lissabon í síðari leik félaganna í undanúrslitum Evrópubikarkeppn- ínnar. Beneica mætir því Milan í Úrslitum. 'v' MAROCKO hefur eignast frábær- an spretthlaupara, sem heitir M’Barek Bouchaib. Ilann keppti í Denver, USA nýlega og hljóp 100 yds á 9,5 og 220 yds (beygja) á 20,8 sek. Aðrar fréttir frá USA: Plummer hljóp 220 yds á 20,7 og 440 yds á 46,2 sek. Weisiger hljóp enska rnílu á 4.01,5 mín. v NÝ hástökksstjarna hefur komið fram í USA, heitir sá John Ram- bo, 19 ára og stökk fyrir skömmu 2,12 m. V' LUDVIG Danek hefur sett tékkn-! eskt met í kringlukasti, 57,22 m. 50 sim betra en met Merta. MAURE Bogliatto hefur sett ít- alskt met í hástökki, hann stökk 2,05 m. MYNDIN er frá jafnteflis- leik Brasilíu og Englands á fimmtudaginn. Lengst til hægri er Jimmy Greaves að kljást viff brasilizkan bak- vörð, en til vinstri er hinn frábæri markvörður Gylmar, en hann gómaði boltann og bægði hættunni frá. ' VALUR OG FRAM í DAG! REYKJAVÍKURMÓTIÐ í knatt- | spyrnu heldur áfram í dag kl. 14 I -og þá leika Valur og Fram. Fram ; hefur gengið mjög illa I mótinu | eins og kunnugt er, hefur leikið i þrjá leiki og tapað öllum og meira ,f.en það, ekkert mark skorað. Val j hefur aftur á móti gengið vel, er með 7 stig eftir fjóra leiki, og tak- ist Val að sigra í dag má telja nokkurnvcginn öruggt að Vals- menn verði Reykjavíkurmeistar- ar 1963, þó ekki sé það öruggt, Þróttur gæti sett strik í reikning- inn með því að vinna báða Ieiki, sem þeir eiga eftir. Á morgun kl. 20.30 Ieika KR—Þróttur. Islendingar getð sigrað í norrænu sundkeppninni EINS og skýrt hefur verið frá hefst norræna sund- keppnin, sú 6. í röðinni, á miðvikudag, 15. maí. í síð- ustu keppni syntu 31.535 ís- lcndingar eða um 18% allra íslendinga. Forráðamenn keppninnar skýrðu frá því, að sennilega væru um 70% þjóðarinnar syndir. Þetta er því alltof lítil þátttáka. Þar sem jöfnur.artala okkar að þessu sinni er mun hag- stæðari en áður, eða meðal- tal tveggja síðustu keppna, eru möguleikar okkar mjög miklir nú. Sundlaugum hef- ur fjölgað mjög síðan 1960 eða um 13. Nú þurfa íslend- fngar að sýna samtakamátt sinn og syndá allir 200 m., en þeir sem eru orðnir roskn ir og synda sjaldan ættu að æfa sig eitthvað fyrst. Hafnfirðingar - Hafnfirðingar - Hafnfiröingar Almennur kjósendafundur verður haidinn í Álþýðuhúsinu við Strandgötu í dag, sunnudag 12. maí, og hefst ki. 4 e. h. Ræður flytja: Stefán Júlíusson, rithöfundur, Hörður Zophaniasson, kennari, Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri ög Karl Steinar Guðnason, kennari. Stefán Júlíusson Yngvi R. Baldvinsson Karl Steinar Guðnason Sigurður Guðmundsson Fundarstjóri: Yngvi Rafn Baldvinsson, sundhallarstjóri. Frjálsar umræður að framsöguræðum loknum. Hafnfirðingar! Fjölménnið á fundinn og mætið stundvíslega. SAMBAND UNGRA JAFNAÐARMANNA. ,2Q 12. maí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.