Alþýðublaðið - 12.05.1963, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 12.05.1963, Blaðsíða 12
Rússlandsferð Frh. ur opnu. vildi ég gefa honum nýtt am- crískt leikrit, sem hann hafði áhuga á að kynnast, en svo virtist sem hann þyrði ekki að T þiggja gjöfina. Því má skjóta hér inn í, að mjög mikið er gef- ið út af alls konar þýðingum í Rússlandi. Kosningar áttu að fara fram eft- ir mánuð, þegar við vorum á ferð- lnni, og var næstum spaugilegt að lesa sum kosningaspjöldin, sem valdhafamir létu setja upp, með setningum sem þessum: „Ánægja erfiðisins”. „Gleði stritsins”. En það var eítirtektarvert að veita því athygli, að það, sem Rússamir voru stoltastir af að sýna okkur, var hvort tveggja óbreytt írá Zar- tímanum: Ballettinn og listasöfn- In. Telja má líklegt, að unga fólk- ið í dag hugsi töluvert öðruvísi en það fólk, sem stóð að bylting- unni og gat þá í fyrsta sinn gengið um hallir keisarans og sagt: „þetta eigum við”. Öfund þess og hatur í garð valdhafanna hafði fengið útrás, en unga fólkinu í dag finnst að vonum bara sjálfsagður hlutur, að það geti gengið um þessa sali. Og unga fólkið gerir í vaxandi mæli kröfu til þess að fá að sjá heiminn, fá að ferðast. Reynd- ar er séð fyrir því, en það eru að- eins nokkrir útvaldir, sem fá að blanda geði við útlendinga. Er ég spurði annan túlk minn um það, hvort hún vildi ekki fá að sjá heiminn, fékk ég réttlínusvar: „Auðvitað gæti það verið athygl- lsvert, en það er víst óttaleg ring- Ulreið í þessum kapítalistísku löndum”. Gaman væri að segja frá fleiru, gem fyrir augum bar og ég heyrði austur þar og stingur í stúf við það, sem við eigum að venjast. Ef til vill verða mér minnisstæðastar þær mörgu miðaldra konur, sem unnu að snjómokstri í Moskvu og Leningrad. í Moskvu munu þær skipta tugum þúsunda, pjakkandi klaka og mokandi snjó allan cfag- inn. Eða þá konur í úthverfum Moskvuborgar, sem báru vatn í fötum úr brunnum inn í húsin. Það segir sig sjálft, að margt af því, sem mér kom undarlega fyrir sjónir, hlýtur að hafa verið eðli- legt fyrir heimafólkið, sem ekki þekkti annað, og auðvitað er mat manns, sem kemur í hálfsmánaðar heimsókn til einhvers lands, e. t. v. allt annað en þess, sem er þar til langdvalar, og svo er hitt, að hver maður hlýtur að dæma frá eigin brjósti. Við brottför mína frá Rúss- landi leitaði sú spurning á, hvort fangabúðir og ógnir hafi í raun og veru verið nauðsynleg til þess að þoka Rússum áleiðis á fram- farabraut eftir byltinguna. — Xðn- væðing var hafin í Rússlandi á tímum zarsins og skólakerfið, sem nú er byggt á, er frá þeim tíma, og svona mætti lengi telja. — Maður spyr sjálfan sig, hvort rússneska þjóðin væri ekki betur á vegi stödd £ dag, ef hún hefði notið þess að þroskast á braut lýðræð- is. Að endingu er mér ljúft að geta þess, að alls staðar var reynt að greiða götu okkar eft- ir föngum. Að sjálfsögðu kom- um við nokkrum sinnum í ís- lenzka sendiráðið í Moskvu, og nutum þar góðrar gestrisnu. Kvað dr. Kristinn Guðmunds- son íslenzka ferðamenn mjög sjaldséða í sendiráðinu, enda þótt þeir væru alltaf aufúsu- gestir. BARNASAGA: KONUNGURINN, DÝRLINGUR- INN OG GÆSIN Nú blístraði konungurínn, og gæsin kom ivagg and út úr safinu. Hún var draghölt af elli og hrör- leika, ve,salmgurinn. Hún var samt, og hafði aila tíð veri'j iuisbónda sínum dauðtrygg og hlýðin. Þær dy vgðir hennar höfðu ekki minnkað með aldr inum, þúít bæði væru þau nú orðin gömul og lífs- þreytt. gar ungi maðurinn sá gæsina kinkaði hann afiur kolli. „Já,“ . ;ði hann, „mér mundi ekki veitast það erfitt að ;;ngja gæsina fyrir þig.“ „Ég r nú srvo öldungis hlessa,“ sagði konung- urinn og virti gæsina fyrir sér, „ef þú getur gert það, þá vcrð ég að segja, að þú ert slyngastur allra ungra manna í næstu sjö kirkjusóknum.“ „Ég þykist nú slyngari en það,“ sagði ungi maðurinn og hló við. „En hverju viltu launa það, ef ég yngi gæsina?“ „Ég skal gefa þér hvað sem hugur þinn gim- ist,“ sagði konungurinn. „Finnst þér það nógu ivel boðið?“ „Viltu gefa mér allt það land, sem gæsin get- ur flogið yfir í fyrsta skipti, sem hún hefur sig til flugs, eftir að ég er búinn að yngja hana?“ „Það mun ég sannarlega gera,“ sagði konung- urinn. „Þú mátt þá ekki ganga á bak orða þinna,“ sagði ungi maðurinn. „Það geri ég ekki,“ svaraði konungurinn. Þá kallaði ungi maðurinn til gæsarinnar, sem var orðin svo gömul og hrum: „Heyrðu m:g nú gamla gæsarskinn,“ sagði hann og tók blíðlega um vængi hennar. „Nú ætla ég að gera þig fleyga og færa í flestan sjó á nýjan leik.“ Síðan gerði hann krossmark yfir gæsinni og kastaði henni hátt upp í lofið. Um leið og hann kastaði henni, blés hann á hana, eins og til að létta undir. Nú verðið þið hissa. Haldið þið, að gæsin hafi ekki tekið flugið með miklum glæsibrag, rétt eins og hún iværi konungur fuglanna. Hún flaug fram og aftur fyrir ofan þá og lék ýrnsar fluglistir. Það ivar fögur sjón að sjá vesalings gamla konunginn, þar sem hann stóð með opinn munn og horfði fullur undrunar og umhyggju á gömlu gæsina sína, þar sem hún flaug rétt eins og læ- virki um loftin blá. KJÖRBINGÓ að Hótel Borg mánudagskvöld kl. 9 Meðai vinnina: Bíll í 12 daga frá Bílnum, Höfðatúni 4 eða eftir vali af borði I ™ * r Borð L Borð I. Myndavél — Útvarpstæki — Sófaborð — Tólf manna kaffistell — Vegghúsgögn — Kvenúr — Mokkastell Stofuklukka — Cokíailsett — Rafmagnsrakvél — Skrifborðsstóll — 24 ds. blandaðir ávextir og margt fleira. Borð III. ' Lindarpenni Parker 51 — 6 manna kaff istell — Mokka stell — Hárþurrka — 12 ds. blandaðir ávextir — Herra vesti — Straujám — Kaffikanna — 6 stk. ábætisskál- ar, stál — Brauðrist — Hringofn — Baðvog — Blaða- grind -r—'Klukkur — Kveikjari, Ronson — Vínsett — Skákklukka — Rakvél — Blómaborð og margt fleira. Spilaðar verða 12 umferðir með 15 vinningum. — Pantið borð í tíma í síma 11440. Ókeypis aðgangur. HÓTEL BORG Hringferð fyrir 2 á I. farrými Esju og bíH í 3 daga — Flugfar Kaupmannahöfn eða London og til baka — Kvenfatnaður fyrir 7000,00 eftir vali — Sjálfvsrk saumavél Karlmannafatnaður fyrir 7000,00 eftir vali o. fl. LEIÐRETTING ÞAU leiðu mistök urðu, að texti með myndinni, er fylgdi grein dr. Gunnlaugs Þórðarson- ar, féll út í blaðinu í gær. Text- inn átti að vera þessi: „Dr. Selma Jónsdóttir, dr. Gunn- laugur og túlkurinn Nína fyrir framan Puskinsafnið í Moskvu en þar var íslcnzka málverka- sýningin haldin”. liöfundur og Iesendur eru beðnir velvirð- ingar. shooh ty * + t ,r / /r SAMEINAR MARGA KOSTi: FAGURT ÚTLIT. ORKU. TRAUSTLEIKA ROMAÐA AKSTURSHÆFNI OG LÁGT VERDI TÉHHNESMA BIFflEiÐAUMBOÐIÐ VDNAMTM1I h2. JÍMI J7ÍÍI Lesið Alþyðublaðið Aðalfundur KAUPFÉLAGS HAFNFIRÐINGA ■’íÁf-j'.-V... verður haldinn mánudaginn 13. maí kl. 8,30 síðd. í Alþýðu húsinu. DAGSKRÁ: Venjuleg aðalfundarstörf. Ath. að þetta er framhaldsfundur. Stjóm Kaupfélags Ilafnfirðinga. 12 12. maf 1%3 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.