Alþýðublaðið - 29.05.1963, Qupperneq 7
HIN SlCAN
Sherlock Holmes: Jæja, Watson
minn góður. Ég sé, að þú ert í
grænu nærbuxunum þínum í dag.
Watson: Þér eruð alveg maka-
lausir, Holmes. Það er engu líkara
en þér sjáið í gegn um mann. Hvern
íg fóruð þér að því að uppgötva
þetta?
Holmes: Þér hafið gleymt utan-
yfirbuxunum heima.
~k
— Mér þótti leitt að heyra að
Pétur tók frá þér konuna. Ég hélt,
að Pétur væri bezti vinur þinn.
— Hann er það líka, en hann veit
það bara ekki.
★
Presturinn,- Ferðu ekki með bæn
irar þínar á kvöldin, drengur
minn?
Drengurin.n (uppveðraður); Jú, að
sjálfsögðu, herra minn.
Presturinn: Og þá á morgnana
líka, vænti ég?
Drengurinn: Nei, herra. Ég er
aldrei hræddur í björtu.
★
— Hefur enginn sagt að þú
værir falleg?
— Nei.
— Hvernig datt þér það þá /
hug?
Gálgafrestur
í Sing Sing
BROS
Bandarískur iæknir lét hafa eft
ir sér eftiríarandi ummæli á lækna
ráðstefnu í Bedford í Pennsylvan-
iu nú fyrir skömmu. „Ef þér venj
íð yður á að brosa jafnan breitt,
þá getur það haft mjög slæmar
afleiðingar fyrir andlit yðar. Það
eru hvorki meira né minna en 13
vöðvar, sem hjálpast að því að
framleiða ósvikið bros. Síbrosandi
menn reyna um of á vöðva þessa
og það getur komið fram á and-
liti þeirra“.
í DAUÐAKLEFANUM í Sing I
Sing fangelsinu í Band'arlkjunum, j
sitja nú 16 danðadæmdir morðingj j
ar, aðeins örfáa metra frá her-
berginu, þar sem rafmagnsstóll-
inn er, og bíða þess með öndina
í hálsinum, hvort þeir verða tekn
ir af lífi fyrir 1. júlí eða ekki.
1. júlí ganga í gildi ný lög, sem
afnema skilorðsbundinn daúða-
dóm fyrir morð og rán að yfir-
lögðu ráði. Er talið, að í stað
dauðadómsins muni Rockefeller
ríkisstjóri koma á fangelsisvist.
Tíminn fram að 1. júlí mun því
skera úr því, hvort föngunum 16
verður lengri lífdaga auðið eða
ekki.
Lagabreytingar þessar voru sam
þykktar af lagasamkundu New
York hinn 21. marz síðastliðinn,
sama dagr og fanginn Fredrick
Wood var tekinn af lífi í rafmagns
stólnum fyrir að drepa tvo menn.
Öldungadeildn samþykkti lyrirætl
un þessa 2. april og Rockefeller
ríkisstjóri undirritaði hana í byrj
un maí. Og svo mun hún væntan-
lega ganga í gildi, svo sem áður
segir, fyrsta dag júlímánaðar.
Margir telja þetta merkilegt
skref i þróun réttarfarsins í Banda
ríkjunura, þar sem hér sé um að
ræða upphafið að afnámi dauða-
dóms. En fyrir fangana 16 í dauða
deiidinni er þetta annað og meira
en réttarfarslegur viðburður, —
hér er um líf og dauða af tefla,
hvað þá snertir.
í fyrra var enginn teklnn af
lífi í rafmagnsstólnum í Sing Sing
og í ár er Wood fyrsti maðurinn,
sem hreppir þann óþægilega sess.
Á þriðja áratug aldarinnar voru
alls 161 manneskjur í Bandaríkj-
unum teknar af lífi árlega fyrir
morð. Á fimmta tug aldarlnnar
var talan komin niður í 72 á ári
hverju. Árið 1961 voru framin
8600 morð í Bandaríkjunum og 42
morðingjar teknir af lífi, og var
það lægsta talan um margra ára
skeið. í fyrra voru 46 karlmeun og
ein kona líflátin í Bandaríkjunum
fyrir morð. ■
Cooper og
Lindbergh
Bandaríski geimfarinn, Gor
don Cooper, var aðeins 1
klst. lengur að fara 22 hringi
umhverfis jörðu en flugkapp
inn, Charles Lindbergh að
fljúga yfir Atlantshafið íyrir
36 árum.
Cooper fór um það bil 960
þús. km. á 34 klst., 20 snín.
og 30 sek. — Lindbergh fór
yfir Atlantshafið á 33 klst.,
29 mín. og 30 sek.
Þessi samanburður s>mir
ljóslega, hve ógurlega ört
tækninni hefur fleygt fram á
tiltölulega stuttum tíma. —
Enn vex tæknin og vel getur
verið að hægt verði að gera
annan ólíka samanburð eftir
36 ár héðan í frá.
FIMM
HÖNAR
Þessi mynd er úr dýra-
garðinum í Kaupmannahöfn
og sýnir fimm nýkomna is-
bjamarunga, sem þar munu
verða til sýnis i framtíðinni.
Litlu angarnir eru nýlega
komnir frá heimkynnum sín-
um í óbyggðum Grænlands,
og nú er eftir a5 vita hvernig
þeim fellur borgarmenningin.
mttumtmuumtHWHn
LOGREGLUMENN haía neyðsú
til að gæta kirkjugarðs nokkurs á
ítaliu dag og nótt, vegna kvenna,
sem sækja þangað til atí stíga
trylltan dans. Konurnar sækja
mjög að leiði prests nokkurs, Bom
Gennaro Laurora, sem hvílir í ná
grenni þorpsins Cascina Amata á
mörkum Ítalíu og Sviss. Sögu-
sagnir um prest þennan, sem lézú
árið 1956 herma, að hann hafi ver-
ið gæddur þeirri sérgáfu að geta
rekið illa anda úr fólki. Hefur nú>.
brugið svo við, að móðursjúká
kvenfólk, sem telur sig þjást aií
illum öndum, hefur strcymt til gray
ai Don Gennaro Laurora til aði
leita sér lækninga, enda er hinn
látni enn talinn búa yíir náðar-
gáfu sinni. Svo mjög keyrði að-
sókn kvennapna til kirkjugarðsin»
úr hófi að lögreglan greip í taum
Jana. Var kvenfólkið, sem slundum
.skipti mörgum hundruðum, tekiö
|að kyrja sálma og andleg lög á
leiði hins látna heiðursmanns, þvii
næst jós það sig helgu vatni og
ioks féllu þær í einhvers konair
trans, öskruðu, æptu og rifu í háir
sér.
í SÍÐASTLEÐINNI víku varS
bandariska lögreglan að skerast »
leikinn á ráðstcfnu nýnazista á
Manháttan. Létu sveitir brún-
stakka allófriðlega, og kom tií
mikilla átaka. Virðast nazistaklík
ur færa sig mjög upp á skaftið um
víða veröld og er það mönnurm
talsvert áhyggjuefni.
LÉTUST
í ÍSSKÁP
LÖGREGLAN í Massachusetts
í Bandaríkjunum varði miklum
tíma í það fyrir skömmu að Ieita
tveggja ungra bræðra, sem hurfu
sporlaust. Heila nótt leitaði lög-
reglan og sjálfboðaliðar án þess
að það bæri nokkurn árangur.
Morguninn eftir fundust bræð-
urnir, Kenneth Lacourse 2ja ára
og Brian 4ja ára innilokaðir í stór-
nm ísskáp á heimili sínu. Voru
þeir báðir liðin lík. Talið er að
þeir hafi sjálfir lokað hurðinni að
skápnum af óvitaskap.
8.00
12.00
13.00
15.00
15.00
18.30
22.00
20.00
20.05
20.20
20.45
21.00
21.25
21.45
22.00
22.00
22.30
23.15
Miðvikudagur 39. maí
Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón. —•
8.30 Fréttir. — 8.35 Tónl. — 10.10 Veðurfr.).
Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar).
„Við vinnuna": Tónleikar.
Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. — Tónleikar. — 16.30 Veður-*
Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. — Tónleikar. — 16.30 Veður*
fregnir. — Tónl. — 17.00 Fréttir. — Tónleikar.
Lög úr söngleikjum. — 18.50 Tilkynningar.
Fréttir og veðurfregnir.
Varnaðarorð: Bjarki Elíasson varðstjóri talar um umferðar-
mál.
íslenzk tónlist: Lög eftir Jón Laxdal.
Lestur fornrita: Ólafs saga helga; XXVII. — sögulok (Öskar
Halldórsson cand. mag.).
Píanótónleikar: Sinfónísk svíta op. 8 eítir Carl Níelsen (Her-
man D. Koppel leikur).
Saga Kaldársels; síðara erindi (Ólafur Þorvaldsson þíng-
vörður).
Létt músik í miðri viku.
íslenzkt mál (Ásgeir Blöndal Magnússon cand. mag.). t
Fréttir og veðurfregnir.
Kvöldsagan: „Svarta skýið" eftir Fred Hoyle; XXIV. (Öm*
ólfur Thorlacius).
Næturhljómleikar.
Síðari hluti tónleika Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskóla-
bíói 24. þ. m. Stjómandi: William Strickland.
Dagskárlok.
mfámm - m\\ 1?» $