Alþýðublaðið - 01.06.1963, Síða 4
AUSTIN SJÖ (MINI)
Austin Sjö (mini) hefur flesta beztu kosti
stóru bifreiðanna.
Framhjóladrif og óvenjulega aksturshæfni.
Kraftmíkla vél og viðbragðsfljóta.
Fjöðrun við hvert lijól og mjúkan akstur.
Afar rúmgóður fyrir bifreiðastjóra og farþega
með góðu útsýni á umferðinni.
VerS með miðstöð kr. 117800_
Sýnisbifreið á staðnum.
Garðar Gíslason hf.
bifreiðaverzlun. .
NÚ er rúm vika til kosn-
inga. Sunnndagurinn 9. júní
er mikilvaegur dagur. Þá er ís-
lenzkum kjósendum ætlað að
segja til um það, hvort þeir
vilja áfram hafa samlienta rík-
isstjórn, sem fylgir stefnu
heilbrigðra framkvæmda,
trausts fjárhags inn á við ,
og út á við og félags-
legs réttlætis, — eða hvort
það verður glundroði, sam-
stjórn flokka, sem tortryggja
hvor annan og aðhyUast svo
ólíkar starfsaðferðir, að þeir
geta ekki tryggt landinu heil-
brigt og traust stjórnarfar.
íslenzk flokkaskipting er
þannig, að enginn flokkur hef-
ur von til þess að vinna hrein
an meirihluta á AlþingL Hér
hefur ekki setíð melri hluta
stjórn eins flokks síðan íhalds-
flokkurinn fór með völd á ár-
unum 1924-27. Næsta kjör-
tímabil sat að vísu einnig hrein
flokksstjórn Framsóknarflokks-
ins, en hún hafði ekki hreinan
meirihluta á Alþingi, heldur
naut hlutleysis Alþýðuflokks-
ins. Síðan hafa ávallt setið sam-
steypustjórnir tveggja eða
þriggja flokka, að frátöldum
minnihlutastjórnum tU bráða-
birgða.
Þetta hefur gert íslenzkt
stjórnarfar óstöðugra en ella
hcfði verið, ekki hvað sizt
vegna þess, að í flestum tllfell-
um hafa samsteypustjórnir
rofnað fyrir kosningar, og
flokkarnir yfirleitt ekki gefið
um það neinar ákveðnar yfir-
lýsingar fyrir kosningar, hvers
konar sljórnarsamstarfs þeir
æski að kosningum loknum. —
Má þvi segja, að kjósendur
hafi ekki vitað, hvers konat
rlkisstjórn þeir hafi verið að
kjósa í kosningunum.
Kosningarnar annan sunnu-
dag marka tvenns konar tíma-
mót í þessu sambandi. Núver-
andi stjórnarflokkar hafa starf-
að saman aUt kjörtímabUið,
en það hefur ekki komið fyrir
áður um samsteypustjórnir.
Og þeir lýsa því jafnframt yf-
ir, að ef þeim verði vottað
traust í kosningunum, þá muni
þeir halda samstarfinu áfram
annað kjörtímabil. í fyrsta
skipti um áratuga skeið má þvi
segja, að kjósendur vitL hvaða
stjórn þeir velja, ef þeir kjósa
stjórnarflokkana. Þeir vita,
hvað þeir hafa nú og geta haft
áfram. Þeir vita, hvað þeir
missa, ef stjómarfiokkamir
missa meiri hluta sinn. En þeir
vita hins vegar ekki, hvað þeir
fá, ef svo fer.
Þetta ætti að auðvelda kjós-
endum að gera upp hug sinn
annan sunnudag. Alþýðuflokk-
urinn hefur lagt spilin á borð-
ið af breinskilni og heiðar-
leLk. Hann. hefur reynt aö
vinna vel, íslenzkum almenn-
ingi til hagsbóta og íslenzkri
menningu til eflingar. Hann
mun gera það áfram, ef hon-
um verður veitt traust til þess.
Rússneskir sjónaukar
Vi-ðreisnar — verðlækkun.
Heildsölubirgðir
Eiríkur Ketiisson.
Karlar og konur
Við viljum ráða fleiri laghenta menn og
Ikonur til fastra starfa.
h/fOFNASMIÐJAN
IINHOUl io - - Iíunoi
Reykjavík.
Keflavík Suöurnes
lionsklúbburi Njarðvíkur
heldur listaverkasýningu meðlima sinna í Nýja Félagsheim
ilinu, laugardag, Hvítasunnudag og annan í Hvítasunnu.
Kaffiveitingar.
l, /
Sýningin verður opin alla dagana kl. 13—23.
II Trovatore
Óperan II Trovatore hefur nú um
nokkurt skeið verið flutt í Þjóð-
leikhúsinu, en svo undanega
bregður við, að auglýst hefur verið
í blöðum að nú séu fáar sýningar
eftir. H Trovatore er ein af vin-
sælustu óperum, sem nokkru sinni
hefur verið samin. ítalska tón-
skáldlð Giuseppe Verdi sem samið
hefur margar gullfallegar óperur,
samdi þessa óperu og var húr.
frumsýnd í Róm árið 1853 eða fyr-
ir 110 árum. Það hlýtur að vera
kærkomið öllum tónlistarunnend-
um hér í borg að Þjóðleikhúsið
skuli nú er 150 ár eru liðin frá
fæðingu tónskáldsins gefa þeim
kost á að hlýða á hina töfrandi
tónlist óperunnar sem hrífur hug
og hjörtu manna um víða veröld.
Ég var svo lánsamur að fá tæki-
færi til að njóta þessara áhnfa
í Þjóðleikhúsinu nú fyrir skömmu
og undrast því stórlega ef ópera
þessi verður ekki flutt áfram út
júnúmánuð fyrir fujlu húsi, sé
þess nokkur kostur að fá hina ev-
lendu gesti sem starfa að óper-
unni til þess að vera hér svo lang
an ííma.
Um efni óperunnar og meðferð
söngvara í hlutverkum sínum hefur
verið rætt í blöðum áður. Með
ferð söngvara er yfirleitt ágæt og
minnist ég varla að hafa heyrt
Guðmund Jónsson eða Sigurveigu
Hjaltested betri en einmit'c nú
í þessari óperu. Luns greifi og
Azuens eru eftirminnilegar per-
sónur i meðferð þeirra og sama
má raunar segja um alla einsöngv-
arana, þótt hlutverk þeirra géfi
þeim mismunandi mikið svigrúm
til tilþrifs í söng og leik. Leonóru
syngur og leikur sænsk óperusöng-
kona, Ingeborg Kjellgren af mik-
illi reisn. Þjóðleikhúskórí.nn hefur
hér talsvert verkefni og verður
ekki annað sagt en að hann skili
söng sínum vel þótt fámennur
sé og verði ýmist að syngja sterkt
eða veikt og skipti sér i marga
hópa, sem svo hver út af fyrir sig
syngur sjálfstætt. — S.
Skbbii
SAMEINAR MARGA KOSTl:
FAGURT ÚTLIT. ORKU. TRAUSTLEIKA
RÓMAÐA AKSTURSHÆFNi
CG LÁGT V E R Ð j
TÉKHNESKA Bl FR EI0AU M BOÐIÐ
VOHAMTM.ll VZ. ÍIMI 37661
Glæsilegt framtíðarstarf
Verzlunarstjóm — Hátt kaup frítt húsnæði.
Viljum ráða vanan verzlunanmann, sem iverzlunarstjóra til kaupfélags
úti á landi.
Vöruþekking og reynsla í vöruinnkaupum er nauðsynleg ásamt æfingu
í verzlunarstjórn.
Nánari upplýsingar um kaup og kjör gefur Jón Arnþórsson, Starfs-
mannahaldi SÍS. Sambandshúsinu.
Starfsmannabald S.Í.S.
4 I. júní 1963 — ALÞÝÐU6LAÐIÐ