Alþýðublaðið - 05.07.1963, Blaðsíða 3
15(1 SÉRFRÆDIHGAR A VEC>
Þ STARFA IPAKISTAN
Félag1 Sameinuð'u þjóðanna á Is
landi boðaði blaðamcnn á sinn.'
fund á miðvikudaginn, en þar gafst
blaðamönnum kostur á áð ræða við
ívar Guðmundsson, en hann er for
stöðumaöur uppiýsingaskrifstofu
Sameinuðu þjóðanna í Pakistan.
ívar Guðmundsson er annar af
tveimur íslendingum, sem eru fast
ir starfsmenn Sþ. Hinn íslending-
urinn er Kristín Björnsdóttir, en
hún virinur við skjalavörzlu í að-
alstöðvum samtakanna í New York
Eins og áður segir ræddi var
við blaðamenn og svaraði spurn
ingum* þeirra og fer hér á eftir
stuttur útdráttur úr því sem hann
sagði.
AðiMarríki Sþ eru nú 111 tals-
ins. Sþ hafa upplýsingaskrifstofur
í 45 löndum. Hlutverk þeirra er að
kynna almenningi í aðildarríkjum
Sþ hvað Sþ eru og hvers þær eru
megnugar.
Fundir, þar sem fram fara stór
pólitísk átök bera hæst' í starf-
semi Sþ og hljóta mesta athygli
fjöldans, en aðrir þættir starfsem
innar sem vissulega eru ekki ó-
merkari falla meira í skuggann. ■
Fólk veit oft minna um menningar-
og mannúðarstarfsemi Sþ, sem
visslega er afar þýðingarmikill. i
Stuðningur Sþ við Pakistan er !
Sjópróf á
Norbfirði
Neskaupstað í gær.
Sjópróf hófust í Neskaupstað í
dag vegna árekstrar síldarbátsins
Guðbjargar og brezks togara. Skip
in rákust á í svartaþoku í gærmorg
un 10,8 sjómílur út af Norðfjaröar
horni. Guðbjörg var á 7-8 nulna
liraða er áreksturinn varð. Bak-
borðskinnungur Guðbjargar brotn
aði mikið og rifa kom einnig á
síðu togarans. Togarmn fylgdi Guð
björgu að Dalatanga, en hélt síð
an heim á leið. Guðbjörg var á leið
til lands með 250 mál af sild, er á-
reksturinn varð. 'Hélt hún fyrst
til Seyðisfjarðar, en síðan til Nes
kaupstaðar og var tekin í slipp í
dag. Talið er að það muni aka
þrjár vikur að gera við skemmd-
irnar. Engin slys urðu á mönu-
um og enginn sjór komst í bátinn
enda voru skemmdirnar ofarlega.
Guðni
að mestu leyti fólginn í tæknilegri |
aðstoð. Sþ hafa aðstoðað ýmsar
þjóðir, sem eru í hröðum uppvexti
örri þróun, með því að láta þeim í
té sérfræðinga á ýmsum sviðum
til þess að stuðla að uppbygging-
unni og treysta hana.
í Pakistan eru starfandi 150 sér
fræðingar frá Sþ. Þeir eru launaðir
af viðkomandi ríkisstjórn og Sþ.
Ekki geta Sþ ákveðið það sjálfar
í hvaða grein sérfræðileg aðstoð
skal látin í té í hverju landi, held
ur verður viðkomandi ríki að óska
eftir aðstoð í ákveðinni sérgrein.
Þetta er vegna þess að Sþ hafa
ekki vald til að skipa fyrir og verð
ur því að koma fram beiðni cða
ósk frá hverju aðildarríki, ef Sþ
eiga að koma því til aðstoðar.
Sérfræðingaaðstoð Sþ í Pakistan
er h;n margvíslegasta. Hinn kunni
íslendingur Guðjón Illugason t.d.
leiðbeinir og kennir íbúum Pakist
an fiskveiðar. Annar sérfræ,9ing
ur leiðbeinir um hænsnarækt. Þá
eru í Pakistan danskir sérfræðing
ar í mjólkurframleiðslu, til þess
að stuðla að því að framleiðsla
mjólkur í Pakistan verði bæði hag
kvæm og heilsusamleg. Svissnesk
ur sérfræðingur leiðbeinir um
framleiðslu á ýmsum tækjum, eins
og úrum, loftvogum og þess hátt
ar hlutum, og svona mætti lengi
telja.
Þá er heilbrigðismálastofnunin
að vinna geysilega mikilvæg störf
í þágu Pakistan. Er nú verið að
vinna að útrýmingu maiaríu þar
en hún er mjög útbreidd á Ind-
landsskaga. Tekizt hefur að
stemma stigu við þessari veiki í
löndunum fyrir botni Miðjarðar-
hafsins og víðar.
Barnahjálp Sþ vinnur líka merki
legt og gott starf, þar sem mæðrum
og börnum er hjálpað í hreinlæt-
ismálum og uppeldismálum.
Pencillínverksmiðja hefur verið
rist í Pakistan á vegum Sþ og hefur
hún þegar mörgu góðu komið til
leiðar. í Pakistan er sárasjúkdóm
ur, sem nefnist Yow, mjög út-
breiddur og þjáir marga. Nú er
hægt að lækna þennan sjúkdóm
algerlega með einni penisillin- ■
sprautu, söm kostar sem svarar til
10 krónum íslenzkum.
Stofnanir Sþ eru víðar en í New
York. Víða um heim eru systra-
stofnanir þeirra, sem eru alger-
lega sjálfstæðar með eigin fjárhag
og framkvæmdavald.
í Pakistan eru 95 milljónir
manna. Höfuðborgin heitir Rawal
pindi. En utanríkisþjónusta lands
ins hefúr aðsetur sitt í Karachi og
þar fer um allt flug austur og að
austan. Karachi er -því aðalmið
stöð landsins. Nú eru íbúar Pak
istan að byggja sér nýja höfuðborg
og á hún að bera heitið Islamabad.
ívar Guðmundsson er búinn að
vera tvö ár í Pakistan og líkar vel
við land og þjóð. Hefur hann ný-
lega óskað eftir að fá að vera þat
tvö ár til viðbótar, en skipunar-
bréf hans hljóðar upp á tvö til
fjögur ár.
Frh. á 14. siðu.
VINSLIT
LlKLEGUST
MOSKVA 4.7 Sovézka utanrík-
isráðuneytið hélt því fram í opin-
berri yfirlýsingu í dag, að dreifing
bréfs kínverska kommúnistaflokks
ins um hinar hugmyndafræðilegu
EKKI SAMKOMULAG UM
LANDBÖNAÐARPÓLITÍK
íbúðirnar komu
á númer 57172
og 40961
í fyrradag var dregið í 3. fl.
Happdrættis DAS um 150 vinn
inga og féllu vinningar þannig:
2ja herbergja íbúð Ljósheim
um 22, 2. hæð D tilbúin undir
tréverk kom á nr. 57172 Aðal-
umboð. 2ja herbergja íbúð
Ljósheimum 22, 4. hæð B til-
búin undir tréverk kom á nr.
40961 Hreyfili.
SAAB fólksbifreið kom á nr.
61864 Aðalumboð. TAUNUS 12M
Cardinal fólksbifreið kom á nr.
38746 Aðalumboð.
Bifreið eftir eigin vali kr. 120.
000.00 kom á nr. 26098 Keflavík.
Bifreið eftir eigin val kr. 120.000.
00 kom á nr. 25094 Aðalumboð.
Eftirtalin númer hlutu húsbúnað
fyrir kr. 10.000.00 hvert: 7503,
14708, 16983, 21857, 35582, 38536,
47456, 50717, 54972, 59665.
Myndir frá Kúbu
og A-Þýzkalandi
sýndar í Nýja bíói
Nk. LAUGARDAG kl. 2 e. h. mun
Félagið Varðberg halda kvikmynda
sýningu í Nýja Bíó. Verða þar
sýndar nokkrar kynningar- og
fréttamyndir frá ýmsum löndum.
Félagið hefur áður haft kvik-
myndasýningar fyrir almenning
og voru þær mjög fjölsóttar. Hef-
ur því verið ákveðið að gera sýn-
ingar þessar að föstum lið í starf-
semi félagsins og verða þær í
sumar haldnar mánaðarlega, en
tvisvar í mánuði í vetur.
Starfsemi þessi hefst með því,
að sýndar verða þrjár myndir::
1. KÚBA BÍÐUR. Sýnir hún,
er einvaldinum Batista var steypt
af stóli með þjóðbyltingu Kúbu-
búa og einnig, hvernig byltingin
var svikin af Castro og kommún-
istahjörð hans með fulltingi rúss-
neskra vopna. Myndin er með ís-
lenzku tali.
2. Bændur undir f ógnar-
stjóm kommúnista. Fjallar sú
mynd um aðgerðir hinna komm-
únisku yfirvalda í Austur-Þýzka-
landi gegn sjálfseignarbændum.
Myndin er með ensku tali.
3. Suð-Austur-Asíubanda-
lagið. Kynnir sú mynd hinar ýmsu
þjóðir bandalagsins og siðu þeirra.
Er hún í litum og með íslenzku
tali.
Ókeypis aðgangur að sýningum
þessum er öllum heimill, meðan
húsrúm leyfir, en börnum þó ein-
ungis í fylgd með fullorðnum.
wa
deilur kommúnistaflokka Rúss-
lands og Kína væru skýrt brot á
ákvörðun sovétstjórnarinnar. Er
m.a. vikið að því, að kínverskir
járnbrautastarfsmenn hafi dreift
bréfinu á viðkomustöðum.
AFP hefur það eftir mönnum,
sem fylgjast vel með í Moskva, að
sé að ræða af fyrirhuguðum við-
um þrjár hugsanlegar niðurstöður
ræðum Rússa og Kínverja um hug
myndakerfi kommúnismans: tengsl
flokkanna verði alveg rofin, mála
miðlun náist eða ástandið verði
óbreytt. Hallast flestir að því, að
viðræðurnar muni leiða til al-
•gjörra vinslita.
Fréttaritari Reuters segir, að
viðræðurnar hefjist, er ástand í
samskiptum ríkjanna sé verra en
nokkru sinni. Miðstjórn rússneslca
kommúnistaflokksins lýsti því yfir
í dag, að bréf Kínverja í júnilok
hafi verið ein af mörgum, ástæðu
lausu árásum Kínverja á hug
myndafræðilega afstöðu Sovét-
ríkjanna.
Fyrirlestur
Kjeld Philip
er í dag
Efnahagsmálaráðherra
Dana, dr. Kjeld Phiiip, flyt
ur fyrirlestur í boði Há-
skólans í dag kl. 5.30. Fyrir-
lesturinn, sem verður flutt-
ur á dönsku, fjallar um af-
leiðingar aukinnar efnahags
samvinnu Evrópu.
Fyrirlesarinn hefur lcngi
verið prófessor í viðskipta-
fræði og fjármálafræði við
háskólana í Árósum, Stokk
hólmi og Kaupmanuahöfn.
en ráðherra hefur hann verið
síðan 1957.
Öllum er heimill aðgangur
að fyrirlestrinum.
Áhrif á kjör
þiísunda manna
BONN 4.7 (NTB-AFP) Viðræðum
Frakka og Vestur-Þjóðverja í dag
enduðu, án þess að samkomulag
næðist um þau mál sem til þessa
liafa liindrað Frakka og Þjóð-
verja í aö samkomulag um sam-
eiginlega stefnu í landbúnaðarmál
um innan Sameiginlega markaðs-
ins. í meginatriðum urðu aðilar
sammála um að stinga upp á, aö
samin verði EBE-áætlun um þetfca
vandamál. Það var talsmaður
vestur-þýzku stjórnarinnar, Karl
Giinther von Hase, sem tilkynnti
þetta.
Hann skýrði frá því, að náðst
hefði samkomulag um a'ð skiptast
á frönskum og vestur-þýzkum her
deildum. í sambandi við ákvörðun
Frakka um að draga mestan hluta
franska Atlantshafsflotann undan
stjórn NATO, sagði von Hase, að
Vestur-Þjóðverjar hefðu látið í
ljós von um, að slikt yrði gert á
þann hátt, að það kæmi sér ekki
illa fyrir NATO eða Frakkland. |
Þeir dé Gaulle ag Adenauer
ræddust við um alþjóðamál, en á
öðrum stöðum í forsætisráðuneyt
inu í Bonn ræddust ráðherrar
þe'rra við um ýmis mál, pólitísks
hernaðarlegs og efnahagslegs
eðlis.
VERKFALL
HJÁ SAS
Stokkhólmi, 4. júlí.
(NTB).
UNNIÐ var að því í dag af
alefli að reyna að afstýra
tveggja sólarhringa verk-
falli, sem sænskir og dansk-
ir flugmenn hjá SAS hafa
boðað um hclgina. Aðeins
hefur verið boðað verkfall í
flugi frá Skandínavíu.
mMmmmmmmmmmmmmmm
ÚRSKURÐUR sá, sem Kjaradóm-
ur kvað upp í fyrradag mun hafa
áhrif á kjör nálega 400 starfs-
manna ríkisins, auk ýmissa ann-
arra starfshópa, sem að einhverju
leyti fylgja kjörum ríkisstarfs-
manna. Ekki mun enn vera ráðið
hvenær farið verður að greiða hið
nýja kaup, enda starfi samninga-
nefndir ríkisstjórnarinnar og
Kjararáðs BSRB engan veginn
lokið ennþá.
Þessir aðilar þurfa nú að taka
afstöðu til skipunar einstakra
starfsmanna í launaflokka. Kemur
þar til samræming á starfsheitum
og ný starfsheiti, sem ákvarða
skal hvar skipa skal í flokk. Munu
Kjararáð og samninganefndin nú
vera að vinna að þessu hvor í sínu
lagi, en senda þó tillögur á milli.
Næsta skref verður svo sam-
eiginlegir fundir nefndanna og til-
raunir til að ná samkomulagi um
þessi atriði. Tekst það'ekki, ber
að senda málið til Kjaranefndar,
er fellir endanlegan úrskurð.
Óvíst vh'ðist vera enn, hvort
byrjað verður að greiða hið nýja
kaup strax þeim, sem örugglcga
eiga heima í ákveðnum flokkum,
eða hvort beðið verður þar til
endanlega er búið að úrskurða
um skipun allra í launaílokka.
★ BRÚSSEL: Ekki tókst að ná
samkomulagi milli stjórnarflokk-
anna í dag í „ tungumála-deilunni“
en ný tilraun verður gerð á morg-
un af eins konar pólitískri nefnd,
sem í eiga sæti ráðherrar og full-
trúar þingsins og aðrir stjórn-
I málamenn.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 5. júlí 1963 3