Alþýðublaðið - 07.07.1963, Page 2
jnalJOrtr: GiJU J. Asipörssor. (áfa; »» jjenedlfet Grðnaal.—AOstoOarrltstJón
39ðrgTln GuCmundsspn - Fréttastjórl: Sigvaldl Hjáimarsson. — Blmar.
M8ð9 - lí JOJ — 14903. Auglýslngaslml: 14 906 - AOsetur: AlþýSuhúslO
- rren smlðja AtþíOublaBscns, Hverflsgötu 8-10 — Askrlftargjald kr. 65.00
5 »auu(V. I lairuaölu kr. 4 OO elnt. Otgefandl: AlþýSuflokkurlna
VINNA BÖRNIN OF MIKIÐ?
I BLAÐA-SKRIF hafa orðið um ivinnu bama, og
i hefur verið rætt um átta ára börn, sem starfað
hafa við humar og fisk. Þykir ýmsum nóg um,
; ef þjóðin ÞARF að láta börnin vinna allt niður að
þessum aldri. Aðrir telja þetta ágæta leið til upp-
eldis, enda hafi margir miðaldra menn orðið að
l þræla þegar í bernsku.
í þessum efnxnn eins og fleirum, hefur orðið
■ snögg breyting. Undanfarin ár og allt fram á síð-
astliðið sumar var mikið talað um skort á vinnu
•j fyrir unglinga. Nú heyrist þetta ekki nefnt, enda
; munu flestir unglingar geta fengið vel greidd störf,
J þar sem þeir að meira eða minna leyti skipa sæti
I fulltíða manna, til dæmis í byggingavinnu.
j Enginn getur efast um uppeldisgildi vinnunnar.
j Það er nauðsynlegt að unglingar frá 10-12 ára
j aldri hafi starf hið langa sumarleyfi og hljóti lær-
: dóm ábyrgðar og trausts, svo og nokkra þjálfun í
j meðferð peninga. En það er ekki sama, hvaða vinna
j er. Það er engin dyggð að beita vinnuaga að 8-10
j ára börnum, né heldur að fela 10-18 ára ungling-
um of erfið störf.
j í þessu tilliti ímm vera sérstök hætta varðandi
j mikla inniveru. I mörgum fiskiplássum landsins
j vinna unglingar allt sumarið fastan vinnutíma frá
j morgni til kvölds. Hafa skólamenn varað við þess-
j ari löngu inniveru og hvatt foreldra til að láta
börnin fá nægilegan hvíldar- og utiverutíma. —
Þeir segja margir, að börnin komi föl og þreytt til
í skóla að hausti í stað þess að vera útitekin og
j hvíld, eins og þau eiga að vera.
j Atvinnuhættir íslendinga eru þannig, að freist-
; ingin að nota barnavinnu er næstum ómótstæði-
j leg. Hitt má þó aldrei gleymast, að heilsa og ham-
j ingja uppvaxandi barna er miklu meira 'virði en
tekjur þeirra við að standa í dimmum fiskihúsum
fi’Ilt sumarið. Hér á engin fjölskylda að þurfa að
íláta börn vinna, hvað sem menn segja um verð-
lag, kaupgjald og viðreisn.
Þessu máli verður að gefa betri gaum en hingað
til hefur verið gert. Verkalýðssamtökin verða að
hafa frumkvæði og yfinvöld að veita nauðsynlegan
stuðning til þess, að settar verði almennar reglur
um vinnu barna- og unglinga. Þeir menn, sem
ÞURFTU að þræla í bernsku, ættu að styðja þetta
rmanna fyrst.
1 Augiýsingasíml
AlþýBublaðsins
' er 14906
2 7 júlí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Leiðrétting og
________i.Jdur
KJARADÓMTTR um laun opir-
berra starfsmanna er fallinn —
endanleg niðurstaöa hans hefur
nú verið birt almenningi. Um
langt skeið hafa kjaramál opin-
berra starfsmanna verið eitt aðal- ,
umræðuefni manna í sambandi við
kjaramál almennings. Sterk rök
hafa að því verið leidd að „það op-
inbera“ ríki og bæjarfélög hafi
ekki verið samkeppnisfær við
einkafyrirtæki um beztu starfs-
kraftana í launum. Þannig hafi
þessir aðilar jafnvel misst ýmsa
sína beztu starfskrafta — þrátt
fyrir nauðsynina á því að einmitt
slíkir starfskraftar gegndu hinum
opinberu þjónustu- og trúnaðar-
störfum.
Opinberir starfsmenn hafa sjálf
ir talið sig afskipta í launum miðað
við félagsbundna launtaka innan
Alþýðusambandsins, og munu þó
fáir aðilar þar, telja sig of vei
haldna á launum.
Eitt er vist að um áraraðir hefur
opinberum starfsmönnum verið
beint og óbeint lofað endurskoðun
sinna mála og mörgum sanngjöm
um leiðréttingakröfum þeirra verið
ýtt til liliðar með þeirri vafasömu
afsökun, að slíkt bíði hcildarend-
urskoðunar. — Þessi endurskoðun
fór þrátt fyrir margítrekaðar til
raunir B.S.R.B. ekki fram og virt
ist vart til í hugum þeirra er for-
ystu ríkisins höfðu í sínum hönd-
um, nema til þess eins að ýta þeim
óskum og kröfum, sem erfiðast
var að segja hreint nei við, til
hliðar.
Það er ekki fyrr en á árinu 1959
að þáverandi fjármálaráðherra
Guðmundur í. Guðmundsson skip-
aði nefnd til að endurskoða öll
laun og kjaramál opinberra staxfs
manna. — Núverandi fjármálaráð-
herra Gunnari Thorqffldsen tók
ári síðar við þessum máium og
bar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar
fram, það frumvarp sem að iög-
um varð á síðasta Alþingi og gcrði
þá leiðréttingu mögulega, sem nú
hefur verið almenningi birt.
Störf allra þeirra, sem unr.ið
hafa að undirbúningi þessara fram
kvæmda skulu hér ekki undan
dregin nieð því geysimikla erfiði
og langvinnu striti. — Erfiði, sem
nú verður margfalt vegna þess
hve löng sú marglofaða bið hefur
reynzt eftir leiðréttingum.
Það er kaldhæðni, að sú rík
isstjórn sem sætt hefur liarðastri
gagnrýni stjórnarandstöðu siðari
ára fyrir „kaupkúgun", „launa-
rán“ og „valdníðslu” við alla laun
taka, skuli hafa forystu um þá
endurskoðun og leiðréttingu, sem
vanefnd var áratugum saman af
þeim, er stjórnarandstöðuna
mynda nú.
Opinberir starfsmenn þyrftu a.
m.k. að minnast þess, næst þegar
endurskoðun þessara mála verður
talin nauðsynleg, hverjir þurfa
að vera utan ríkisstjórnar til að
slík sanngirni komist í fram-
kvæmd.
Vinnuveitendur opinberra starfs
manna eru allir skattgreiðendur í
þjóðfélaginu og e.t.v. eru það ekki
kröfuminnstu vinnuveitendurnir.
Oft hafp opinbeVir starfsmenn
orðið að þola ósönn og ósann-
gjörn ummæli um störf sín og
launakjör og munu íslendingar
þó ekfci almennt taldir kröfu-
harðir miðað við aðrar þjóðir í
þessum efnum. Sú leiðrétting, sem
nú hefur átt sér stað um launa-
kjör opinberra starfsmanna mun
vart loka fyrir þann orðróm. Hins
vegar á þessi árangur að gera
starfsglreinúm opiinberra stakfsV
manna betur kleift, að gegna störf-
um sínum, svo sem einstakling-
arnir er starfsgreinarnar mynda,
frekast óskast sjálfir, um leið og
betur ætti að haldast á starfhaef
asta fólkinu. — Þess vegna ber að
óska opinberum starfsmönnum og
þjóðinni allri til hamingju með
þennan sanngjama áfanga.
Eggert G. Þorsteinsson.
Rússneski píanóleikarinn
VLADIMIR ASHKENAZY
leikur píanókonsert no. 1 eftir Tchaikovsky með sin-
fóníuhljómsveitinni í London undir stjóm Lorin
Maazel.
Þessi hljómplata er nýkomin á markað og hefur
hlotið afburða góða dóma gagnrýnenda.
DECCA LXT/SXL 6058. 7 ]
FALKINN hf. Laugavcgi ^
Hljómplötudeild Sími 18-670.
ROYAL T-700
Ódýrasta
f j ölsky Idubif r eiðin
á markaðnum.
Hefur reynzt afburðavel við íslenzka staðháttu.
Bifreiðin hefur sérstaklega byggðan undirvagn
fyrir íslenzka vegi. Eyðsla 5-6 lítrar fyrir 100
km. Rúmgóð og þægileg. Kostar aðeins 114.000
krónur. Á bifreiðinni er ársábyrgð frá verk-
smiðjunni.
Lögð áherzla á
góða varahluta-
þjónustu.
KRÓM OG STÁL
Bolholti 6 — Sími 11-381