Alþýðublaðið - 07.07.1963, Side 7
WENNERSTROM OG NIKOLSKIJ
Stig Wennerström hefur tekið
mikinn þátt í lífi „fína fólksins”
í Stokkhólmi og almennt verið
virtur maður. Hann hefur setið í
opinberum trúnaðarstöðum og ver-
ið falin margvísleg störf á vegum
sænska ríkisins. Afhjúpun hans
hefur því vakið enn meiri athygli
innan lands og utan ella hefði
verið.
Wennerström er fæddur í Rúss-
landi, en hefur lengst af verið
búsettur í Svíþjóð. Hann talar og
les bæði sænsku og rússnesku, og
hefur það mjög auðveldað honum
njósnastarfið. Hann er þekktur
fyrir áhuga á rússneskum mál-
efnum, og hefur meðal annars
oftar en einu sinni farið í skyndi-
heimsóknir til Rússlands.
Til marks um þekkingu Wenn-
erströms á rússneskum málum,
má geta þess, að hann hefur rit-
að bók um rússneskt flug og flug-
menn fyrir sænskt bókaútgáfu-
fyrirtæki. Sú bók nefnist „Röda
vingar”, sem mun þýða „Rauðir
vængir” og kom á sínum tíma út
í hinum svonefnda „Alheims flug
bókaflokki.”
Margar og ólíkar getgátur
snarinn
ström mundi láta sig „hverfa”.
Ekki var þó hægt að koma í vcg
ífyrir þessa ferð Wennerström-
hjónanna til Rússlands, þar sem
enn höfðu ekki fengizt nægar
sannanir fyrir sekt hans. Á með
an á Rússlandsdvöl Wennerström
stóð, var honum sífellt fylgt eftir
af leynilögreglumanni. sem fylgd-
ist með gerðum hans. Lögreglu-
maður þessi starfaði á vegum
sænslcu lögreglunnar cn var af
rússnesku bergi brotinn.
Tveir fulltrúar sovézka sendi-
ráðsins í Stokkhólmi hafa yfir-
gefið Svíþjóð vegna máls þessa
og horfið heim til Sovétríkjanna.
Það eru milligöngumennirnir í
njósnamálinu, þeir Baranovskij
sendiráðsrltari og Nikolskij her-
málafulltrúi. Þeir fóru frá
Svíþjóð með rússnesku flut'ninga-
skipi áleiðis til Leningrad.
Þrír kunnir sænskir lögfræð-
ingar hafa á hendi rann-
sókn njósnamálsins, og eru það
þeir Nils Berglund frá Gautaborg
og Ivan Wellenberg og Gunnar
Dahlmann, báðir frá Stokkhólmi.
Sækjandi W ennerströmsmálsins
verður væntanlega Werner
Rhyninger, en verjandi Carl Erik
Lindahl.
Wennerström hefur sýnt aðdá-
^unarverða stillingu á meðan á yf-
irheyrslum málsins hefur staðið.
Af fúsum vilja og óaðspurður hef
ur hann gert skýra grein fyrir
hinu margháttaða njósnastarfi
sínu. Hann hefur engin þreytu-
merki sýnt, þó að yfirheyrslur
væra talsvert tiðar og óvægilegar.
Nú situr Wennerström ioksiny
á bekk ákærða. Hann situr þar
hnarreistur og ófeiminn, cg segir
allt af létta. Þó að enga iðrun s6
á Iionum að sjá, telja þó margir
að innra mcð sér sé hann bugað -
ur maður.,
Rauða vængi
Wennerströmmálið í rannsókn
Allir, sem fylgjast með erlend-
um fréttum, vita, að fátt er eins
umrætt á Norðurlöndum þessa
dagana og mál sænska Sovétnjósn-
arans Stig Wennerström ofursta.
Hann hefur um fimmtán ára
skeið stundað njósnir í Svíþjóð
fyrir Rússa, og þannig valdið Sví-
um óbætanlegu tjóni bæði peninga
legu og hernaðarlegu.
Wennenström er talinn hafa
látið Rússum í té uppdrætti og
aðrar upplýsingar um neðanjarð-
arbyrgi þau, sem Svíar hyggjast
nota, ef til styrjaldar kemur, á-
samt ýmsum fleiri liernaðarleg-
um og þjóðfélagslegum leyndar-
málum.
Fyrir fimm árum síðan fékk
reglan í Svíþjóð fyrst grun um,
að Wennerström hefði eitthvað
óhreint í pokahominu. Og tvö
síðastliðin ár hefur verið fylgzt
xneð næstum hverju spori Wenn-
erströms ofursta. Það var þó ekki
fyrr en nú, sem hægt var að hand
taka hann fyrir meintar njósnir.
Það var rússneska sendiráðið,
sem veitti þeim upplýsingum, er
Wennerström lét af hendi, við-
töku. Rússneska sendiráðið í
í Stokkhólmi ákvað einnig eftir
hverju skyldi einkum seilzt, og
gaf Wennerström fyrirskipanir
um það. Svo ákafur var hann
í þjónustu sinni, að hann veitti
óbeðinn ýmsar upplýsingar, sem
ýmist skiptu miklu eða litlu máli.
STIG WENNERSTRÖM OFURSTll
FORSÍÐA „RAUÐRA VÆNGJA”
verið uppi um það af hvaða
ástæðum Wennerström hafi leiðzt
i njósnir sínar, en enn hefur
upplýstst um það, sem
er á takandi.
Margír sænskir ráðherrar og
hafa komið fyrir
í sambandi við rannsókn
Wennerströms-málsins. Má þar
nefna Sven Anderson, Tage Erlan-
der og fleiri. Telja margir slælega
frammistöðu af lögreglunni að
ekki þessa menn fyrr
en núna, þar sem þeir kynnu að
hafa gefið markverðar upplýsing-
ar fyrr.
Þegar grunur vaknaði árið 1958,
að Wennerström hefði eitthvað ó-
hreint í pokahorninu var hann á-
samt fleiri samstarfsmönnum sín-
um í vamarmálaráðuneytinu yfir-
heyrður. Ekkett kom þó í ljós, er
sannað gæti sekt hans eða ann-
arra.
Síðastliðinn vetur tók Wenner-
ström sér ferð á hendur til Sovét-
ríkjanna ásamt eiginkonu sinni.
Þá var grunurinn á þvi, að hann
stundaði njósnir fyrir Sovétríkin
orðinn svo magnaður, að vissir að-
ilar i Svíþjóð töldu hættu sam-
fara því að hleypa honum úr
landL Töldu þeir, að Wenner-
SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ :
8.30 Létt morgunlög. 9,00 Fréttir.
9.10 Morguntónleikar: Flugeldasvítan eftir Handel. —-
10.10 Veðurfregnir.
11.00 Messa í elliheimilinu Grand (Prestur: Séra Sigurbjöm -4»
Gíslason. Organleikari: Gústaf Jóhannesson).
12.15 Hádegisútvarp.
14.00 Miðdegistónleikar:
15.30 Sunnudagslögin. 16.30 Veðurfregnir. ,
17.30 Bamatiml (Hildur Kalman).
18.30 „Blessuð sértu, sveitin mín”. Gömlu lögin sungin og leikin.
18.55 Tilkynningar. — 19.20 Veðurfregnir.
19.30 Fréttir.
20.00 Einsöngur í útvarpssal. Sigurveig Hjaltested syngur lagaf'L
„Bamaherbergið” eftir Músorskij. Við píanóið: Ragnar Björns—
son. Lesari: Guðrún Ásmundsdóttir.
20.20 Svona ljúga silungar, síðari hluti smásögu eftir Roland Perfr-
wee, í þýðingu Sigríðar Ingimarsdóttur (Rúrik Haraldsson).
20.45 Tónleikar í útvarpssal:
Paul Badura-Skoda píanóleikari frá Vínarborg leikur sónötut
nr. 32 í c-moll eftir Beethoven.
21.10 Segðu mér að sunnan, nýr þáttur til fróðleiks og skemmtunaí?'
í umsjá Ævars R. Kvaran.
22.000 Fréttir og veðurfr. 22.10 Danslög. 23.30 Ðagskrárlok.
MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ :
20.00 Um daginn og veginn (Ámi Óla ritstjóri).
20.20 íslenzk tónlist. Tvö verk eftir Jón Nordal.
20.40 Þúsund ár, ferðaþáttur frá Snæfellsnesi eftir Þorkel Jóhanr?*
esson prófessor. (Gils Guðmundsson rithöfundur les).
21.20 Útvarp frá íþróttaleikvanginum í Laugardal. Sig. Sig. lýsis?
siðari hálfleik í knattspyrnukeppni Finna og úrvals ísl.
22.10 Fréttir, síldveiðiskýrsla og veðurfregnir.
22.30 Búnaðarþáttur: Um jarðræktarframkvæmdir 1962 (Hannes
Pálsson frá Undirfelli).
22.45 Kammertónleikar Tríó í B-dúr op. 97.
23.30 Dagskrárlok.
HIN SlÐAN
■ ■
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 7. júlí 1963 |