Alþýðublaðið - 25.07.1963, Page 9

Alþýðublaðið - 25.07.1963, Page 9
ibrigrðum, er þeir sjá, að þær kki fallegar í þessu ástandi? Þverstrikið sýnir þá hæð, sem áætlað er að turnbyggingin nái á næstu tveim árum. að verður hver sókn að eiga sína kirkju og þeim mun betra, því dýrari og stærri sem kirkjan er. Vafalaust hefði mátt sameina tvo til þrjá Reykjavíkursöfnuði um eina kirkju, e'f vilji hefði. verið fyrir hendi. Þeim vilja virðist ekki fyrir að fara hér í borginni. Væri nú ekki ráð að jafna við jörðu þau mannvirki, sem þarna hafa verið reist, að undanskild- um kórkjallaranum, og nota hann um skeið, láta síðan, ef vilji er fyrir hendi, teikna kirkju . allt að þriðjungi minni, en þá sem fvrirhuguð er, og reisa hana einhvers staðar annars staðar í sókninni, en á Skólavörðuholt- inu? „Húsameistari Ríkisins tók handfylli sína af leir“, kvað Steinn Steinarr, en nú eru það fleiri en Hallgrímur Pétursson sem segja „Ekki meir, ekki meir“. „Fyrrverandi sóknarbarn“. ÞETTA er nýjasti brezki smábíliinn, HILLHAN IMP. Ilann er með sætum fyrir fjóra, — og það sem talið er markverðast við hann er, að vélin er úr alúminíum blöndu, og mjög létt. Hún er 42 hemlahesliifl, og hámarkshraðinn er gefinn upp 75 mílur á klukkustund. Vélin vegur aðeins 170 pund, sem eraðeins hálft við venjulegar vélar úr potti. Benzíneyðslan á að vera minni en hjá sambærilegri vél úr öðru efni. Annað er það, sem talið er athyglisvert í sambandi við Hillman Imp, en það er, að aflflutningurinn frá benzínstigi að blöndungi, er með mjög nýstárlegum hætti. Þar eru ekki neinar stengur eða taumar, heldur gerist aflflutningurinn fyrir hjálp loftþrýstings. Talið er að Hillman Imp muni verða framleiddur til útflutnings með haustinu. IIIIVMIIIII flötur kirkjunnar, er hún verður fullbyggð. En víst mun það öm- urlegt fyrir klerka Hallgrímssókn ar að messa yfir fáeinum hræð- um á nokkrum bekkjum kirkjunn ar, þegar þar að kemur. Hér er verið að sóa milljónum af almannafé. Meginið af fénu til kirkjubyggingarinnar mun fengið úr ríkiskassanum. Það sem frá söfnuðinum sjálfum kemur mun nokkuð, en hefur þó lítið að segja í þessa hít. Turn kirkjunnar á að verða allt að 75 metra hár. Og verður ógnarlegt að sjá það ferlíki rísa á miðju Skólavörðuholti. Hvað' segir Flugmálastjóri annars um turninn og flugumferð um R eyk j avíkurflugvöll? Það er persónulegt álit þess, er þetta ritar, að kirkjulíkan það, er sýnt hefur verið á mynd um í blöðum hér, sé aldeilis for ljótt. Slíka fullyrðingu er að sjálf sögðu ekki hægt að rökstyðja, hér er aðeins um persónulegt mat að ræða. En ekki munu all- ir á einu máli um fegurð kirkj- unnar. íslendingar eru um þessar mundir ékki kirkjuræknir. Sam- bandið 'miili kirkjunnar og yngri kynslóðarinnar er harla lít ið og í mörgum tilfellum ekki neitt. Kirkjan hefur brugðizt hlutverki sínu gjörsamlega, en nú allra síðustu ár hefur nokk- uð verið reynt að klóra í bakk- ann, en eftir er að sjá .hver ár- angurinn af því verður. Það er algjör óhæfa að kasta fé á glæ í byggingar eins og Hallgríms- kirkju. Eins og málum er nú hátt ÞVÍ var spáð á þingi olíusér- fræðinga í Frankfurt fyrir skömmu, að á næstu árum mundi bíium með sjálfskiptingu fara fjölgandi í Evrópu. Eins og mál- um er nú háttað eru 85% allra bíla sem framleiddir eru í Banda- ríkjunum með sjálfskiptingu, en aðeins 1% bíla, sem framleiddir eru í Evrópu eru með sjálfskipt- ingu. Rúmlega 6 þúsund olíu- og gas- sérfræðingar frá 62 löndum sátu þetta þing, þar var rædd þróun og tækni nútímans. Það voru sérfræðingar frá Socony Mobil Oil Company, sem unnu að rannsóknum varðandi framangreint efni. Hinn mikli mismunur, sem þarna er á, á meðal annars ræt- ur sínar að rekja til þess, að ekki er nema tiltölulega stutt síð- an, það varð tæknilega mögulegt að tengja sjálfskiptingar við litlu mótorana, sem jafnan hafa verið svo vinsælir í Evrópu. Ástæðan fyrir vinsældum þeirra, er fyrst og fremst sú, hversu ódýrir þeir hafa verið. bíll með venjuiegri handskiptingu. Hliðstæð tala í Bandaríkjunum er því sem næst 7 prósent, Það hefur verið sýnt fram á það, að bílar með sjálfskiptingu eru að mörgu leyti hentugri en bílar með venjulegri skiptinu. Eitt stærsta bílaleigufyrirtækið í Bret landi, kannaði þessi mál hjá sér og komst að því að bílar með sjálf- skiptingu lentu sjaldnar í árekstr- um, en bílar með venjulegri skipt- ingu, og ennfremur kom í ljós að hjólbarðanýting var betri á sjálf- skiptum bílum. Það gefur auga leið að auðveld- ara er að stjórna sjálfskiptum bíl, heldur en bíl með handskiptingu, og er það sjálfsagt af þeirri á- stæðu, sem sjálfskiptir bílar lenda sjaidnar í árekstrum en hinir. 700 þúsund bílar í Sviss I JAPAN voru á síðastliðnu ári 2 bílar á hverja 1000 íbúa landsins. I SVISS eru nú sjö hundruð þúsund bílar, og lætur þá nærri að einn bíll sé á hverja sjö íbúa landsins. Árið 1914, áður en heimsstyrj- öldin fyrri brauzt út voru 5000 bílar skráðir í Sviss. Fæstir munu Eins og málin standa nú, er fram I vita, að á þeim tímum átti Sviss- leiðsla, eða samsetning sjálfskipt- inga mikið dýrari í Evrópu en í Bandaríkjunum, til þess að auka framleiðslu sjálfskiptra bíla í Ev- rópu verður að minnka þetta bil. Tölur sýna, að sjálfskiptur bíll kostar 12,4% meira í Bretlandi en lendingar sínar eigin bílaverk- smiðjur og var þriðjungur þessara fimm þúsund bíla innlend fram- leiðsla. Þessi bílar eru að sjálf- sögðu allir komnir úr umferð núna. Sú gerðin, sem frægust var og lengst við lýði var „AJAK“. Sekt fyrir að ( horfa á sjónvarp j BANDARÍKJAMAÐUIt nokkur, Richard Fields frá Maine, hefur , verið sektaður fyrir að horfa á sjónvarp. j Hann hafði nefnilega látið koma ! fyrir sjónvarpstæki í mælaborð- inu í bílnum hjá sér, og stytti sér síðan stundir við aksturinn við að horfa á sjónvarpið. , ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 25. júlí 1963 $

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.