Alþýðublaðið - 27.08.1963, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 27.08.1963, Blaðsíða 15
ÁSTARSAGA Á SJÚKRAHÚSIEFTIR: LUCII LA ANDREWS „Já, þakka yður fyrir". Ég and varpaði þungt. — „Þúsund þakk ir fyrir vasaklútinn. Það var fall egt af yður að lána mér hann. Ég skal sjá til þess, að hann ve'rði þveginn og senda yður hann svo við tækifæri“. „O, hugsið ekki um þá smá- muni“. Hann skoðaði hönd mína enn einu sinni. — „Látið sára- bindin vera utan um skurðinn þangað til ég lít á höndina aft- ur. Og gætið þess að halda þeim þurrum. Ég tek yður svo aftur í rannsókn eftir þrjá daga“. „Gét ég farið á vakt í kvöld, læknir?" „Þér getið ekki farið á vakt fyrr en ég hef tekið sauminn burt“. „Hvaða vandræði", sagði ég og bar mig illa. „Jú, sjáið þér til, sagði hann og brosti. „Ekkert okkar hér á Margaret er ómissandi.“ „Eruð þér ekki sammála, syst ir“, spurði hann. „Jú“ svaraði ég og dró seim- inn. Ég var alltof óhamingjusöm á þessari stundu til að hirða um, hvort ég segði satt eða ekki. — „Það er ekki það að ég haldi, að ég sé ómissandi heldur hitt að ég veit, að það er alltaf nóg að gera á deildinni. Yfirsystirin hef ur í nógu mörg horn að líta þó að hún bæti ekki líka við sig mínuin störfum.“ „Störf yðar munu ekki hlað- ast á yfirsysturina, því að hún er að hætta. Þetta er síðasta nætur- vaktin hennar“. Ég starði orðlaus á liann. — „Er hún að hætta?“ — „Ég stein gleymdi, að ég hafði heyrt það •áður. Ég gleýmdi líka við livern ég talaði. „Já, það er ekkert leyndarmál. Hafið þér ekki heyrt það?“ — Hann skýrði mér frá því að hún liætti næturvaktinni og flyttist í sess Mercer yfirhjúkrunarkonu í móttökudeildinni. — „Þér hljót ið þó að vita að frk. Mercer er að hætta?“ Ég kinkaði kolli. — „Já, ég hef heyrt það“, hvíslaði ég án þess að þora að líta upp. Til að spyrja að einhverju spurði ég, hver tæki þá að sér næturvaktina. „Núverandi aðstoðarsystir á næturvaktinni. Frk. Bennings flyzt svo í hennar stöðu“. Fréttin uni að Bennings ætti að flytjast á næsturvaktina var meira en nóg fyrir mig. Ég átti éftir tvo mánuði í viðbóta á Marg arget. Þeir tveir mánuðir yrðu mér vérri en martröð. Jake stóð upp. — „Ef þér er- uð búnar að jafna yður, held ég áð ég verði að yfirgefa yður. systir. Ég á eftir að koma við á nokkrum stofum. Yfirsystirin kemur innan skamms og sækir yður“. „Já, þakka yður kærlega, lækn ir“. — Ég leit upp og hann virti mig vandlega fyrir sér. Um- hyggjusemi lýsti sér úr hverjum andlitsdrætti hans. Jake var dug legur læknir og fylgdist vel með líðan sjúklinga sinna, það vissi ég af fyrri reynslu. Nú var ég orð in sjúklingur hans, og þess vegna lét hann mig skipta sig nokkru. Og ég myndi skipta máli fyrir hann, þangað til að hann hefði tekið sauminn burtu. „Ég held nú, að þér séuð alls ekki búnar að jafna yður full- komlega, systir. Mér virðist þér talsvert þreytulegar- Þér ættuð að koma yður fljótlega í rúm- ið“. Hann rétti úr sér og ljósið yfir skurðborðinu féll á andlit 33 honum. í skini ljóssins sá ég glöggt hvern minnsta andlitsdrátt hans. Hann virtist talsvert elli- legur á þessari stundu. Erfitt starf hafði sett á hann mark sitt. Svona mun hann þá líta út, þeg- ar hann verður gamall, hugsaði ég og virti fyrir mér andlit hans og hár, sem virtist hvítt í ijósinu frá lampanum. Ég fór að velta því fyrir mér hvað hann væri í rauninni gamall. Og ég komst að þeirri niðurstöðu, að hann myndi vart meira en 35 ára. Til þess að segja eitthvað, sagðist ég eflaust mundu jafna mig, ef mér tækist að sofna of- urlitinn dúr. Hann kinkaði kolli dálitið annars hugar. — „Yfir- systirin fylgir yður til sjúkrastof unnar. Ég býst við að við tök- um sauminn úr eftir tíu daga. Það verður ef til vill það síð- asta, sem ég geri á þessu sjjúkra húsi. Ég hætti eftir nákvæmlega níu daga, en þar sem ég hef saum að saman þennan skurð, vil ég gjarnan leggja síðustu hönd að honum". — Hann brosti að sið- ustu orðunum og var hugsi. „Ég þalcka yður innilega fyrir hugulsemina, læknir", sagði ég óeðlilega stirðmál. Hann svaraði ekki, kinkaði enn einu sinni kolli og gekk út úr skurðstofunni. Ég sat eftir og beið yfirsysturinnar. Hún kom efttir skamma stund og fylgdi mér til sjúkrastofunnar. Ég var aðeins eina nótt á sjúkrastofunni, næstu nótt fékk ég leyfis til að flytja mig til her bergis míns í vistarverum hjúkr unarkvenna á næturvaktinni. Ég varð að ganga með handlegginn reifaðan en gat að öðru Ieyti haft það eins og mér sýndist að því undanskildu að ég mátti ekki fara neitt frá sjúkrahúsinu án þess að fá til þess leyfi. Ég varð líka að fara snemma í háttinn og fara vel með mig. Ef ég hefði ekki verið svo hnuggin vegna Jakes, hefði mér liðið reglulega vel þessa tíu daga. Á þriðja degi fór ég til Jakes og hann skoð- aði höndiri. Á leiðinni frá hon- um rakst ég. á yfirnætursystur- ina. Hún spurði hvemig ég hefðl það. Ég lét vel af því svo fór ég að hlústa á samræður hennar' við aðra systur, sem bar að í þessum svifum. Þær töluðu um frk. Merc er. Þær sögðust vera mjög ánægð ar fyrir hennar hönd vegna nýju stöðunnar. Ég beið þess óþolin- móð, að við færum aftur á systra heimilið, svo að ég gæti spurt nánar út í þetta. Yfirsystirin yfirgaf okkur og ég fylgdist með systurinni út í garðinn fyrir framan húsið. Þeg ar þangað kom gat ég ekki leng- ur dulið forvitni mína. — „Þið voruð að tala um hina nýju stöðu frk. Mercer, sagði ég. Ætlar hún . . .“ Ég komst ekki lengra, því að systirin greip fram í fyr- ir mér. „Já, er það ekki dásamlegt? Við söknum hennar allar mjög en vonum jafnframt að hún komi aftur til okkar einhverntíma seinna". — Ég botnaði hvorki upp né niður. — „Frk. Mercer er full ung til að fá ábyrgðar- stöðu að verða aðstoðarforstöðu kona á Marthasjúkrahúsinu en við erum allar sannfærðar um að hún mun spjara sig. Við er- um líka afar stoltar yfir því að hún skyldi verða valin úr þeim stóra hópi, sem sótti um stöð- una“. Ég var alveg orðlaus. Ég vissi ekki hvað ég átti að gera eða segja. En strax og ég áttaði mig skundaði ég upp til þeirra Ang- elu og 'Josephinu. Ég hafði ekki séð þær í langan tíma. Angela var í fríi og ég rakst strax á hana. „Nei, halló, Rósa. Ég vissi, að þú mundir einhverntíma líta inn til okkar. Hvernig ertu í hend- inni? Ég heyrði, að Jake Warn- ing hefði gert að henni.“ „Heyrðu, Angela, hefurðu heyrt um . .. Hún greip fram í fyrir mér. —. „Systur Bennings? Hvort ég hef. Ég var einmitt að vona, að mað- ur yrði laus við hana eftir þessa þrjá mánuði á Francis og svo fær maður hana bara á nætur- vaktina í staðinn. Hefurðu ann ars talað við Josephinu?" Ég svaraði því neitandi. Ang- ela skýrði mér frá því, að Josep. hine hefði gengið á fund yfir- hjúkrunarkonunnar og beðið um að verða leyst frá störfum. — „Hún og Gus ætla að fara að gifta sig“. „Svo að hún ætlar að fara að hætta". — Ég lét fallast niður í, stól. — „En allar þær breyting-1 ar, sem hér eiga sér stað“. „Læt ég það nú vera. Hún er sú eina okkar, sem ætlar að hætta.“ „En hvað með yfirsysturina á móttökudeildinni . . . og yfir- lækninn?" Angela fór að hlæja. — „Kæra, Rósa. Hvaða máli skiptir það okkur, þó að það háttsetta hætti? Þú veizt, að við erum að eins á fyrsta ári. Og okkur kem- ur það eitt við að brjótast á- fram og komast á toppinn." „Kannski þú hafir rétt fyrir þér“, tautaði ég dapurlega. Hún horfði forvitnislega á mig. — „Er eitthvað, sem amar að þér Rósa? Þú ert ekki eins glaðleg og þú ert vön. Er bér vona illt í hendinni eðá hvað?“ Ég varð að finna mér einhverja afsökun svo að ég jánkaði þessu. — „Já, ég hef stöðugun verk“. Og þetta var rétt. Mið verkjaði stöðugt, — ekki í hendina held ur í hjartað. Þegar níu dagar voru liðnir var ég bókstaflega að springa af eftirvæntingu. í síðasta skipt- ið fengi ég þó að sjá hanri. Ég ætlaði að færa mér þá stuttu stund í nyt eftir því, sem fram- ast væri unrit. Ég ætlaði líka að kveðja hann og þakka honum fyr ir svo margt. Þegar sú stund rann upp, að Jake skyldi taka sauminn úr hendinni og ég kom til sjúkra- stofunnar varð ég heldur en ekki fyrir vonbrigðum. Jake hafði beð ið nýja yfirlækninn, Embryo að nafni, að taka úr mér sauminn. Jake hafði yfirgefið sjúkrahúsið kvöldið áður. Ráðskonan á systraheimilinu mætti mér, þegar ég kom frá yf irlækninum. — „Þér ættuð að lyfta yður svolítið upp, systir Standing, sagði hún. Þér hafið verið alltof mikið inni við upp á síðkastið. Þér. eruð svo þreytu- legar. Þér þekkið einhvern í London vænti ég? Farið þangað eða eitthvað annað. Gerið eitt- hvað óvenjulegt, í kvöld. Lofið því að minnsta kosti að halda ekki kyrru fyrir hér.“ Mig langaði ekki til að fara neitt. Hins vegar hafði ég ekki rænu á að mótmæla. Þess vegna sótti ég kápu mína og hatt, snyrti mig betur en venjulega og fór út úr systraheimilinu. Ég settist upp í strætisvagn og ók um stund án þess að vita fyllilega á hvaða leið ég var. Senn nálgað ist hádegisverður og ég fór að velta því fyrir mér, hvar ég ætti að snæða hann. Þá kom mér til hugar litla, vinalega veitingastof an hans Bert. Ég þurfti endilega að fá mér einhverja hressingu, að minnsta kosti kaffisopa. Og hjá Bert gat ég verið ein og út af fyrir mig. Já. Ég ætlaði að heimsækja Bert. 14. KAFLI Bert þekkti mig strax aftur. — „Halló, fröken. Nokkuð í frétt- um?“ Ég skýrði honum frá því, að ég hefði skorið mig í hend- inni, væri í sjúkraleyfi og lang- aði að fá mér að borða hjá hon- um. „Þér hefðuð ekki getað farið á heppilegri stað til að fá yður eitthvað í svanginn, svaraði Bert. Kannski megi bjóða yður steik? Setjist bara við eitthvert borð- ið og bíðið þangað til ég kem með matinn." Góðar vörur! Gott verð! NÝKOMEÐ: Japanska Terylenið í btrxur og pils. Lækkað verð. Dönsku korsilettin í stórum stærðum. 100% Spun Rayon efnið í koxgráum og milligráum lit, tilvalið í buxur og pils. — Aðeins 127,-. Gardinuefnl, mikið úrval. Stórisefni, margar gerðir og breiddir. Bobinett efni, verð frá 17.80 m, Kaffidúkar, mislitir, fjölbreytt úrval. Plastefni og plastdúkar, — fallegt úrval. Snægurveraefni hvít og mis- lit. Lakaléreft hvít og kremuð. Fiðurhelt og dúnhelt léreft. í bláum lit. Milliverk í sængurver, fjöl- breytt úrval. Léreftsblúndur og milBverk. Dömubindi aðeins 11,50 pk. Póstsendum. — Sírni I6700l Verzl. Sigurbjörn fíárason Hornið Njálsg. og Klapparstíg. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 25. ágúst 1963 |£

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.