19. júní - 01.11.1919, Síða 4

19. júní - 01.11.1919, Síða 4
36 19. JÚNI málum sem helst geta sundrað eða sameinað kraftana. En að undanteknum þessum aðal- stefnum verður hver einstakur með- limur flokksins að hafa fullan rélt til að kjósa samkvæmt sannfæringu sinni og fylgja rödd samviskunnar, en þetta er hvorltveggja bannað eftir núgildandi flokklögum. í slíkum flokk sem þessum mundu menn greiða at- kvæði í einu máli með sjálfstæðis- mönnum, í öðru með heimastjórnar- mönnum án þess þó að verða lið- hlaupar eða svikarar við sína eigin stefnuskrá, vegna þess að fyrsti liður hennar er, að engin megi breyta á móli samvizku sinni. t*rátt fyrir þetta geta þeir fylgt þeim aðallínum, er þeir hafa markað sér, en hver tekur afstöðu til þess á hvern hátl hann vill koma þeim i framkvæmd. Að slíkt sé framkvæm- anlegt, má sýna með dæmi í þingsögu Svía. (Þessu dæmi er slept hér). Tökum til dæmis að nýji ílokkur- inn vilji styðja bindindi. Nú vill einn flokksmaður auka það með algerðu banni, annar með takmörkun á vin- sölulöggjötinni. Báðum væri leyfilegt að velja þá aðferð sem honum þætti bezt henta, en hvorugur gæti talist til flokksins nema liann játaði sig vínbindindi hlyntan. Hið sama gilti um önnur mál. Að- alatriðið er málefnið sjálft, hitt væri hverjum i sjálfs vald selt, hverja að- ferð hann veldi til að koma því í framkvæmd. Þetta nær eigi aðeins til þeirra málefna sem nú eru knýj- andi, heldur og til þeirra er verða munu ágreiningsefni síðar, og þá einkum allra þeirra mála sem standa í sambandi við þjóð/élagsréttlœtið. Þetta orð vel eg af áseltu ráði. Því nú, er alger sósíalismus er orðin að takmarki, er engin trygging fengin fyrir því, að hann verði hið sama sem algert réttlœti. Þess er eigi að vænta, að konurn- ar láti eigi blekkjast af valdavímunni, ef flokkur þeirra kemst í meiri hluta. Því eins og stéttarbaráttan hefir safn- að körlum og konum undir sameig- inlegan rauðan fána, þannig mun og stéttarígurinn fylla þau hinni sömu sigurvímu. En vér hinir, konur og karlar, get- um unnið að friðþægingu ókomnu kynslóðarinnar, ef vér göngum í þjónustu þess valds, sem eitt mun megna að sameina þær stéttir, er nú standa á öndverðum meið og úr þeim mynda nýja kynslóð. Bak við allar deilur, öll mistök, allar einhliða stefnuskrár, allar rangar ályklanir, sem breyta verður, vinnur hið skap- andi vald. Þeir sem Ijósast sjá og dýpst skygnast, verða hans varir, hins hei- laga anda, er spámaðurinn talar um að verða muni konungar hins þriðja rikis. Vér verðum að skoða alt, einn- ig kosningarrétt kvenna, frá sjónar- hæð eilítðarinnar, ef vér viljum öðl- ast réttan skilning á því. Skyldu konurnar nú, er þær halda innreið sína í stjórnmálalandið, færa þangað þá hluti er hafa ævarandi gildi, — sannleika og réttlæti, góðvild og feg- urð, — eða ætli þær örmagnist und- ir starfinu og sökkvi niður í lítil-

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.