19. júní - 01.11.1919, Síða 5

19. júní - 01.11.1919, Síða 5
19. JÚN f 37 mótlegri kjör, en þær höfðu meðan þær voru útilokaðar. Skyldu þær nú eftir megni vinna að því takmarki, sem einnig er að verða karlmönnun- um ijóst: að ummynda sljórnmálin og koma þeim í betra samræmi við boðorð samvizkunnar. Eitt er víst, að ekki ganga konur í þjónustu hins heilaga, skapandi anda, ef þær sleppa sér inn í núver- andi flokksþrætur, með þeim brögð- um sem þar er beitt. Þær verða ein- dregið að afneita þeim anda er þar ríkir, en á þessu verður lítill minni hluti að byrja. En auðnist þeiui að vinna í anda þess valds, sem ávalt er lífgjafi allrar blessunarrikrar þró- unar, munu áhrif þeirra aukaSt, uns þau verða afi til endurfæðingar öllu stjórnmálalífinu. Þetta takmark ber þó eigi að skilja sem draumsjón í fjarska. Nei, það þj'ðir að konurnar vinni að áhuga- málum sínum á hreinni og flekklaus- ari hátt, en blindri hlýðni við flokks- aga. Innan flokks hinna óháðu munu engin hrossakaup eiga sér stað, eins og meðal hinna flokkanna. Þeir munu heldur kjósa að bíða, en vinna málefnum sinum fylgi með því að segja »já« við því, er samvizkan býð- ur þeim að kveða »nei« við. Skilji konurnar það, hvílíkt sið- bætandi vald þær muni að fáum ára- tugum liðnum hafa öðlast, ef þær nú þegar sameina sig uin ákvörðun- arrétt samvizkunnar og einstaklings- vitundarinnar í stjórnmálum, er eng- in liætta á þvi, að þær nú láti reka sig eins og lömb í stekk, í þá stjórn- málaflokka sem fyrir eru, Stefnuskrá »hinna óháðu« á ekki að verða stærri en svo, að hún verði falin í kvenlófa. En allir þeir, sem hana aðhyllast, eiga að taka höndum sam- an, og gera það órjúfanlega lieit: að þeir skuli öllu öðru framar virða hver annars og silt eigið samvizkufrelsi. Að eins þær konur sem veita hinu nýja stjórnmálafrelsi sínu viðtöku með eld þessa loforðs brennandi í sálu sinni, geta orðið til þess að skapa hina nýju veröld, sem nú er draumar fárra útvaldra; þá framtíð sem einnig meðal fjöldans mun láta nýja kynslóð fram vaxa. Grein Ellenar Key hefir vakið mikla eftirtekt og komið út bæði í dönskum, finskum, norskum og sænskum kvenna- blöðum. Því álitum vér rétt að gefa ís- lenzkum konum kost á að kynnast efni hennar. Skoðun Ellenar Ivey á því, hvernig konur geti hagnýtt kosn- ingarrétt sinn sér til sóma, er orð i tíma talað nú, er kosningar standa fyrir dyr- um. Má vel vera, að pau aftri margri konu frá að gefa sig flokksofstækinu á vald og veita mótsöðu fögrum loforðum atkvæðasmalanna. Pví pó óháði tlokkur- inn hennar eigi enn langt í land hjá oss og greinin sé rituð til leiðbeiningar peim, er pátt eiga í pingstörfum, frekar en kjósendum til pinga, mega pó hinir síð- ari margt af henni læra. Neistaflug. (Tagore'. Guð blygðast sín pegar hann heyrir pann, sem er hamingjusamur, stæra sig af velgengni sinni. Rangindin pola eigi að vera yfirunnin. Réttlætið polir pað.

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.