19. júní - 01.10.1920, Qupperneq 2

19. júní - 01.10.1920, Qupperneq 2
26 19. JÚNl VI. fundur Alþjóðaráðs kvenna í Ivrist- janíu 8.—18. sept. 1920. Þegar alþjóðaráðið (I. C. W.) síð- ast hélt fund, í Róm 1914, bar Gina Krog, fyrir hönd norskra kvenna, fram það boð, að næsti fundur þess yrði haldinn i Kristjaníu. Hið reglu- lega fundarár var 1919. En hinum hugumstóra foringja norskra kvenna átti ekki að auðn- ast að lifa þann dag, er konur allra landa mættust undir handleiðslu hennar. Þegar hún féll frá var tví- sýnt hvenær fundurinn gæti orðið. Styrjöldin var þar þrándur i götu. En jafnskjótt sem rofa fór til, var undirbúningurinn hafinn. Stjórn I. C. W. vann að öllu þvi, er snerti dag- skrá og störf fundarins, en heima í Noregi unnu konur norska kvenna- ráðsins af kappi að því að undir- búa móttöku gestanna. Og svo var boðið látið út ganga: í september sjáumst við í Kristjaníu, gamlir félagar úr kvennaráðunum mætast á ný, ný lönd senda þangað fulltrúa, vér bjóðum þá velkomna í hópinn. Hittumst heilar! eftir langan og myrkan tima haturs og bróður- morðs. Til fundarhaldanna var ákveðinn veglegasti staðurinn sem völ var á. Sjálf stórþingisbyggingin. En um þá byggingii er Norðmönnum ant, hafa hana í miklum heiðri og hafa eigi fyr lánað hana til neinna annarlegra starfa. En nú ætlaði stærsta kvenna- samband heimsins að halda ráðstefnu sína í borginni. Húsnæðið velkomið, auðvitað endurgjaldslaust. Handa konunum er það besta ekki of gott. Og 50,000 kr. fjáveiting úr ríkissjóði, til fundarhaldanna. Fundardagarnir voru ákveðnir 8. til 18. september. Fyr gat það eigi orðið vegna þess að þing sat fram til loka ágústmánaðar. Þetta var all- seint á sumri og í Kristjaníu, eins og víðar, er mikið undir veðri komið. Nú var sumarið að kveðja. Norð- menn sögðust ekki sakna þess i þetta sinn, því óvenju kalt og illhryssings- legt hafði það verið. Með september breyttist veðrátta og var hver dagur- inn öðrum fegri, indislegir síðsumar- dagar, með fyrstu litbrigðum hausts- ins og þroskuðum aldinum á trjánum, en blómin enn i fullum skrúða. Við íslenzku fulltrúarnir lögðum leið okkar yfir Kaupmannahöfn og eftir nokkurra daga dvöl þar lögð- um við af stað til Noregs, sjóleið, með góðu og þægilegu farþegaskipi, »Kong Haakon«, er gengur milli Kristjaniu og Hafnar. Á skipinu hittum við nokkrar kon- ur, er voru á sama ferðalaginu. Flestir dönsku fulltrúarnir voru þar og nokkrir flelri, þar á meðal roskin kona frá Austurriki, raunaleg á svip. »Hún hefir verið á öllum alþjóða- fundum sem eg man til«, sagði einn danski fulltrúinn. Einnig var þar með skipinu fulllrúi nýja stóra Balkan- landsins, sem til hefir orðið upp úr stríðinu, Jugóslavíu. Það land hét áöur Serbía, nú má gamla nafnið ekki heyrast. Fulltrúi þess er frú

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.